Fréttablaðið - 26.11.2006, Page 70
! Kl. 14.00Sýningu Hallsteins Sigurðssonar í
Listasafni Sigurjóns lýkur í dag og
mun Jón Proppé, heimspekingur og
listgagnrýnandi, leiða gesti um sýn-
inguna kl. 15. Listamaðurinn verður
einnig á staðnum og mun segja frá
tilurð verkanna og svara spurning-
um. Listasafnið er opið laugardaga
og sunnudaga kl. 14 - 17.
Þriðja uppákoma 108 PROTO-
TYPE verður haldin í kvöld kl. 19
en þar er um að ræða röð mánað-
arlegra sýninga sem hefur það að
markmiði að skapa listamönnum
umhverfi þar sem megináherslan
er lögð á sköpunarferlið og nýjar
hugmyndir. Á þessari sýningu
verða vídeóverk í fyrirrúmi og
geta gestir kynnt sér verk þeirra
sem eru í vinnslu.
Þátttakendur kvöldsins eru
Ólöf Ingólfsdóttir danshöfundur
sem sýnir sólóverkið „Stóll, dag-
blað, plastpoki“, Sveinbjörg Þór-
hallsdóttir danshöfundur sýnir
hópverk unnið í samstarfi við
dansara úr Listdansskóla Íslands,
Soffía Guðrún Jóhannsdóttir sjón-
listamaður sýnir verkið „Vil
dansa“.
Inga Maren Rúnarsdóttir dans-
höfundur og Lydía Grétarsdóttir
tónlistarmaður leiða saman hesta
sína og Fairyboy Lumiersdóttir
sýnir ljósmyndir.
Að sýningunni lokinni verða
opnar umræður milli listamann-
anna og áhorfendanna undir stjórn
Ásu Richardsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Íslenska dans-
flokksins. Sýningin fer fram í
Klassíska Listdansskólanum,
Grensásvegi 14 og opnar húsið kl.
18.30
Vídeóverk í vinnslu
Tónleikar fyrir fjölskylduna
Í Myndasal Þjóðminjasafnsins
stendur nú yfir greiningarsýning-
in „Ókunn sjónarhorn“. Þar eru
uppi myndir úr íslensku þjóðlífi
sem engar upplýsingar eru til um,
hver tók, hvar og hver er á mynd-
inni. Hefur safnið gripið til þess
ráðs að fá aðstoð almennings til að
greina myndirnar og á fyrri slík-
um sýningum hafa fjölmargar
athugasemdir komið fram.
Í dag er síðasti sýningardagur
og síðustu forvöð að skoða mynd-
irnar. Þarna má sjá ýmsar myndir
víða að af landinu frá tímabilinu
1930-1950 sem safninu hafa borist
gegnum tímann. Þegar sýningin
var sett upp í lok september hafði
ekki tekist að bera kennsl á mynd-
efnið og voru gestir beðnir að gefa
upplýsingar um það. Þetta hefur
reynst árangursríkt því með hjálp
allra þeirra sem skoðað hafa sýn-
inguna hefur nú tekist að greina
allmargar af myndunum. Betur
má þó ef duga skal og eru gestir
hvattir til að koma og greina þær
sem eftir eru um helgina!
Þjóðminjasafnið við Suðurgötu
er opið alla daga nema mánudaga
milli kl. 11-17.
Maður og staður
Orgelið í Neskirkju þótti mikið
þing þegar kirkjan reis á sínum
tíma. Þar ræður nú ríkjum Stein-
grímur Þórhallsson og hans tillegg
til hátíðardaga í kirkjunni fyrir
aðventu verða tónleikar í dag kl.
17.
Þar verða flutt verk eftir tón-
skáldin Bach, Frescobaldi, Guilm-
ant og Franck.
Steingrímur lauk píanókennara-
prófi 1998 frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík og kantorsprófi frá Tón-
skóla þjóðkirkjunnar. Þá um haust-
ið lá leiðin til Rómar í Kirkjutón-
listarskóla Páfagarðs. Haustið 2002
var hann ráðinn organisti við Nes-
kirkju. Steingrímur er jafnframt
listrænn stjórnandi „Tónað inn í
aðventu“ en markmið hátíðarinnar
er að listamenn sem tengjast kirkj-
unni eða vesturbæ á einhvern hátt
hafi vettvang til að koma fram
undir einum hatti en einnig er
markmiðið að setja á fót listahátíð
vesturbæjar með aðsetur í Nes-
kirkju þar sem ungir og aldnir sýni
afrakstur vinnu sinnar.
Orgelið hljómar
Verk mánaðarins á Gljúfrasteini
er minningasaga
Halldórs Lax-
ness, Í túninu
heima, og mun
Halldór Guð-
mundsson bók-
menntafræðing-
ur spjalla um
hana á Gljúfra-
steini kl. 16 í
dag.
Í túninu heima
kom út 1975 og
var fyrst minningasagna Halldórs
en hann kallaði þessar bækur
skáldsögur í ritgerðarformi, og er
það réttnefni því auk þess sem
Halldór minnist bernsku og ungl-
ingsára skrifar hann hér margt
um viðhorf sitt til skáldskapar og
sagnagerðar. Hið sama mun nafni
hans gera sem ætlar að bera bók
Halldórs saman við bækur tveggja
annarra íslenskra höfunda sem
einnig ólust upp í sveit, en þeir eru
Þórbergur Þórðarson og Gunnar
Gunnarsson en hann hefur nýlega
sent frá sér bókina Skáldalíf, eins
konar hliðstæðar ævisögur Gunn-
ars og Þórbergs.
Í túninu heima
Höll ævintýranna
Sunnudaginn 26. nóv kl. 11.00 laus sæti
Smiður jólasveinanna
Sunnudaginn 26. nóv. kl. 14.00
Miðvikudaginn 29. nóv. kl. 10.00 uppselt
Föstudaginn 1. des. kl. 10.00 og 14.00 uppselt