Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 4

Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 4
RÉTTÓ Árgangur 1956 Endurfundur föstudaginn 12. janúar á Kaffi Reykjavík kl. 20:00 Aðgangur 2.500 kr. Peningar/ekki kort. Mætum öll og rifjum upp gamla tíma. Látið vita um mætingu á áðursendan tölvupóst. Öryrkjum á Íslandi hefur fjölgað á undanförnum árum. Geð- og stoðkerfisraskanir eru algengustu sjúkdómaflokk- arnir hjá öryrkjum af báðum kynj- um. Þetta segir Stefán Ólafsson prófessor. Hann byggir orð sín á nýrri rannsókn sem hann gerði, ásamt læknum, á fjölda örorku- þega á Íslandi. Tilgangur hennar var að kanna algengi og dreifingu öryrkja með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og sjúkdómsgreininga. Við rannsóknina voru upplýsingar frá desember 2005 kannaðar en þá voru tæplega fjórtán þúsund Íslendingar metnir til örorku. Í rannsókninni kemur meðal annars fram að þeim, sem er á örorku vegna geðraskana, hafi fjölgað mjög. Tómas Zoëga geð- læknir segir að ástæður þess verði að kanna betur. „Hér er ekki hægt að sýna fram á að fjöldi fólks með geðsjúkdóma hafi aukist undan- farin tuttugu ár, eins og til að mynda hefur gerst í Bandaríkjun- um. Tíðni áfengis- og fíkniefna- vanda hefur aftur á móti aukist til muna,“ segir Tómas. Hann telur það hugsanlega skýringuna á algengari örorku og bendir á að rúmlega tíu prósent þeirra karla sem séu á örorku vegna geðsjúk- dóma séu greindir með áfengis- eða fíkniefnavanda. „Geðraskanir eru nú ástæða fyrir rúmlega fjöru- tíu prósentum tilvika á örorku karla,“ segir Tómas. Stefán og Tómas benda þó einn- ig báðir á það að ýmislegt bendi til þess að fólk sé fúsara en áður að leita sér aðstoðar vegna geðsjúk- dóma. Viðhorfsbreyting samfélags gæti því verið hluti skýringarinn- ar. Örorka er einnig algengari meðal yngstu aldurshópanna hér á landi en á hinum Norðurlöndun- um, samkvæmt Læknablaðinu, sem birtir rannsóknina í nýjasta tölublaði sínu. Meginástæðuna fyrir því telur Stefán vera að hér sé minna um starfsendurhæfingu og virkniaukandi aðgerðir fyrir þennan hóp. Stefán segir fjölgun öryrkja í takt við þá þróun sem hafi verið í öðrum Evrópulöndum. Hann telur líklegt að þegar tölur síðasta árs verði athugaðar komi í ljós að hægt hafi á fjölguninni. „Tíðni örorku eykst með auknu atvinnuleysi. Þetta var áberandi hér á landi eftir 1990. Öryrkjum fækkaði ekki hér á landi árið 2005 þótt atvinnuástand væri gott en ég hef trú á því að það hafi gerst á síðasta ári,“ segir Stefán. Trygg- ingastofnun ríkisins greiddi 6,8 milljarða í örorkulífeyri árið 2005, rúmum átta prósentum meira en árið 2004. Geðraskanir ein helsta ástæða örorku á Íslandi Í nýrri rannsókn kemur fram að örorka vegna geðraskana hafi aukist mikið. Tómas Zoëga telur að aukin áfengis- og fíkniefnanotkun skýri fjölgunina að einhverju leyti. Örorka er líka algengara meðal yngstu aldurshópanna hér á landi en á hinum Norðurlöndunum. Sagt að starfsendurhæfingu vanti fyrir hópinn. Geðraskanir eru nú ástæða fyrir rúmlega 40 prósentum tilvika á örorku karla. Þegar borin eru saman árin 2004 og 2005 kemur í ljós að algengi örorku vegna geðrask- ana hefur aukist úr 28,7% í 31,3% hjá konum og úr 37,8% í 40,8% hjá körlum. Þeir Sigurð- ur Thorlacius, Sigurjón B. Stef- ánsson og Stefán Ólafsson sem gerðu rannsóknina segja þetta benda til að áframhald sé á þeirri þróun sem hefur verið áberandi á Íslandi eftir 1990, það er að tíðni örorku vegna geðraskana aukist sérstaklega mikið. Örorka er einnig algeng- ari meðal yngra fólks á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum. Þeir segja mörg tækifæri til að draga úr þessari þróun, til dæmis með eflingu starfsend- urhæfingar og virkniaukandi aðgerða á vinnumarkaði. Litháískur karlmaður, Povilas Akelaítis, var í gær dæmd- ur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir tilraum til að smygla til landsins tæpum 2,5 kílóum af amfetamíni í lok ágúst á síðasta ári. Efninu kom hann til landsins bifreið sem hann flutti með Nor- rænu. Þegar bifreiðin kom til Seyðis- fjarðar gaf fíkniefnahundur merki um að í henni gætu leynst fíkni- efni. Þegar drifskaftið var sagað í sundur reyndist það fullt af amfetamíni. Maðurinn neitaði að hafa haft nokkra vitneskju um að efnið væri falið í bílnum og gat enga skýringu gefið á tilvist þess þar. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi rangar og misvísandi skýr- ingar sem maðurinn gaf benda til þess að hann hefði haft eitthvað að fela við komuna til landsins. Jafn- framt, að teknu tilliti til þess hversu óljósar upplýsingar mað- urinn kvaðst hafa fengið um hvað tæki við þegar hann kæmi hingað til lands, og að BMW-bifreiðin sem efnin voru falin í var orðin 17 ára og varla mikils virði auk fleiri atriða, var niðurstaða dómsins sú að framburður mannsins væri ekki trúverðugur. Auk fangelsisvistarinnar og upptöku efnanna var maðurinn dæmdur til að greiða nær 800 þús- und krónur í sakarkostnað og BMW-bifreiðin var gerð upptæk. Drifskaft fullt af amfetamíni Magnús Reynir Guðmundsson, bæjarfulltrúi Í- listans á Ísafirði, er kominn til starfa sem framkvæmda- stjóri Frjálslynda flokksins á skrifstofu flokksins í Reykjavík. Aðspurður um deilurnar innan Frjálslynda flokksins, segist Magnús þekkja bæði Guðjón Arnar og Margréti Sverrisdóttur af góðu einu. „Ég ætla nú að kanna um hvað deilurnar snúast áður en ég tek afstöðu til þeirra.“ Magnús heldur áfram að starfa innan bæjarráðs Ísafjarðar, enda sé gott fólk þar til að leysa hann af, samgöngur góðar og því skjótfarið á milli. Framkvæmda- stjóri til starfa Fasteignamatið hækkar í flestum tilfellum þegar fimmtán stærstu sveitarfélögin í landinu eru skoðuð, samkvæmt athugun á gjaldskrárhækkunum sveitarfélaganna sem Verðeftirlit Alþýðusambands Íslands, ASÍ, er að vinna. Þetta þýðir að að fasteignaskatturinn hækkar um tíu prósent þó að álagningarpró- sentan haldist óbreytt. Henný Hinz, verkefnastjóri verðlags og neytendamála hjá ASÍ, segir að óskað hafi verið eftir upplýsingum um gjaldskrár- hækkanir og sér sýnist algengt að þjónustugjöldin hækki um fimm til tíu prósent. Hún telur ljóst að hækkanirnar hækki vísitölu neysluverðs, sem verður gerð opinber á föstudaginn og kemur þá í ljós hvernig verðbólgan mælist. Áhrif á vísitölu neysluverðs Ný vatnsveita Orku- veitu Reykjavíkur í Borgarfirði, sem ber nafnið Grábrókarveita, verður formlega tekin í notkun í dag. Er þar með lokið lögn nýrrar vatnsæðar allt frá Bifröst til Borgarness, rúmlega 30 kílómetra. Á leiðinni eru nokkrar stórar sumarhúsabyggðir auk bújarða sem geta tengst nýju lögninni. Talsverður skortur hefur verið á góðu neysluvatni í nokkrum byggðanna. Lagning leiðslunnar hefur staðið til síðan árið 2004. Ný vatnsveita í Borgarfirði
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.