Fréttablaðið - 06.01.2007, Side 26
„Ég mæli með því að eignast
barn á þessum tíma (á meðan
HM í fótbolta stendur yfir), það
er frábært, það er alltaf nóg að
gerast í sjónvarpinu.“
Haraldur Guðinason krýndur
„Við erum þegar búin að halda eina
sýningu fyrir fólkið í bænum,” segir
Lilja Dögg Jónsdóttir Eldon en hún og
maðurinn hennar, Hassan Harazi,
hafa opnað lítið kvikmyndahús á
Seyðisfirði. Hassan er frá Englandi
en Lilja Dögg frá Reykjavík og þegar
þau ákváðu að flytja í lítið þorp úti á
landi til að ala upp börnin sín tvö og
opna lítið kvikmyndahús varð Seyðis-
fjörður fyrir valinu.
„Við vildum flytja á nýjan, rólegri og
betri stað og hefja nýtt líf. Seyðis-
fjörður er fallegur bær og við féllum
alveg fyrir honum þegar við komum
hingað og finnst yndislegt að vera
hérna,“ segir Lilja Dögg og bætir við
að Hassan hafi stofnað lítil kvik-
myndahús bæði á Englandi og í
Reykjavík. Kvikmyndahúsið er stað-
sett í 100 ára gömlu húsi við aðalgöt-
una á Seyðisfirði og ætla þau Hassan
að sýna stuttmyndir og öðruvísi
myndir sem ekki eru sýndar í kvik-
myndahúsum borgarinnar né annars
staðar á landinu en þetta er eina kvik-
myndahúsið á Seyðisfirði.
„Okkur finnst vanta meira úrval af
kvikmyndum í bíóhúsum landsins
sem og í sjónvarpinu og langar með
þessum myndum að breikka sjón-
deildarhringinn og úrvalið. Það er svo
mikið af amerískum myndum í boði
og kominn tími til að fólk sjái eitthvað
sem er öðruvísi og jafnvel fræðandi.
Næsta mynd sem við sýnum verður
sýnd í mánuðinum en þá verður
franska heimildamyndin Être et avoir
fyrir valinu en hún fjallar um lítinn
skóla í litlum bæ í Frakklandi þar sem
mörgum árgöngum er kennt saman
eins og gert er hér á Seyðisfirði svo
það verður spennandi að sjá hvað er
sameiginlegt.“
Lilja og Hassan ætla ekki að krefj-
ast aðgangseyris en segja frjáls fram-
lög vel þegin. Hægt er að lesa nánar
um kvikmyndahús þeirra Lilju Dagg-
ar og Hassans á slóðinni www.thef-
reedomcouncil.com.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Sigrún Gunnarsdóttir
Frá Eiði, Eyrarsveit, Rósarima 2, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Hringbraut að morgni 2. janúar.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn
9. janúar kl. 13.00.
Bryndís Theodórsdótir Guðni E. Hallgrímsson
Þröstur Theodórsson Áslaug Árnadóttir
Lilja Theodórsdóttir Birgir Guðmundsson
Hrönn Theodórsdóttir Davíð Heiðberg
Freyja Theodórsdóttir
Sveinn Theodórsson Ellen María Þórólfsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Olga Gísladóttir
Kirkjulundi 8, Garðabæ, áður
Heiðargerði 90, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans mánudaginn 1.
janúar. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ
mánudaginn 8.janúar kl. 15.00. Blóm og kransar
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er
bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Sigurður Sigurðsson
Erla Fríður Sigurðardóttir Ingvar Friðriksson
Fríður Sigurðardóttir Ari Guðmundsson
Guðmundur Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Súsanna Regína
Gunnarsdóttir
Kleppsvegi 38, Reykjavík,
sem lést 2. janúar á Fjórðungssjúkrahúsinu í
Neskaupstað. Verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 10. janúar kl. 15.00.
Þorgeir Kristján Eyberg Þórdís María Blomsterberg
Einar Hafsteinn Árnason Karen Hilmarsdóttir
Sigurlaug Ísabella Árnadóttir Ragnar Valgeir Jónsson
Jónas Hannes Eyberg Ester Guðjónsdóttir
og barnabörn.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
Sigurður Á. Benediktsson
lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstudaginn 15.
desember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Kristín Eva Árnadóttir
Magnús Hallur Norðdahl Sigurðsson
Hallgrímur Norðdahl Sigurðsson
Berglind Norðdahl Sigurðardóttir
Ragna Margrét Norðdahl Sigurðardóttir
tengdabörn og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Lovísa
Guðmundsdóttir
Blönduhlíð 25, Reykjavík,
lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi aðfaranótt
4. janúar 2007. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Gunnar Friðrik Magnússon
Halldóra Kristín Magnúsdóttir Unnar Þór Böðvarsson
Guðný Hrönn Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, bróðir og mágur,
Unnsteinn Pálsson
trésmiður, Sundlaugavegi 12,
sem lést 21. desember á krabbameinsdeild 11E, verður
jarðsunginn frá Laugarneskirkju mánudaginn 8. janúar
kl. 13.00.
Guðríður Haraldsóttir
Elísabet Unnsteinsdóttir Böðvar Páll Jónsson
Baldur Jón Böðvarsson
Þórunn Halla Unnsteinsdóttir Runólfur Einarsson
Þórdís Pálsdóttir Jón Bergsson