Fréttablaðið - 30.11.2006, Blaðsíða 92

Fréttablaðið - 30.11.2006, Blaðsíða 92
!óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 PULSE kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA CASINO ROYALE kl. 5.30, 8.30 og 10.15 B.I. 14 ÁRA BORAT kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 6 MÝRIN kl. 6 og 8 B.I. 12 ÁRA PULSE kl. 8 B.I. 16 ÁRA CASINO ROYALE kl. 5, 8 og 10.30 B.I. 14 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 5 og 8 SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 4 OPEN SEASON ENSKT TAL kl. 4 og 6 BORAT kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA MÝRIN kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA CASINO ROYALE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA OPEN SEASON ENSKT TAL kl. 8* BORAT kl. 6 og 10* B.I. 12 ÁRA * SÍÐUSTU SÝNINGAR MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á "BESTA BOND MYNDIN Í ÁRARAÐIR" - V.J.V. TOPP5.IS - BLAÐIÐ "EIN BESTA MYNDIN FRÁ UPPHAFI" S.V. MBL "BESTA BOND MYNDIN FRÁ UPPHAFI..." Þ.Þ. FBL M.M.J. kvikmyndir.com 20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI 75þúsund gestir ERU ÞIÐ TILBÚIN FYRIR EINA FYNDNUSTU MYND ALLRA TÍMA? MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI I besta mynd, besti leikari, besti leikstjórinn, besti aukaleikarinn og besta tónlistin (Mugison) 5 edduverðlaun Þegar ég fékk plötu Bríetar Sunnu í hendurnar hugsaði ég með mér að hér væri komin enn ein Ædol- platan, hrikalega ófrumleg um- slagsmynd sagði allt sem segja þurfti. Ég leit aftan á plötuna og skoðaði lagalistann. „Nohh, þeir hafa ákveðið að treysta á ábreiðu- lögin, greinilegt að frumsömdu lögin hafa ekki verið að gera sig,“ hugsaði ég með mér. Leit síðan á það hverjir íslenskuðu lögin og mér til nákvæmlega engrar furðu voru það Stefán Hilmarsson, Einar Bárðarson og Kristján Hreinsson. Leit inn í umslagið til þess að athuga hvort þér/mér/hér-rím væri ekki örugglega að finna í textum Einars. Júbb, í báðum lög- unum hans. Einar klikkar ekki. Ég skoðaði betur lögin og þótt- ist þekkja að hér væru á ferðinni tónmild kántrílög enda hafði Bríet oft lýst yfir ást sinni á slíkum lögum í Ædolinu. Af fyrri reynslu þóttist ég samt vita að hér myndi ekki kveða við nýjan tón. Ædol- diskarnir hafa hingað til ein- kennst af ófrumleika, einsleitum útsetningum, fljótfærni og gríð- arlegri hræðslu við að taka áhættu. Því ætti þessi plata Brí- etar Sunnu að vera eitthvað öðru- vísi en hinar? Eitt var ég líka viss um; frammistaða Bríetar átti eftir að vera hin fínasta enda ágæt söng- kona þar á ferð. Á listanum yfir þá sem komu að upptöku plötunn- ar var ég líka viss um að engan viðvaningsbrag mætti finna á plötunni. En það er einfaldlega ekki nóg að tónlist sé fagmann- lega gerð. Það þarf einfaldlega svo miklu miklu miklu miklu meira, allavega til þess að tónlist geti talist góð. Ég endaði samt að sjálfsögðu á því að hlusta á grip- inn almennilega en því miður, og ég endurtek: því miður, reyndust áhyggjur mínar um ágæti plöt- unnar á rökum reistar. Fagmennska er ekki nóg! Breska stúlknasveitin Girls Aloud einbeitir sér nú að því að fylgja nýju plötunni sinni úr hlaði. Í því skyni ákváðu stúlkurnar að fara með upptökulið upp á arminn í tvö hús sem bæði eru víðfræg fyrir reimleika, og fara þar í andaglas. Ein þeirra, Nadine Coyle, þver- neitaði þó að taka þátt í ævintýr- inu og kvaðst vera allt of hrædd við slíka hluti. Hinar fjórar stúlk- urnar héldu galvaskar af stað í fylgd Yvette Fielding, sem stjórn- ar þættinum Most Haunted. Til- raunin fór þó ekki betur en svo að Nicola Roberts flúði tökustað og Cheryl Tweedy og Kimberley Walsh grétu hvor í kapp við aðra. Cheryl sagði lífsreynsluna hafa verið hræðilega, hún hafi öskrað og grátið til skiptis. Kimberley, sem kvaðst vera tortryggnasta stúlkan í hópnum, sagðist hins vegar hafa öðlast trú á drauga og önnur slík fyrirbæri. Miðað við áhrifin sem tilraunin hafði á hljómsveitarmeðlimi verður því forvitnilegt að sjá hvort hún mun hrista upp í plötusölunni. Kynna plötu með draugaveiðum Hinn 15 ára gamli Daníel Alvin sigraði í rímnaflæði- keppni Miðbergs um síðustu helgi. Hann þótti skrefi á undan jafnöldrum sínum í textagerð og flutningi. „Ég er mjög sáttur, ætla fagna þessu með að fara út að borða á Ruby Tuesday,“ segir Daníel Alvin Haraldsson sem gerði sér lítið fyrir og vann rímnaflæðikeppni Miðbergs sem haldin var síðasta föstudag. Af þeim tæplega tíu sem tóku þátt þótti Daníel bera af með lagi sínu „Skrímslið og reiðin“, en dómnefnd var sammála því að Daníel væri skrefi á undan jafn- öldrum sínum hvað varðar texta- gerð og flutning. Í laginu fæst Daníel ekki við neitt smámál, en það er tilhugalíf- ið, þá sérstaklega ástarsorgin sem er til umfjöllunar. „Ég var ekki búinn að æfa mig mikið, en undir- spilið fékk ég aðeins þremur dögum fyrir keppni og þá þurfti ég að spýta í lófana,“ segir hann. Í verðlaun voru 15 þúsund krónur, MP3 spilari og nýútkominn geisla- diskur rapparans Bents, sem Dan- íel metur mikið. Sjálfur hefur hann tekið upp fjögur lög, sigur- lagið ekki þar með talið, en lögin er ekki hægt að nálgast að svo stöddu, „en eru væntanleg á myspace“. Daníel Alvin kýs að láta kalla sig Danna A þegar hann er við hljóðnemann og neitar öllum tengslum við rapparann Sesar A. Hann er 15 ára gamall og nemur við Engjaskóla í Grafarvogi. Hann fæddist á Íslandi, en fjórum árum ævinnar eyddi hann í Kaliforníu og Hawaii ásamt fjölskyldu sinni. Hann segist staðráðinn í að fara í framhaldsskóla á næsta ári en hefur enn ekki ákveðið hvert för- inni skal heitið, en það skal vera skóli sem tekur vel á móti upp- rennandi rappstjörnum og skáld- um. Rappstjarna framtíðarinnar V in n in g ar v er ð a af h en d ir h já B T Sm ár al in d . K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b. 9 9 kr /s ke yt ið .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.