Fréttablaðið - 06.01.2007, Qupperneq 6
Mike McConnell, gamalreyndur
leyniþjónustumaður í Bandaríkjunum, tekur
við embætti yfirmanns allra leyniþjónustu-
stofnana Bandaríkjanna af John Negroponte,
sem verður aðstoðarutanríkisráðherra og þar
með helsta hjálparhella Condoleezzu Rice utan-
ríkisráðherra.
George W. Bush Bandaríkjaforseti skýrði
frá þessu í gær. Bandarískir fjölmiðlar full-
yrtu enn fremur að frekari mannabreytinga
væri að vænta í tengslum við hina nýju stefnu
Bandaríkjanna í Írak, sem Bush hefur verið að
undirbúa allt frá því í haust.
Talið er að Bush ætli sér að fjölga í herliði
Bandaríkjanna í Írak, í það minnsta tímabundið,
frekar en að fækka í liðinu eins og nýr meirihluti
demókrata á Bandaríkjaþingi hefur krafist. Einn-
ig er talið að Bush vilji veita auknu fjármagni í
stríðið, en til þess þarf samþykki þingsins. „Eitt
er víst, og það er að ég ætla að tryggja það að
verkefnið verði skýrt og greinilega afmarkað
og framkvæmanlegt,“ sagði Bush á fimmtu-
daginn.
Frekari útlistanir á stefnubreytingunni
verða þó ekki gerðar opinberar fyrr en að lokn-
um mannabreytingunum, sem felast meðal
annars í því að Zalmay Khalilzad, sem nú er
sendiherra Bandaríkjanna í Írak, taki við af
John Bolton sem sendiherra Bandaríkjanna
hjá Sameinuðu þjóðunum, en í staðinn fyrir
Khalilzad í Írak komi Ryan Crocker, sem nú er
sendiherra í Pakistan.
Þá verða einnig mannaskipti hjá herliði
Bandaríkjanna í Írak, þar sem David Petraeus
tekur við af George Casey sem yfirherforingi
Íraksliðsins auk þess sem William Fallon verð-
ur yfirmaður miðstjórnar herliðs Bandaríkj-
anna í Írak og Afganistan í staðinn fyrir John
Abizaid.
Ný stefna Bush í Írak leidd af nýju fólki
Reykir þú?
Ert þú hlynnt(ur) stækkun
álversins í Straumsvík?
Fyrirtæki Þorsteins
Vilhelmssonar, Ránarborg, mun
styrkja Lindaskóla um samtals
900 þúsund
krónur á næstu
þremur árum
en ekki um
tæpar tvær
milljónir króna.
„Það sem
Ránarborg legg-
ur í þetta eru 300
þúsund krónur á
ári í þrjú ár,“
segir Gunn-
steinn Sigurðsson, skólastjóri
Lindaskóla og bæjarráðsmaður í
Kópavogi, um framlag félags Þor-
steins til verkefnisins í Lindaskóla.
Í Fréttablaðinu á fimmtudag var
sagt að peningagjöf Þorsteins til
Lindaskóla næmi samtals tæpum
tveimur milljónum króna á þremur
árum. Var sú upphæð byggð á upp-
lýsingum sem fengust í samtali við
Gunnstein á miðvikudag. Kom fram
í samtalinu að þrjú fyrirtæki;
Ránarborg, Norvik, sem er eignar-
haldsfélag BYKO, og eitt fyrirtæki,
sem enn er ónafngreint, myndu
saman greiða um þriðjung heildar-
kostnaðar við Lindaskólaverkefnið.
Sagði Gunnsteinn þennan þriðj-
ungshlut skiptast „nálægt því“ í
þrennt á milli félaganna þriggja
þannig að hvert þeirra greiddi um
níunda part af heildarkostnaði verk-
efnisins. Kostnaðurinn nemur 16,8
milljónum króna. Níundi partur af
því er nálægt 1,9 milljónum króna.
Gunnsteinn segir nú að Norvik
greiði meira en Ránarborg. „Ég
man ekki nákvæmlega töluna en
það er töluvert hærra,“ segir Gunn-
steinn sem kveðst ekki geta látið
Fréttablaðinu í té afrit af samning-
unum við Norvika og Ránarborg
fyrr en eftir helgi.
Gefur 900 þúsund
Gunnsteinn Sigurðsson, skólastjóri í Lindaskóla, segir Þorstein Vilhelmsson
styrkja skólann um 900 þúsund krónur en ekki tæpar tvær milljónir króna.
Fernando Araujo,
fyrrverandi þróunarmálaráðherra
Kólumbíu, slapp úr haldi FARC-
skæruliða í gær, eftir sex ára nauð-
vist. Varnarmálaráðherra landsins
segir að Araujo sé heilsuhraustur
og hafi flúið úr einni bækistöðva
skæruliðanna þegar stjórnarher-
inn gerði árás á hana.
Araujo var rænt hinn 5.
desember árið 2000. FARC-liðar
vonuðust til að geta haft fanga-
skipti á honum og eigin liðsmönn-
um, sem er alþekkt aðferð FARC-
hreyfingarinnar.
Slapp eftir sex
ár í haldi FARC
Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB og þingmaður
vinstri grænna,
stendur fast á
því að uppsagn-
ir starfsmanna í
íþróttahúsi og
sundlaug
Snæfellsbæjar
síðastliðið vor
hafi verið
ólögmætar.
Hæstiréttur
staðfesti nýlega
úrskurð Héraðsdóms Vesturlands
um að vísa frá máli sem BSRB
höfðaði vegna uppsagnanna. „Við
teljum að fólki hafi verið sagt upp
á ómálefnalegum forsendum og
eftir stendur að einn starfsmaður,
trúnaðarmaður Starfsmanna-
félags Dala- og Snæfellsnessýslu,
hefur ekki verið endurráðinn,“
segir Ögmundur.
Uppsagnirnar
ólögmætar