Fréttablaðið - 30.11.2006, Blaðsíða 104
Klisjur eru klisjur af því þær eru sannar og ein sannasta
klisjan er að allt sé best í hófi. Það
er ágætt að eiga eitthvað af pening-
um og þurfa ekki að fá í magann
um hver mánaðamót, en það er svo
sem ágætt líka að fá í magann því
þá finnur maður allavega fyrir því
að maður sé lifandi. Eins lengi og
gluggaumslögin koma inn um lúg-
una hefur maður tilgang í lífinu.
Þannig að hófið liggur í því að fá í
magann um sirka önnur hver mán-
aðamót.
myndina af
óhófi sá ég í þætti um Michael
Jackson sem Martin Bashir gerði
fyrir nokkrum árum. Þetta var
átakanleg mynd af manni sem átti
allt en samt ekki neitt. Hann lét
henda öllum út úr milljónamær-
ingaverslun í Las Vegas og gekk
svo um og keypti sér drasl sem
hvert um sig kostaði eins og það
sem venjulegur launaþræll upp á
Íslandi yrði ævina að vinna fyrir.
Michael benti áhugalaus á draslið
sem hann langaði í og svo hefur því
eflaust verið skutlað á búgarðinn.
Seinna sama dag var söngvarinn
kominn upp á hótelherbergi, einn
og vinalaus og leikandi sér að ein-
hverju dóti. Þetta var sláandi dæmi
af því hvar óhófið getur endað. Enn
og aftur sönnuðust orð heimspek-
inganna frá Liverpool sem sungu
„Þú getur ekki keypt þér ást“. Og
allt kemur fyrir ekki þótt Michael
Jackson sé búinn að kaupa útgáfu-
réttinn af textanum.
finnst mér eins og
Ísland sé að verða eins og Michael
Jackson í dótabúðinni. Eins og
ofdekraður krakki sem fær allt upp
í lúkurnar og er löngu hætt að verða
glatt yfir nokkrum sköpuðum hlut.
Það var gleði þegar Jón Páll og feg-
urðardrottningarnar unnu sína titla
á 9. áratugnum, en slíkir titlar vekja
litla ánægju nú. Við erum orðin svo
agalega heimsfræg. Það bylja á
okkur fréttir af fulltrúum þjóðar-
innar, góðu millunum, sem eru að
kaupa sér hitt og þetta í dótabúðum
heimsins, en okkur er jafn sama og
þjónunum hans Michaels þegar
hann fer í innkaupaleiðangur. Við
ypptum bara öxlum. Okkur er sama.
Við vitum að gluggaumslögin koma
alveg jafn títt inn um lúguna hjá
okkur. Okkur finnst miklu meira
koma til sigra Magna í karókí.
styttist í óhófsorgíuna miklu.
Þegar mulningsvél heilaþvottarins
er sett í gang er ágætt að vera and-
lega viðbúinn áreitinu með sögum
foreldra sinna um jól fortíðar þar
sem það þurfti bara nokkur rauð
epli til að búa til hátíð. Besta vörnin
er þó að hugsa um galtóm augun í
Michael Jackson þar sem hann sat í
miðri hrúgunni sinni: einn ríkasti
maður í heimi og sá langsorgleg-
asti.
Michael Jackson
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATOR
- félag laganema við Háskóla Íslands
mmtudaga
milli 19:30 - 22:00 í síma 551-1012
Framtíðarreikningur Glitnis
– fyrir káta krakka með stóra drauma
• Bestu vextir sparireikninga bankans • Verðtryggður reikningur
• Auðvelt og þægilegt að spara reglulega • Bundinn þar til barnið verður 18 ára
Gefðu inneign á Framtíðarreikning Glitnis
og fáðu fallega Latabæjarhúfu í
Latabæjaröskju í kaupbæti.*
Þú færð Framtíðarreikning í næsta
útibúi Glitnis eða á www.glitnir.is.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
* 3.000 kr. lágmarksupphæð.