Fréttablaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 78
23 24 25 26 27 28 29
Það hefur mikið verið
rætt og ritað um laun íslenskra
knattspyrnumanna síðustu vikur.
Talað hefur verið um að leikmenn
séu að fá himinhá laun samkvæmt
hinum og þessum heimildum en
sjaldan eða aldrei fáum við stað-
festar fréttir af launum eða kaup-
verði leikmanna á íslenska leik-
mannamarkaðinum. Hvorki frá
leikmönnum né félögum.
Nú síðast var talað um að Helgi
Sigurðsson hefði farið til Vals á
fimm milljónir króna og svo hefur
því verið haldið fram að eftir-
sóttustu strákarnir á markaðn-
um innanlands séu að fá um
hálfa milljón á mánuði og jafn-
vel meira.
Íslenski leikmannamarkað-
urinn er ákaflega sérstakur fyrir
margra hluta sakir og
ekki síst fyrir þá stað-
reynd hversu lokaður
hann er og hversu mikið
feimnismál laun og
kaupverð leikmanna eru.
Hvað er eiginlega verið að
fela?
Fréttablaðið hefur und-
anfarnar vikur tekið
ítarleg viðtöl við marga
af eftirsóttustu knatt-
spyrnumönnum lands-
ins síðustu ár í þeirri
von að geta dregið upp
skýra mynd af því
hvernig markaðurinn
sé í raun og veru og
hvernig hann hefur
breyst á undanförnum
árum.
Hvað eru leikmenn að fá í laun?
Hvernig samningar eru í boði hjá
hverju félagi? Er enn verið að
borga leik-
mönn-
um
„svart“? Hvaða félög brjóta regl-
ur um félagaskipti og hvaða félög
eiga mestu peningana? Þessar
spurningar eru á meðal þeirra
sem lagðar voru fyrir leikmenn-
ina.
Það er skemmst frá því að segja
að leikmennirnir tóku ákaflega
vel í bón blaðsins, voru mjög sam-
starfsfúsir og töluðu hreint og
beint um hlutina.
Þeir koma ekki fram undir
nafni enda var tilgangur úttektar-
innar ekki sá að komast að því
hvað einstaka leikmenn hafa í
laun heldur hvernig málum sé
háttað almennt á íslenska leik-
mannamarkaðnum.
Leikmönnunum sjálfum
fannst tími kominn á að opna
umræðuna og ekki síst fyrir
þær sakir að þessi mikla
leynd er þeim ekki í hag og
í viðtölunum kom meðal
annars fram að þeir hafa
flestir í raun og veru
ekki hugmynd um hversu
há laun þeir geti farið
fram á.
Allar þær upplýsing-
ar sem verður að finna í
greinum vikunnar eru
alfarið fengnar frá leik-
mönnunum sjálfum.
Í fyrstu greininni
sem birtist á morgun
verður fjallað um
hversu há laun leik-
menn í Landsbanka-
deildinni hafa í raun
og veru.
Fréttablaðið mun í greinum alla næstu viku lyfta hulunni af hinum dulda leik-
mannamarkaði í íslenskri knattspyrnu. Í greinunum kemur meðal annars fram
hversu mikið leikmenn á Íslandi fá greitt í dag og hvaða lið borga best. Upplýs-
ingarnar koma beint frá leikmönnum Landsbankadeildarinnar.
Ísland lauk í gær
sínum undirbúningi fyrir
forkeppni HM kvenna sem fer
fram í Frakklandi árið 2007. Liðið
lék um helgina tvo leiki gegn
Færeyingum og vann þá báða
heldur sannfærandi.
Á föstudagskvöldið vann
Ísland afar sannfærandi sigur, 43-
11, eftir staðan var 23-7 í hálfleik.
Hanna G. Stefánsdóttir var þá
markahæst í liðinu með tíu mörk
en Dagný Skúladóttir skoraði sex.
Í gær var heldur jafnara með
liðunum en Ísland vann leikinn,
27-21. Sólveig Lára Kjærnested
skoraði fimm mörk og Rakel
Dögg Bragadóttir fjögur.
Íslenska liðið fer í dag til
Rúmeníu þar sem það tekur þátt í
forkeppni HM ásamt heimamönn-
um, Portúgal, Ítalíu og Aserbaíd-
sjan.
Tveir sigrar hjá
Íslendingum
Landsliðsmaðurinn
Logi Gunnarsson skoraði 24 stig í
leik ToPo og Porvoo sem síðar-
nefnda liði vann heldur óvænt,
94-83, á heimavelli Loga og
félaga.
Logi var stigahæstur leik-
manna ToPo í leiknum en liðið er
nú í fimmta sæti finnsku úrvals-
deildarinnar með níu leiki unna
en sjö tapaða.
24 stig í tapleik
Það verður sannkallað-
ur Íslendingaslagur í úrslitaleik
meistarakeppni félaga sem hófst í
gær með undanúrslitaleikjunum.
Þá lögðu Gummersbach lið
Lemgo með 34 mörkum gegn 33.
Þá sigruðu Evrópumeistarar
Ciudad Real lið Medwedi frá
Moskvu, 37-34.
Guðjón Valur Sigurðsson og
Róbert Gunnarsson skoruðu
fimm mörk hvor fyrir Gummers-
bach en liðið er þjálfað af Alfreði
Gíslasyni. Guðlaugur Arnarsson
lék í vörn liðsins. Hvorki Logi
Geirsson né Ásgeir Örn Hall-
grímsson skoruðu fyrir Lemgo.
Ólafur Stefánsson skoraði 5
mörk fyrir Ciudad Real.
Íslendingaslag-
ur í úrslitum
Mikil eftirvænting ríkir
fyrir leik Manchester United og
Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í
dag. Jose Mourinho, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, er í stöðu sem hann
hefur ekki fengið að kynnast síðan
hann tók við stjórnartaumunum
hjá félaginu. Liðið er í næstefsta
sæti og er þremur stigum frá
Manchester United sem er á toppi
deildarinnar. Með sigri í leiknum
nær United sex stiga forskoti á
Chelsea og það er eitthvað sem
Mourinho vill ekki að gerist.
Mourinho og Sir Alex Ferguson
hafa haft frekar hljótt um sig í
aðdraganda leiksins en samskipti
þeirra virðast einkennast af gagn-
kvæmri virðingu. Peter Kenyon
og Cristiano Ronaldo hafa séð um
að koma með sleggjurnar í fjöl-
miðlum en Kenyon byrjaði með
því að lýsa því yfir að stefnan væri
sett á að gera Chelsea að stærra
félagi en Manchester United og að
það takmark ætti að nást 2014.
„Þessi ummæli snerta mig ekki
neitt, mér er sama hvernig önnur
félög líta á hlutina. Það eina sem
ég veit er að hvert sem við förum
í heiminum er alltaf stór hópur
stuðningsmanna sem tekur á móti
okkur. Við eigum frábæra sögu að
baki og spilum oftast skemmtileg-
an fótbolta. Það held ég að sé aðal-
ástæðan á bak við þennan fjölda
stuðningsmanna,“ sagði Sir Alex í
viðtali í gær.
Manchester United vann viður-
eign sína gegn Chelsea á Old Traff-
ord 1-0 á síðasta tímabili þar sem
Darren Fletcher skoraði eina
markið. Útlit er fyrir að allar
stærstu stjörnurnar verði með í
leiknum í dag en eina breytingin
sem má búast við að verði gerð á
byrjunarliði United frá síðasta
leik er sú að Patrice Evra kemur
líklega í vinstri bakvörðinn í stað
Gabriel Heinze. Frank Lampard
spilaði ekki með Chelsea í meist-
aradeildinni í síðustu viku vegna
leikbanns en verður nú með.
Manchester United hefur verið
það lið sem verið hefur mest sann-
færandi á tímabilinu en útlit er
fyrir að baráttan um Englands-
meistaratitilinn verði einvígi gegn
Chelsea. Þegar tölfræði þessara
liða er borin saman er hún mjög
svipuð að mörgu leyti en hvað
sóknina varðar er það United sem
hefur vinninginn. Liðið hefur til
að mynda átt talsvert fleiri fyrir-
gjafir og skot að marki á tímabil-
inu en Englandsmeistararnir.
Langstærsti leikur tímabilsins til þessa