Fréttablaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 33
Íraninn Nima Taherzadeh slær
í gegn með fágaðri fatalínu.
Fáir tískuhönnuðir hafa vakið jafn
mikla eftirtekt að undanförnu og
hinn íranski Nima Taherzadeh,
fyrir kvenfatalínu sína sem hann
kallar einfaldlega Nima. Ekki síst
í ljósi þess að hönnuðurinn sem er
nýútskrifaður úr Parsons The
New School For Design, er ein-
ungis 24 ára og Nima fyrsta fata-
lína hans.
Er lína Nima, sem kom fyrst
fyrir sjónir almennings í haust, er
meðal annars sögð einkennast af
vönduðum hráefnum, velheppn-
aðri blöndun ólíkra efna, vönduð-
um frágangi og skemmtilegum
smáatriðum. Að auki þykir hún
sýna mikinn þroska af hálfu hönn-
uðar.
Sjálfur segist Nima hafa það að
markmiði að hanna kvenfatnað
sem sé í senn einfaldur, áreynslu-
laus, klæðilegur og nútímalegur.
Hann vill að konum geti fundist
þær vera glæsilegar án mikillar
fyrirhafnar, ekki síst þar sem hraði
nútímasamfélagsins krefjist þess
að fólk sé fljótt að hafa sig til.
Svo virðist sem Nima hafi hitt
beint í mark með hönnun sinni og
halda gagnrýnendur vart vatni yfir
línunni. Enda voru tískurisarnir
ekki lengi að taka við sér þegar
fréttist hversu hæfileikaríkur hönn-
uðurinn væri og er hann nú kominn
á samning hjá Saks þar sem hann
hefur fengið góða aðstöðu.
Óhætt er því að segja að gæfan
hafi snúist Nima í hag en fyrir
skemmstu hannaði hann fötin,
saumaði þau, pakkaði inn og sendi
til viðskiptavini sína. Fáir ungir
hönnuðir eiga jafn miklu láni að
fagna og Nima, þar sem baráttan er
einstaklega hörð í tískubransanum.
Spennandi verður að sjá hvernig
vorlínu Nima vegnar en hún var
kynnt í desember síðastliðnum.
Nýr tískuhönnuður
vekur heimsathygli Áberandi kjólar og undarleg höfuðföt.
Veðreiðar hafa fyrir löngu skipað
sér sess í hugum fólks sem eitt-
hvað sem er í bland sýning á sér-
kennilegum höfuðfötum hefðar-
kvenna og sýning á hestum sem
keppa um það hver hleypur hrað-
ast. Það skyldi því engan undra að
á slíkum veðreiðum í Auckland á
Nýja-Sjálandi skuli einnig fara
fram tískusýningar.
Veðreiðar þessar sem kallast
öðru nafni „Herald Christmas
Carnival“ eða „Boxing Day“, eru
árlegur viðburður þar í landi sem
er fjölsóttur af íbúum landsins.
Þar mætast glamúr, tíska, pening-
ar, veðhlaupahestar, knapar, plötu-
snúðar, kampavín og sólskin en í
desembermánuði er einmitt
hásumar þar í landi.
Myndirnar frá hátíðinni voru
teknar þann 26. desember síðast-
liðinn en það er annar þeirra
tveggja daga sem skemmtunin
stendur sem hæst.
Veðreiðatískan á Nýja-Sjálandi
Opið í dag laugardag 10-18
Mörkinni 6, 108 Reykjavík, sími 588 5518
Opið laugardag og sunnudag
Útsala
50%
Áður Nú
Ullarkápur 29.900 15.000
Mokkakápur 25.900 13.500
Ullarjakkar 12.900 5.900
Úlpur 12.900 5.900
Dúnkápur 22.900 11.500
Rússkinsjakkar16.900 8.500
Pelsar 26.900 13.500
Mörg góð tilboð
Útsalan er hafi n
40 - 70%
afsláttur
Laugavegi 53 • s. 552 3737
Opið í dag 10-17