Fréttablaðið - 14.11.2006, Side 65
Viktor Bjarki Arnarsson,
leikmaður ársins í úrvalsdeild
karla, er strax búinn að fá nýjan
þjálfara hjá norska liðinu Lille-
ström sem hann gekkst til liðs við
á vikunum. Uwe Rösler, þýskur
þjálfari og fyrrum leikmaður liðs-
ins, var látinn taka poka sinn þar
sem árangur liðsins í sumar þótti
ekki standa undir væntingum.
Lilleström lenti í fjórða sæti
deildarinnar eftir að hafa verið í
baráttunni um fyrsta sætið lengi
vel. Fregnirnar komu leikmönn-
um liðsins á óvart en Frode Kippe
fyrirliði var staddur í Serbíu með
norska landsliðinu þegar hann
fékk fréttirnar.
„Ég hefði viljað að það hefði
verið haft samráð við mig,“ sagði
Kippe en leikmenn munu vera
ánægðir með störf Rösler.
Þetta er einnig sérkennileg
staða fyrir Viktor Bjarka þar sem
Rösler stóð fyrir því að félagið
keypti hann frá Víkingum.
„Þetta er frekar svekkjandi en
ég ætla ekki að láta þetta hafa
áhrif á mig,“ sagði Viktor við
Fréttablaðið í gær en hann heldur
til Noregs á morgun þar sem hann
mun hefja æfingar af fullum
krafti. Lilleström á leik í Royal
League-deildinni á laugardag og
vonast Viktor Bjarki til að taka
þátt í honum.
Hann segir það þó vera bót í
máli að Jan Åge Fjörtoft, starfs-
maður félagsins, tekur nú tíma-
bundið við stjórn liðsins.
„Jan Åge kom hingað í sumar
og sá mig spila. Hann þekkir mig
því vel sem er gott þar sem ég hef
vitanlega lítið spilað síðan í sept-
ember og er ekki í bestu leikæf-
ingunni.“
Viktor segir Rösler hafa verið
vinsælan meðal leikmanna liðsins.
„En hann er ungur og umdeildur
og það hefur ef til vill haft sitt að
segja.“
En hverju sem líður hlakkar
hann til að takast á við verkefnin
fram undan. „Það er frábært að
byrja í Royal League þar sem við
mætum bestu liðum Norðurland-
anna. Það gerist ekki betra.“
Læt þetta ekki hafa áhrif á mig
Þekkirþú einkennin?
Talið er að 5% Íslendinga á miðjum
aldri séu með sykursýki og gera má
ráð fyrir svipuðum fjölda sem ekki
hefur greinst enn
Í dag,14. nóvember, er .
, Breiddinni
, Skútuvogi
Alþjóðadagur fólks með sykursýki
BYKO kl. 10-12
Húsasmiðjan kl. 13-15
Af því tilefni munu hjúkrunarfræðingar mæla blóðsykur
á eftirtöldum stöðum:
www.bris.is
www.sykursjukir.is
Gary Neville hefur bæst
í hóp þeirra leikmanna sem hafa
dregið sig út úr enska landsliðinu
fyrir leik liðsins gegn Hollandi á
morgun. Neville á við meiðsli í
kálfa að stríða.
Alls hafa átta leikmenn dregið
sig úr hópi Steve McClaren
landsliðsþjálfara sem valdi 28
leikmenn í hópinn á föstudaginn
síðastliðinn. Jermaine Jenas er
einnig meiddur á kálfa, Ledley
King og Aaron Lennon eiga við
hnémeiðsli að stríða, Scott Parker
og Stewart Downing eru slæmir í
nára og Darren Bent er tognaður
á hásin. Chris Kirkland mark-
vörður fékk leyfi þar sem kona
hans á von á barni.
McClaren kallaði á Kieran
Richardson í stað Jenas en sá
fyrrnefndi var í landsliðshópi
Englands skipuðum leikmönnum
21 árs og yngri.
Átta leikmenn
fjarverandi
Mike Newell, stjóri
Luton, er í miklum vandræðum
eftir að hafa látið ýmisleg
vafasöm orð falla eftir tap Luton
gegn QPR í ensku 1. deildinni um
helgina. Amy Rayner var annar
aðstoðardómara í leiknum og var
Newell ekki sáttur við það.
„Það er nógu slæmt að vera
með vanhæfa dómara og línu-
verði. Ef það á að láta konur
dæma verða mikil og stór
vandræði. Þetta er atvinnuknatt-
spyrna á háu stigi, ekki spark á
leikvelli. Hvað eru konur að gera?
Þetta er bara til sýnis fyrir þessa
pólitísku rétthugsuðu hálfvita,“
sagði Newell eftir leikinn.
Sjálfur hefur hann beðist
afsökunar á ummælunum en
stjórn félagsins vill engu að síður
hitta hann vegna málsins.
Stjórn Luton
vill funda
Steven Pressley hefur
samkvæmt fréttastofu BBC í
Skotlandi verið látinn hætta sem
fyrirliði skoska úrvalsdeildarliðs-
ins Hearts. Hann spilaði ekki með
liðinu gegn Falkirk í gær.
Í síðasta mánuði sagði
Pressley við fjölmiðla að leik-
menn væru órólegir eftir að
þjálfari þeirra, Valdas Ivanau-
skas, tók sér veikindaleyfi.
Missir fyrir-
liðabandið
Alessandro Del Piero,
leikmaður Juventus í ítölsku B-
deildinni, verður frá næstu þrjár
vikurnar eftir að hafa meiðst í
leik Juventus gegn Pescara á
laugardag. „Ég er í raun ánægður
því maður býst alltaf við hinu
versta,“ sagði Del Piero.
Juventus er í þriðja sæti B-
deildarinnar.
Meiddur næstu
þrjár vikurnar