Fréttablaðið - 30.11.2006, Blaðsíða 18
nær og fjær
„ORÐRÉTT“ Hannar lampa úr plexígleri
Hakan og Aylin eru ritstjór-
ar tímaritsins Bant í Tyrk-
landi, en þau fengu heldur
óhefðbundna brúðkaups-
gjöf. 35 vinir þeirra lögðu í
púkk og gáfu þeim ferð til
Íslands.
„Við héldum veislu á veitingastað í
Istanbúl til að þakka þeim fyrir, og
hengdum íslenska fánann á vegg-
inn,“ segja hin nýbökuðu hjón þar
sem þau sitja á hótelinu Klöpp á
Klapparstíg.
Þau eru þó ekki eingöngu hér til
að skemmta sér, því þau nýta fríið
til að taka viðtöl við íslenska tón-
listarmenn eins og Dr. Gunna og
Örvar úr múm.
„Þetta er yfirleitt svona hjá
okkur, við höfum farið saman til
Barcelona og Stokkhólms og not-
uðum þá tækifærið til að tala við
þarlenda tónlistarmenn. En manni
líður aldrei eins og þetta sé vinna,
þvert á móti er þetta góð leið til
að kynnast fólki,“ segir Aylin.
„Við giftum okkur fyrir þremur
vikum síðan, en vinirnir pössuðu
upp á að panta ekki ferðina fyrr
en blaðið var komið í prentun.
Daginn eftir brúðkaupið þurftum
við að mæta til vinnu,“ segir
Hakan.
Þau unnu áður hjá fyrirtækinu
Merkez Dergi, sem gefur út fjölda-
mörg blöð, meðal annars Cosmop-
olitan á tyrknesku, en stofnuðu
fyrir tveimur árum síðan tímaritið
Bent.
„Okkur langaði til að gera eitt-
hvað þar sem við sjálf réðum ferð-
inni. Í fyrstu lögðu vinir okkar til
greinar, en nú erum við farin að
geta borgað fólki og erum einnig
með útvarpsþátt og höldum tón-
leika. Þetta er allsherjar lífsstíls-
blað, en við leggjum áherslu á að
kynna listafólk og tónlistarmenn
sem ekki er fjallað um annars stað-
ar. Það er mikil gróska í Istanbúl
þótt plötufyrirtækin sinni henni
illa og gefi helst út iðnaðarpopp.“
En hvers vegna, ber mér skylda
til að spyrja, Ísland?
„Það var annaðhvort Brasilía
eða Ísland,“ svarar Hakan. Jú, ann-
aðhvort hlaut það að vera.
„Ég hef mikinn áhuga á norður-
slóðum og hef horft á íslenskar
bíómyndir eins og Cold Fever, 101
Reykjavík og Nóa albínóa, og lang-
aði til að sjá öll litlu húsin,“ segir
Aylin.
Nýbakaður eiginmaðurinn
hefur meiri áhuga á tónlist. „Það
hljómar klént, en ég hef hlustað
mikið á Björk og hún hefur dregið
upp ákveðna mynd af Íslandi sem
er heillandi en kannski aðeins að
hluta til rétt. Hún spilaði á djass-
hátíð í Istanbúl fyrir tíu árum
síðan en það hefði verið gaman að
sjá hana hér með Sykurmolunum.
Svo hlusta ég einnig á Sigurrós og
múm.“
Hjónin verða hér í rúma viku
og ætla að fara í sund, sjá Gullfoss
og Geysi og svo að sjálfsögðu
skoða sig um í plötubúðum.
„Smekkleysubúðin og 12 Tónar
eru mjög skemmtilegar búðir, en
geisladiskar hér eru dýrir. Ég
keypti þrjá geisladiska í gær en
hefði fengið tíu á sama verði
heima,“ segir Aylin.
Ferð til Íslands í brúðkaupsgjöf
Líklega hefur Tyrkjaránið mótað viðhorf Íslend-
inga til Tyrkja öldum saman, þrátt fyrir að vera
framið af Alsírmönnum undir stjórn Hollendings.
Einnig vakti forræðisdeila Sophiu Hansen og Halim
Al mikla athygli, en hægt er að nefna marga aðra
Tyrki og heimsfrægari.
Sertab Erener er ein vinsælasta söngkona
Tyrklands, og vann Eurovision árið 2003 með laginu
Everyway That I Can, sem fór í kjölfarið í fyrsta
sæti í ýmsum Evrópulöndum.
Drottning tyrkneska poppsins er þó hin rúmlega
fimmtuga Sezen Aksu, sem hefur selt yfir fjörutíu
milljón plötur.
Áhrifameiri en þær báðar er Ahmet Ertegun,
fæddur í Istanbúl en stofnaði Atlantic útgáfuna í
Bandaríkjunum og uppgötvaði listamenn á borð við
Ray Charles, Led Zeppelin og Frank Zappa.
Rithöfundurinn Orhan Pamuk vann Nóbelsverð-
launin í ár, fyrstur Tyrkja. Kúrdíski höfundurinn
Mehmet Uzun er fæddur í Tyrklandi og býr nú í
Istanbúl eftir langa dvöl í Svíþjóð. Til gamans má
einnig nefna leikkonuna Tuna Metya sem búið
hefur á Íslandi undanfarin ár og leikur nú í
leikritinu Best í heimi.
Lengra aftur í sögunni má finna marga fræga
menn sem fæðst hafa á því svæði sem nú er
Tyrkland, svo sem Abraham ættfaðir, skáldið
Hómer, Pál postula og jafnvel jólasveininn sjálfan,
heilagan Nikulás.
Frægustu Tyrkir í heimi
Þvílík della
?
?
?
?
?
?
jólagjafir
Fyrsta flokks gæði
og frábær verð
HLÝJAR
Dúnsængur
og koddar
í miklu úrvali
Laugavegi 87 • símar 551 8740 & 511 2004
Gefðu hlýju
En hún hljómar von-
andi ekki illa
Er þögn sama og
staðfesta?