Fréttablaðið - 14.11.2006, Qupperneq 60
Nafn Heather Mills bar á
góma í viðtali sem hin
virta sjónvarpskona
Daphne Barak tók við
vopnasalann Adnan Khas-
hoggi. Því hefur lengi
verið haldið fram að fyrir-
sætan og fyrrum eigin-
kona Pauls McCartney
hafi gert sig út sem vænd-
iskona á árum áður og
Khashoggi hafi verið einn
viðskiptavinanna. Talið er
að fortíð Mills gæti verið
dregin fram þegar skiln-
aður hennar og Bítilsins
Pauls McCartney verður
tekinn fyrir í breskum
réttarsölum snemma á
næsta ári en deilur þeirra
virðast nú vera í rénun eftir að hafa verið á forsíðum
götublaðanna í Bretlandi undanfarnar vikur.
Frá því er greint í netútgáfu Daily Mail að Khas-
hoggi hafi viðurkennt að Mills hafi sótt teiti hjá sér
á Marbella árið 1988 en vildi hins vegar ekki stað-
festa það beint að hann
hefði greitt henni fyrir að
sofa hjá sér. „Hverjum er
ekki sama?“ svaraði
Khashoggi þegar sjón-
varpskonan Barak gekk á
hann með spurningar um
Mills.
Tvær fyrrverandi
fylgdarkonur hafa báðar
lýst því yfir í fjölmiðlum
á undanförnum árum að
Mills hafi átt í nánum
samskiptum við ríka
karla gegn greiðslu en
fyrirsætan hefur ávallt
neitað öllum ásökunum.
Khashoggi sagði að þetta
væru deilur milli kvenna
en neitaði hins vegar að
hreinsa mannorð Mills. Hann vildi þó að Bretar
sýndu Heather meiri samúð á þessum erfiðu
tímum. „Mills fann mann sem hún elskaði en hún
hefði mátt leggja harðar að sér í hjónabandinu,“
sagði Khashoggi.
Neitar að hreinsa mannorð Mills
Köngulóarmaður-
inn Tobey Ma-
guire hefur eign-
ast sitt fyrsta
barn með unn-
ustu sinni, Jenni-
fer Meyer. Eign-
uðust þau stúlku
á sjúkrahúsi í Los
Angeles.
Maguire, sem
er 31 árs, er
þekktastur fyrir
hlutverk sitt í
Spiderman-
myndunum.
Hann hefur einnig leikið í myndum
á borð við The Cider House Rules
og The Wonder Boys.
Spider Man
eignast barn
Bono, söngvari U2, söng óvænt
dúett með Kylie Minogue á tón-
leikum hennar í Ástralíu. Sungu
þau lagið Kids sem Kylie söng
upphaflega með Robbie Williams.
„Það er svo mikill heiður fyrir
þig að koma fram með mér,“ sagði
Kylie í léttum dúr er hún kynnti
Bono til sögunnar. Þetta voru aðrir
tónleikar Kylie eftir að hún sneri
aftur úr veikindum sínum.
Söng dúett
með Bono
Svo virðist sem allt sé búið milli
Siennu Miller og Judes Law, eða
hvað? Fjölmiðlar hafa ekki getað
treyst einni einustu frétt af par-
inu sem hefur verið sundur og
saman síðastliðið ár og fáum
kæmi það á óvart ef skötuhjúin
birtust á næstu dögum með þá
yfirlýsingu að allt væri í himna-
lagi.
Slúðurblaðið People hefur eftir
nánum vinum hjónaleysannna að
þau hafi fengið nóg af hvort öðru
en ákvörðunin hafi verið tekin í
sameiningu. „Þau hafa reynt að
láta þetta ganga en mistekist.
Bæði Jude og Siennu líður illa yfir
þessu en halda að þetta sé þeim
fyrir bestu,“ sagði vinurinn í sam-
tali við blaðið. Talsmenn parsins
vilja ekkert tjá sig um það en
vinahópurinn í kringum þau virð-
ist sannfærður um að öllu sé lokið.
„Börnin skipta Jude mestu máli
og það fer illa í Siennu,“ er haft
eftir nánum vini leikkonunnar.
Sienna og Jude slitu sambúð-
inni eftir að bresku blöðin birtu
fréttir af ástarsambandi hans og
barnfóstru barna hans og Sadie
Frost. Þau náðu síðan aftur saman
en voru fljót að skilja eftir að
sömu blöð komust á snoðir um
einnar nætur gaman Miller og
Daniels Craig. Parið ákvað síðan
að reyna að blása nýju lífi í glæð-
urnar og vonuðust fjölskyldur
þeirra beggja að hið versta væri
yfirstaðið en sá draumur varð
ekki að veruleika... í bili.
Allt búið hjá Jude og Siennu
Nýja viðbótin á verslunarmark-
aðnum, Liborius við Mýrargötu,
hefur gefið sig út fyrir að vera
ekki bara fataverslun. Það var
aldeilis sýnt og sannað á laugar-
daginn en þá hélt Daníel Ágúst
Haraldsson tónleika inni í búðinni
með fullskipaða hljómsveit. Í
versluninni er svið og hefur eig-
andinn, Jón Sæmundur Auðarson,
sagt að svona uppákomur verði
reglulega í búðinni, en þá verður
fatnaðurinn tekinn í burtu, enda
allar innréttingar færanlegar.
Fjölmenni var á tónleikunum
og virtust allir skemmta sér hið
besta.
Frábær byrjun á nýjasta
tónleikastaðnum í borginni
Bandaríski leikarinn Jack Palance
er látinn, 87 ára að aldri. Ferill
Palance spannaði sex áratugi.
Hann vann Óskarinn árið 1992
fyrir gamanmyndina City Slick-
ers. Vakti hann mikla athygli
þegar hann gerði armbeygjur með
annarri hendi er hann tók á móti
verðlaununum.
Palance var jafnframt til-
nefndur til Óskarsins
fyrir myndirnar Sudden
Fear og vestrann Shane.
Palance lætur eftir sig
eiginkonu og tvær
dætur.
Jack Palance
er látinn
Strákarnir í hinni fornfrægu hljóm-
sveit Take That segjast ekkert sakna
Robbie Williams. Þeir Gary Barlow,
Howard Donald, Mark Owen og
Jason Orange ákváðu að sameina
sveitina á ný eftir langa pásu en
Robbie Williams, sem hefur náð
mestri frægð af þeim öllum, ákvað
að vera ekki með.
Nú segja kapparnir að Robbie
hefði ekki passað í hópinn eins og
hann er núna. „Aðdáendur okkar
gætu verið á annarri skoðun en ég
er viss um að hann hefði ekki getað
verið í hljómsveit með okkur. Við
þekkjum hann ekki lengur,“ segir
Howard Donald.
Sakna ekki
Robbie
Látum ekki fylgifiska skammdegisins leggja okkur í
rúmið. Styrkjum mótstöðuaflið, höldum heilbrigði
og hreysti með varnarefnum náttúrunnar.
Láttu sérhæft starfsfólk
okkar aðstoða þig
við val á vítamínum.