Fréttablaðið - 06.01.2007, Side 12
Heimsmarkaðsverð á hráolíu
lækkaði hratt á helstu fjármála-
mörkuðum í fyrstu viðskiptaviku
ársins og fór undir 56 dali á
tunnu.
Helsta ástæðan fyrir lækkun-
inni er að olíubirgðir jukust á milli
vikna í Bandaríkjunum vegna
minni eftirspurnar eftir eldsneyti
um hátíðirnar. Verðið hefur lækk-
að um 9 prósent á markaði í Banda-
ríkjunum í vikunni og fór í 55,55
dali á tunnu vestanhafs. Verð á
Norðursjávarolíu hefur hins vegar
lækkað um 2,85 dali og stóð í 55,07
dölum á tunnu í gær.
Hráolíuverð fór í um 78 dali á
tunnu um miðjan júlí í fyrra, sem
er sögulegt hámarksverð. Það
lækkaði um miðjan ágúst og hefur
sveiflast í kringum 60 dalina síðan
í september.
Ekki er ljóst hvort olíuverð
heldur áfram að lækka en OPEC-
ríkin, samtök olíuútflutningsríkja,
sem framleiða 40 prósent allrar
hráolíu í heiminum, hafa ákveðið
að minnka olíuframleiðslu um
500.000 tunnur á dag frá og með 1.
febrúar næstkomandi til að sporna
gegn frekari verðlækkunum á
hráolíu. Þetta er önnur skerðingin
á olíuframleiðslu samtakanna á
skömmum tíma. Ekki var einhug-
ur um samdrátt í nóvember og
fylgdu einungis nokkur ríki
ákvörðuninni eftir.
Olíuverð
tekur dýfu
[Hlutabréf]
www.danskenns la . i s
Innritun í síma 897 5040
Frekari upplýsingar á:
Á laugardögum í vetur verður boðið upp á
danskennslu fyrir krakka á
aldrinum 3-6 ára. Kenndir verða ýmsir
barnadansar og freestyle dansar í takt við
tónlist.
Tímarnir verða brotnir upp með
ýmsum leikjum og fígúrum sem munu taka
virkan þátt í kennslunni.
Geysir Green Energy
heitir nýtt alþjóðlegt
fjárfestingarfélag um
sjálfbæra orkuvinnslu
sem FL Group, Glitnir
og VGK-Hönnun hafa
stofnað. Forstjórinn
segir starfsemi hefjast nú
þegar og boðar tíðindi á
næstu vikum. Fjárfest-
ingargeta á að nema allt
að milljarði dala.
FL Group, Glitnir og verkfræði-
stofan VGK-Hönnun hafa stofnað
fjárfestingarfélagið Geysir Green
Energy. Tilgangurinn er sagður
vera að fjárfesta í verkefnum
tengdum sjálfbærri orkufram-
leiðslu víðs vegar um heim.
Ásgeir Margeirsson, fráfarandi
aðstoðarforstjóri hjá Orkuveitu
Reykjavíkur, sem ráðinn hefur
verið forstjóri Geysis Green
Energy, segir ótal tækifæri fyrir
dyrum, en félagið mun einbeita sér
að tækifærum í nýtingu jarðvarma,
fjárfestingum í jarðvarmaorkuver-
um, yfirtökum á jarðvarmaorku-
verum í eigu orkufyrirtækja og
einkavæðingu orkufyrirtækja þar
sem tækifæri gefast.
„Aðaláherslan er á Evrópu,
Asíu og Ameríku,“ segir Ásgeir, en
bætir um leið við að vissulega
kunni tækifæri að leynast víðar.
„Saga íslensks starfs í útrás í orku-
iðnaði er orðin löng, byrjaði hjá
verkfræðistofunum, síðan komu
orkufyrirtækin öflug inn og síðan
fjármálafyrirtækin. Glitnir hefur
náttúrulega sérhæft sig á þessu
sviði líkt og þekkt er.“ Í nýju félagi
segir Ásgeir
saman komna
mikla þekkingu
ásamt fjármagni
til fram-
kvæmda.
Eigendahóp-
ur Geysis Green
Energy er ekki
að fullu skipað-
ur, en í hönd
fara viðræður
við fyrirtæki í geiranum. Ásgeir
segir nokkar vikur þar til endan-
leg mynd verður komin á félagið.
„En starfsemin hefst strax og á
örugglega eftir að fréttast um ein-
hverjar aðgerðir félagsins innan
einhverra vikna.“
Vitað er þó að eignarhlutur
Glitnis í orkufyrirtækinu Enexi
mun renna inn í Geysi. Í upphafi
leggja fjárfestar fram 100 milljón-
ir Bandaríkjadala, eða um 7 millj-
arða króna, með peningum og
eignum sem falla að fjárfestinga-
stefnu félagsins, að því er fram
kemur í tilkynningu. FL Group
verður leiðandi hluthafi en auk
Glitnis og VGK-Hönnunar er gert
ráð fyrir að hlutafé verði selt til
innlendra og erlendra aðila á
næstu vikum. Fyrirtækjaráðgjöf
Glitnis annast söluna.
Hannes Smárason, forstjóri FL
Group, segir Geysi vera spennandi
nýjung fyrir félagið, en það hefur
skilgreint fjárfestingar í orkugeira
sem hluta af kjarnastarfsemi sinni.
„Enginn vafi leikur á að sjálfbær
orkuframleiðsla verður heiminum
mjög mikilvæg á næstu árum og
áratugum. Með því að stilla saman
strengi ólíkra aðila, geta íslensk
fyrirtæki náð sterkri stöðu á
alþjóða orkumörkuðum,“ segir
hann. Geysir Green Energy er sagt
munu stækka með fjárfestingum,
samruna, yfirtökum og þróun nýrra
verkefna. Miðað er við að félagið
geti ráðist í fjárfestingar sem nema
meira en einum milljarði banda-
ríkjadala þegar tækifæri gefast.
Mikil stemning ríkir á hlutabréfa-
markaði í byrjun árs og hækkaði
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar um
4,9 prósent í vikunni. Vísitalan, sem
hefur ekki verið hærri síðan 20.
febrúar í fyrra þegar markaðurinn
var að falla, stendur nú í 6.727 stig-
um og vantar því aðeins 200 stig til
að komast í hæsta gildi frá upphafi.
Veltan á árinu er komin yfir 150
milljarða króna, þar af er stór hluti
kominn til vegna færslu á bréfum
en veltan er engu að síður orðin
meiri en allt árið 2001.
FL Group, Landsbankinn,
Exista og Kaupþing hafa dregið
vagninn með 6-8 prósenta hækkun
það sem af er ári. Þannig er ávöxt-
un á bréfum Landsbankans orðin
meiri en allt árið í fyrra og gengi
bréfa í Existu og Glitni hefur
aldrei verið hærra.
Ástæður þessara hækkana eru
meðal annars áframhaldandi krónu-
bréfaútgáfa, sem þykir góðs viti svo
skömmu eftir að Standard & Poor´s
lækkaði lánshæfiseinkunn ríkisins,
og jákvæð greining Citigroup á
Kaupþingi sem metur bankann á
1.000 krónur á hlut. Lokagengi Kaup-
þings var 894 krónur á hlut í gær.
Von er á greiningum á Kaupþingi
frá Morgan Stanley og Fox-Pitt
Kelton.
Citigroup-greiningin var vítam-
ínssprauta fyrir markaðinn að
mati Jónasar Gauta Friðþjófsson-
ar, hjá greiningu Glitnis, enda er
þarna á ferðinni einn stærsti banki
heims. „Þeir mæla sterklega með
kaupum. Þar er farið þeim orðum
um Kaupþing, sem við vissum svo
sem hér heima, að bankinn er orð-
inn alþjóðlegt fyrirtæki. Þetta
gildir einnig um hina bankana og
fjölmörg önnur fyrirtæki.“
Á sama tíma eiga hlutabréf í
verðugri samkeppni við áhættu-
minni kosti eins og peningamark-
aðsreikninga sem bera fimmtán
prósenta vexti. „Eitt og hálft pró-
sent á dag er meira en einn mánuð-
ur á peningamarkaðsreikningi.
Menn vilja kannski ekki missa af
lestinni þegar hún er farin af stað,“
segir Jónas Gauti um áhuga fjár-
festa fyrir hlutabréfum.
Hins vegar fylgir áhætta alltaf
hlutabréfum og þær miklu sveifl-
ur sem urðu á hlutabréfamarkaði
eru komnar til að vera. „Við getum
séð þær til að mynda þegar fjár-
festar innleysa hagnað eða við
verulegar breytingar á ytri
aðstæðum sem snúa hagkerfinu í
heild. Við erum meira undir smá-
sjá erlendra aðila og því getur álit
erlendra fjármála- og matsfyrir-
tækja skipt máli og valdið sveifl-
um, jákvæðum sem neikvæðum á
hlutabréfamarkaði.“
Úrvalsvísitalan, sem hefur ekki verið hærri síðan 20. febrúar í fyrra, hefur
hækkað um tæp fimm prósent frá áramótum. Stemning er á markaði.
Peningaskápurinn ...