Fréttablaðið - 14.11.2006, Qupperneq 72
Um daginn var ég eitthvað að brasa í eldhúsi móður minnar
þegar óvænt sending dundi á
glugganum eins og þruma úr heið-
skíru lofti. Vegna þess að ég var
vel staðsett sá ég í einu augnakasti
hóp stálpaðra stráka tvístrast í
allar áttir eftir að hafa kastað egg-
inu sem sprakk svo glæsilega á
rúðunni.
miður hef ég aldrei haft nógu
eftirtektarverðar skoðanir til að
vera umdeild á nokkurn hátt og
þaðan af síður móðir mín sem á
þennan glugga, svo ekki gat eggja-
kastið verið persónulegt. Miklu
frekar tómstundagaman eins og
símaat, bara meira pirrandi.
Glugginn hátt frá jörðu og vesen
að þrífa, auk þess sem ég hef
engan áhuga á að skúra eftir skríl.
Þess vegna vippaði ég mér í skó og
flýtti mér út á hlað. Álengdar
fylgdist ég með einum peyjanum
hlaupa í átt að hverfisskólanum og
með því að spretta úr spori sá ég
allan hópinn sameinast sigri hrós-
andi fyrir framan innganginn.
heppilega vildi til að einmitt
þennan morgun var ég einstak-
lega vel upplögð í almenn stór-
virki. Þess vegna blés ég ekki úr
nös eftir að hafa hlaupið uppi
skemmdarvargana heldur gómaði
þá glóðvolga á þeirra eigin heima-
velli. Las þeim pistilinn öfgalaus-
an, en þó svo þungum rómi að
athygli vakti. Áður en við varð
litið vorum við öll komin inn á
teppi hjá yfirvöldum skólans.
málsins tók stutta
stund en snarpa. Fljótlega höfðu
lúpulegir sökudólgarnir verið ein-
angraðir niður í tvo en förunaut-
unum, hinum óvirku þátttakend-
um, var sleppt með orð í eyra.
Eftir að hafa lýst á dramatískan
hátt skoðun minni á þeirri grimmd
að nýta frímínúturnar til að
hrekkja gamlar konur, var rétt-
lætisþörf minni svalað og skóla-
stjórnendur tóku við.
um daginn heyrðum við
baukað við eldhúsgluggann. Þar
voru mættir iðrandi syndarar með
tuskur og skrúbba og sápuvatn í
fötu. Eftir að hafa skúrað burt öll
ummerki um ódæðið bönkuðu þeir
niðurlútir í foreldrafylgd, með
konfekt í sáttagjöf og báðust fyr-
irgefningar. Örugglega hafa þeir
lært sína lexíu og fá útrás fyrir
uppsteytinn með einhverju
skemmtilegra næst. Við gátum
glaðst yfir því að þetta eru góðir
guttar sem eiga frábæra foreldra.
Og skínandi hreinum eldhús-
glugga.
Eggið
FASTEIGNALÁN
Í MYNTKÖRFU
Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is
3,4%
Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 21.09.2006
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
7
5
9
8
Afl og hagkvæmni sameinast
Tækniundrið TDI® dísilvélin eyðir aðeins 4,9 lítrum
SkodaOctavia
Skoda Octavia með 1,9 lítra TDI® dísilvél
afsannar að afl og hagkvæmni fari ekki saman.
Vélin skilar 105 hestöflum en eyðslan er einungis
4,9 lítrar í blönduðum akstri á hverja 100 km.
Svo er Octavia TDI® einnig fáanleg fjórhjóladrifin
og meira en tilbúin í átök vetrarins. Hvort sem
hindrunin er háir snjóskaflar eða hátt
eldsneytisverð, þá ertu í toppmálum á Skoda
Octavia TDI®.
Í ágúst 2006 tókst Stefáni Ásgrímssyni, ritstjóra FÍB
blaðsins, að ná eyðslu bílsins í 3,63 lítra þegar hann
ók rúmlega hringveginn, alls 1.515 km, í áheita- akstri
HEKLU fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.
GullnaStýrið
Skoda Octavia hefur meðal annars
hlotið Gullna stýrið, einhver
eftirsóttustu bílaverðlaun heims.
550 5600
Hringdu ef blaðið berst ekki
- mest lesið