Fréttablaðið - 26.11.2006, Side 1
Jón Sigurðsson, formað-
ur Framsóknarflokksins, kvað fast-
ar að orði en málsvarar ríkisstjórn-
arinnar hafa áður gert um
Íraksmálið í ræðu á fundi mið-
stjórnar flokksins í gær.
Jón sagði ákvarðanir íslenskra
stjórnvalda hafa byggst á röngum
upplýsingum og því verið rangar
eða mistök.
„Þær upplýsingar sem ég hef
fengið benda til þess að það var
ekki fjallað um málið rækilega á
sínum tíma og þá er kominn tími til
að fara yfir það,“ sagði Jón í sam-
tali við Fréttablaðið.
Hann kveðst hafa orðið var við
að flokksmenn vildu ræða málið og
hvetur til slíkra umræðna.
Jón hafnar hins vegar að með
orðum sínum sé hann að skjóta á
Halldór Ásgrímsson. „Nei, ég er
ekki að því. Hann hefur sjálfur sagt
að ákvörðunin hefði verið byggð á
röngum upplýsingum og það er
raunverulega það sem ég er að end-
urtaka.“
Spurður hvort hann telji ásýnd
flokksins breytast við þessa yfir-
lýsingu segir Jón að það kunni að
gerast. Það sé hins vegar ekki aðal-
atriðið. „Aðalatriðið er að við erum
að leiða sannleika í ljós.“
Jón segist gera ráð fyrir að
fræðimenn muni fjalla um hvort
stjórnvöld þurfi að biðjast afsökun-
ar á stuðningnum, líkt og sumir
hafa kallað eftir, en minnir á að lög-
fræðiálit sýni að ákvörðunin var
lögmæt á sínum tíma.
Drífa Hjartardóttir, einn af þing-
mönnum Sjálfstæðisflokksins sem
sæti á í utanríkismálanefnd, segir
auðvelt að horfa til baka og meta
hlutina nokkrum árum eftir að
ákvörðun um stuðning var tekin.
„Jón sat ekki inni á þingi þegar
þessi ákvörðun var tekin og var
ekki í þeirri stöðu sem Davíð og
Halldór voru í á þeim tíma,“ segir
Drífa. „Málið er okkur öllum
afskaplega erfitt, en ég held að á
sínum tíma hafi menn tekið
ákvörðun út frá þeim staðreyndum
sem þá lágu fyrir. Það er ekki hægt
að horfa fram í framtíðina þegar
tekin er ákvörðun.“
Aðspurð segir Drífa að vel megi
vera að ákvörðunina um stuðning-
inn við innrásina í Írak hefði átt að
taka á lýðræðislegri máta og að
fjalla hefði mátt betur um hana á
sínum tíma. Drífa telur sjálfsagt
og nauðsynlegt að fara yfir
Íraksmálið.
Háskólinn á Bifröst óskar efti ðrekt
Rektor á Bifröst
Stútfullt blað af at-
vinnuauglýsingum
Opið 13–17
í dag
Bókatíðindi barnanna fylgja Fréttablaðinu í dag
edda.is
HM var góð upphitun
fyrir Latabæ
Mistök að styðja
innrásina í Írak
Formaður Framsóknarflokksins segir ákvarðanir stjórnvalda um málefni Íraks
hafa verið rangar eða mistök. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í utanríkismála-
nefnd segir að vel megi vera að ákvörðunin hefði mátt vera lýðræðislegri.
Náist ekki sátt um
sjálfstætt palestínskt ríki innan
sex mánaða munu Palestínu-
menn leggja í þriðju intifada-
uppreisnina, sagði Khaled
Meshaal, leiðtogi Hamas-
samtakanna í gær.
Meshaal kvað alþjóðasamfé-
lagið hafa „sögulegt tækifæri“
til að standa að stofnun
palestínsks ríkis, á því svæði
sem Palestína réði yfir fyrir
stríðið sem braust út 1967 og án
allra landnemabyggða Ísraels-
manna.
Boðar uppreisn