Fréttablaðið - 14.11.2006, Page 70
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Allt útlit er fyrir að hagsmuna-
samtök á Írlandi muni reyna að fá
örmyndasögubók Hugleiks Dags-
sonar, Should You Be Laughing At
This?, bannaða þar í landi en bókin
þykir senda unglingum vægast
sagt varasöm skilaboð.
The Irish Sun birti nýlega frétt
um bókina með stríðsfyrirsögninni
„Bannið þessa sjúku bók“ en undir
henni var rætt við Majella Ryan,
talskonu barnahagsmunasamtak-
anna CARI, þar sem hún fullyrðir
að reynt muni verða að hefta dreif-
ingu bókarinnar í landinu.
„Þetta er bara æsifrétta-
mennska,“ segir Hugleikur og
kippir sér ekki upp við ofsafengin
viðbrögðin á Írlandi. „Kannski
hefur þetta fólk alveg rétt fyrir
sér. Þetta eru afar ósmekklegar
sögur og ég hef þannig séð engan
rétt til að gera grín að þessum
hlutum þannig að ég er ekkert
hissa á því að fólk sé reitt,“ bætir
Hugleikur við.
Majella segist ekki skilja hvað
fékk Penguin til að gefa hana út á
Bretlandseyjum. „Bókin er svo
hræðileg að ég veit varla hvar ég
á að byrja,“ segir hún.
„Henni er greinilega beint til
unglinga og er mjög móðgandi og
sendir mjög hættuleg skilaboð,“
segir Majella og tiltekur sjálfs-
morð, morð og sifjaspell sem við-
kvæma hluti sem Hugleikur skop-
ast að.
Hugleikur neitar því ekki að
þessi hörðu viðbrögð kitli sig svo-
lítið. „Þetta er skemmtilegt að
vissu leyti og það er gott að fá
þennan pól í þetta.
„Við Íslendingar erum svo
kaldir og náum kaldhæðninni eins
og skot og þó við séum undan
Írum þá eru í það minnsta ekki
þessir tilteknu Írar að fatta þetta,“
segir Hugleikur og bendir jafn-
framt á að hann viti fyrir víst að
margir Írar séu hrifnir af sögum
sínum.
Bókinni hefur verið vel tekið í
Bretlandi en Penguin steig var-
lega til jarðar og treysti sér til að
mynda ekki til að halda uppruna-
legum titli hennar sem var „Avoid
Us“ og breytti honum í spurning-
una „Ættir þú að hlæja að þessu?“
Bannið þessa sjúku bók
...fær útvarpsmaðurinn góðkunni
Jónas Jónasson fyrir að hafa
tekið á móti kvöldgestum og fylgt
þeim inn í nóttina í heil 25 ár.
Aðalheiður Ólafsdóttir, betur þekkt
sem Heiða úr Idolinu, mun stjórna
nýjum tónlistarþætti á Skjá einum
í vetur þar sem sýnd verða mynd-
bönd með öllu því nýjasta og vin-
sælasta í tónlist hverju sinni. „Ég
mun verða með upprifjun á gömlu
og góðu efni inn á milli þannig að
þátturinn ætti að geta höfðað til
allra,” segir Heiða og bætir
því við að þátturinn verði
hálftímalangur á hverju
föstudagskvöldi.
„Það leggst mjög vel í
mig að stjórna þessum þætti
og ég er ofsalega spennt að
vinna við sjónvarp,”
segir Heiða. „Idol-
þátturinn var
náttúrlega í
sjónvarpi en þetta er allt öðruvísi.
Þar fékk ég góða reynslu í að venj-
ast myndavélunum og þrátt fyrir
að það hafi tekið smá tíma þá er
gott að búa að þeirri reynslu,”
bætir hún við en hún mun kynna
tuttugu vinsælustu lög hverrar
viku fyrir sig.
Heiða hefur í nógu að snú-
ast þessa dagana því auk
þess að stjórna tónlistar-
þættinum þá syngur hún í
Footloose í Borgarleik-
húsinu og um helgar fer
hún norður á Akureyri þar sem hún
syngur í sýningu með tónlist Ingi-
mars Eydal. „Síðan er ég að kenna
söng hjá Þorvaldi Bjarna. Nám-
skeiðinu er að ljúka núna og ég er
því að undirbúa tónleika með stelp-
unum sem ég er að kenna,” segir
hinn eldhressa söngkona.
Idol-Heiða stjórnar sjónvarpsþætti
Veitingastaðurinn Sægreifinn, og
sérstaklega humarsúpan sem prýð-
ir matseðil hans, hlaut á sunnudag
lofsamlega umfjöllun í þeim hluta
New York Times sem helgaður er
ferðalögum. Þetta ætti ekki að
koma þeim sem stundað hafa stað-
inn á óvart, en hann hefur notið
mikilla vinsælda. Sérstaklega hafa
miðbæjarbúar farið fögrum orðum
um veitingarnar. Sægreifinn er
einn þeirra veitingastaða sem
glæða Reykjavíkurhöfn lífi, en þar
má bæði njóta tilbúinna fiskrétta
og kaupa sér spriklandi ferskan
fisk í soðið.
Í umfjölluninni í dagblaðinu
virta segir meðal annars að hina
fullkomnu humarsúpu sé að finna á
Sægreifanum, súpan sé hreint út
sagt ljúffeng og það fyrsta sem
fólk eigi að láta inn fyrir varir sínar
þegar komið er til Reykjavíkur. Þar
segir jafnframt að miðað við verð
og gæði súpunnar sé hreinlega ekki
hægt að gera betur en Sægreifinn.
Kjartan Halldórsson, eigandi
Sægreifans, hafði ekki fengið tæki-
færi til að lesa umfjöllunina þegar
Fréttablaðið hafði samband við
hann. Stuttur útdráttur úr grein-
inni vakti þó mikinn fögnuð greif-
ans og fyrrverandi sjómannsins, og
kvaðst Kjartan hæstánægður með
umfjöllunina. „Ég er náttúrulega
gríðarlega ánægður með þetta. Það
er mikið atriði að fá svona umfjöll-
un, og sér í lagi hjá svona blaði.
Þetta er bara mikil upphefð,“ sagði
hann. Aðspurður hvort dómur New
York Times væri í samræmi við
þau viðbrögð sem Kjartan fær hjá
viðskiptavinum sínum sagði hann
svo vera. „Ég fæ alltaf góða umfjöll-
un og viðtökur hjá fólki, og er voða-
lega hamingjusamur með það,“
sagði Kjartan.
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
PAKKAFERÐIR
VIÐ ALLRA HÆFI
Öll verð miðast við að tveir séu saman í herbergi.
Tottenham–Wigan
58.900 kr.24.–27. nóv.
27.–29. nóv.
George Michael
69.900 kr.
Berlín í jólaundirbúningi
51.900 kr.24.–27. nóv.
Aðventuferð til Trier
59.900 kr.8.–11. des.
Sheraton Real de Faula
Verð frá 59.180 kr.Valfrjálst
Arsenal–Man. City
54.900 kr.30.–31. jan.
Chelsea–Arsenal
69.900 kr.9.–11. des.
Arsenal–Portsmouth
59.900 kr.15.–17. des.
Óli Palli og The Pogues
59.900 kr.16.–18. des.
Liverpool–Everton
84.900 kr.2.–4. feb.
Sunnlendingarnir frá Portsmouth hafa staðið
sig vonum framar í deildinni í haust. En nú
reynir á þá þegar þeir mæta Arsenal á
Emirates Stadium. Gunners eru alltaf erfiðir
við að etja á heimavelli. Innifalið: Flug með
sköttum, hótel í 2 nætur með morgunverði og
miði á leikinn.
Í Trier er öllu til tjaldað um aðventuna:
Dásamlegur jólamarkaður þar sem hægt er
að versla fallega muni og gæða sér á ekta
jólaglögg og jólakökum. Jólaskreytingar,
jólaljós og hagstætt verðlag. Innifalið: Flug
með sköttum, gisting á 3 stjörnu hóteli í 3
nætur, skoðunarferð og rútuferðir.