Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 8

Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 8
Su›urlandsbraut 26 Reykjavík Sími: 510 0000 Brekkustíg 39 Njar›vík Sími: 420 0000 Mi›ási 7 Egilsstö›um Sími: 470 0000 Grundargötu 61 Grundarfir›i Sími: 430 0000 www.besta.is Hentugir geymslukassar af öllum stær›um og ger›um sem passa vel undir jólaskrauti› e›a anna› dót sem flarf a› geyma. * Tilbo› gildir til 30. janúar e›a á me›an birg›ir endast. SETTU ALLT Í KASSANA Enn dvelja hundar á hundahótelinu á Leirum, sem hafa að líkindum hlaupið að heiman í skoteldahávaðanum í kringum áramótin. Að sögn Hreiðars Karls- sonar komu lögregla og hunda- eftirlitsmenn með fjóra hunda þangað á þeim tíma sem fundist höfðu lausir. „Það var talsvert hringt til okkar í kringum áramót til að láta vita af lausum hundum sem fólk hafði handsamað og tekið með sér heim,“ sagði Hreiðar, þegar Fréttablaðsmenn litu við á Leirum í gær. „Þessar sprengingar eru farnar að standa yfir dögum saman þannig að þetta dreifðist nokkuð. Við höfðum þann háttinn á að spyrja fólk hvort það hefði tök á að hafa hundana eitthvað hjá sér, ef eigendurnir skyldu hringja. Með þeim hætti náðum við að koma þó nokkrum hundum aftur til eigenda sinna, án þess að þeir þyrftu að hafa viðkomu á Leir- um.“ Þetta fyrirkomulag hefur spar- að mörgum hundeigandanum skildinginn því greiða þarf 21.500 krónur til þess að leysa út hund sem lögreglan eða hundaeftirlits- menn handsama í lausagöngu. Ef hann er ekki skráður þarf að greiða 15.400 krónur í viðbót í skráningargjald, því frá Leirum fer enginn óskilahundur án skrán- ingar. Hreiðar benti á að hundaeig- endur þyrftu að hafa varann á í kvöld þegar þrettándaflugeldarn- ir fara í loftið. „Ég sá á gamlárskvöld að marg- ir voru með hunda sína í bandi við brennurnar,“ sagði hann og kvað slíkt óráðlegt. „Margir hundar eru lafhræddir við flugelda og það er alveg út í hött að vera með þá í bandi í miðri sprengihríðinni. Það fer miklu betur með þá að vera í örygginu inni, þar sem einhver lítur eftir þeim.“ Hreiðar sagði að troðfullt hefði verið á hundahótelinu á Leirum yfir jól og áramót, þar sem margir færu til útlanda á þessum tíma eða kysu að koma hundum sínum fyrir utan borgarinnar. Pantanir fyrir næstu jól og áramót væru þegar teknar að berast. Enn í óskilum á hundahóteli Enn eru hundar á hundahótelinu að Leirum sem teknir voru lausir í kringum áramótin. Þeir hafa að líkindum hræðst flugeldaskothríðina. Flugslysum fækkaði tals- vert á nýliðnu ári frá árinu á undan og reyndist það slysaminnsta árið í flugsamgöngum í 43 ár. Frá þessu greindi alþjóðleg eftirlitsstofnun með flugöryggi, Alþjóðlega flug- slysaskráningarstofan (ACRO). Alls hröpuðu í fyrra 156 skráð- ar flugvélar, en þær voru 178 árið 2005. Samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar fórust í þessum slysum alls 1.292, en það er ellefu prósentum færri en árið á undan. Samkvæmt upplýsingum Alþjóða flugmálastofnunarinnar ICAO fjölgaði flugfarþegum í heiminum í fyrra um fjögur pró- sent, upp í um 2,1 milljarð manna. Mannskæðasta flugslysið á árinu 2006 varð þegar Tupolev TU-154-farþegaþota hrapaði í Svartahaf í ágúst, en með henni fórust 170 manns. Slys ekki færri í 43 ár Hvað heitir nýkjörinn forseti fulltrúadeildar Bandaríkja- þings? Hver er nýr framkvæmda- stjóri Sjálfstæðisflokksins? Hvaða fjármálafyrirtæki mælti með kaupum í Kaupþingi á dögunum? Einar K. Guð- finnsson sjávarútvegsráðherra gerði ríkisstjórninni í gær grein fyrir því að Hafrannsóknastofn- unin gæti þurft á aukafjárveit- ingu að halda finnist loðnan ekki fljótlega. Auk hafrannsóknaskip- anna munu þrjú loðnuskip leita næstu daga og leggja þau líklega úr höfn 8. desember. Mikið liggur við að loðnan finnist því hver veiðilaus dagur á hefðbund- inni vetrarvertíð kostar þjóðar- búið um 300 milljónir króna. Milljónir tapast Tæknifyrirtækið Hitachi mun snemma á þessu ári hefja sölu á hörðum diskum sem geyma eitt terabæti af gögnum. Aldrei áður hefur verið mögulegt að geyma jafn mikið af gögnum á einum hörðum diski. Eitt terabæti, skammstafað TB, er þúsund gígabæti (GB) eða milljón megabæti (MB) sam- kvæmt mælingavenjum harðdisk- framleiðenda. Sem dæmi má geyma um 250.000 lög eða 350.000 ljósmyndir í háum gæðum á disknum. Harði diskurinn varð fimmtíu ára á seinasta ári. Sá fyrsti geymdi fimm megabæti af gögnum og vó eitt tonn. Eins terabætis harður diskur Herbjörn Sigmarsson var ásamt konu dæmdur til refsingar í Héraðsdómi Reykjavíkur, meðal annars fyrir tilraunir til fíkniefna- smygls með póstsendingum hingað til lands. Herbjörn var dæmdur í 18 mánaða fangelsi, en konan í níu mánaða fangelsi, skilorðsbundið. Herbjörn var sakaður um fleiri brot á fíkniefnalögum en þau sem getið er um hér að framan. Hann var jafnframt sakaður um að hafa þýfi í vörslu sinni og brot á vopna- lögum. Ásamt konunni var honum gefið að sök að hafa reynt að smygla inn fíkniefnum í níu umslögum sem send voru hingað til lands í pósti Hún vann hjá Íslandspósti á þess- um tíma. Herbjörn sá um að útvega efnin og sendingu þeirra. Umslögin voru merkt tilteknum viðtakendum eftir upplýsingum frá konunni. Hún átti síðan að fjarlægja bréfin við flokkun á vinnustað sínum í Mýrar- götu og afhenda Herbirni þau. Í umslögunum voru ríflega hálft kíló af amfetamíni og nokkurt magn af kókaíni og hassi. Þá fundust við húsleit hjá honum 2,7 kíló af hassi auk fleiri fíkniefna. Herbjörn hefur áður hlotið dóma fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, skilasvik og brot á almennum hegningarlögum. Honum var gert að greiða 1,6 milljónir króna í sakarkostnað. Fíkniefnin með póstinum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.