Fréttablaðið - 06.01.2007, Qupperneq 36
Huginn Þór Grétarsson gaf ný-
verið út ferðasöguna Háskaför
um Suður-Ameríku, bók sem
stendur undir nafni.
„Bókin snýst um fimm mánaða
ferðalag mitt um Suður-Ameríku,
þar sem ég lenti í fjölda ævin-
týra,“ segir Huginn, sem hélt á
suðrænar slóðir eftir þriggja ára
heimshornaflakk. Ákvað hann að
fara suður á bóginn þar sem
honum þótti indíanabyggðir á
vesturströnd Norður-Ameríku of
vestrænar.
Huginn réðst ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur og fór
inn í myrkustu innviði Amazon-
frumskógarins. „Þaðan hélt ég til
Perú, þar sem mestu menningar-
samfélög Suður-Ameríku eiga
upptök sín í Andersfjöllunum og
við strendurnar úti í eyðimörk-
inni. Ég hélt síðan förinni áfram
til Bólivíu, Argentínu og endaði
hana í Chile.“
Það er engum ofsögum sagt að
Huginn hafi ratað í hvert ævintýr-
ið á fætur öðru í Suður-Ameríku,
en sem dæmi um það lenti hann í
fimm ránstilraunum. „Ég lagði af
stað sem dæmigerður, afslappað-
ur Íslendingur en það gjörbreytt-
ist eftir komuna til Quito, höfuð-
borgar Ekvador, þar ég endaði
með þjófagengi á hælunum fyrstu
nóttina,“ segir hann og hlær við
tilhugsunina.
Huginn lenti líka í stjórnarbylt-
ingu í Ekvador og fékk að kenna á
afleiðingum byltingar sem hafði
átt sér stað í Bólivíu, þegar hann
þurfti að múta landamæravörðum
til að komast inn í landið. „Það ríkti
hálfgerð óöld í Bólivíu og herinn
sem hafði náð töluverðum völdum
styrkti stöðu sína með mútum.“
Ekki nóg með að Huginn kæm-
ist í kast við ýmsa misindismenn
heldur munaði tvisvar sinnum
minnstu að skaðræðisskepnur
yrðu honum að aldurtila. Í fyrra
skiptið var hann næstum bitinn af
krókódíl, en eitraður snákur í
Amazon kom við sögu í síðara til-
vikinu.
„Seinna skiptið atvikaðist með
þeim hætti að ég fékk magakveisu
nótt eina eftir að hafa neytt apa-
kjöts. Við þurftum tveir að bregða
okkur á útikamar í kolniðamyrkri.
Hinn fór á eftir mér og rak upp
skaðræðisóp þegar í ljós kom að
eitraður snákur, svokallaður „fer-
de-lance“, hafði hreiðrað um sig
inni á kamrinum. Hefði snákurinn
hæglega getað orðið okkur að
bana, enda algengur dauðsvaldur
í Amazon.“
Huginn ferðaðist mestmegnis
einn síns liðs þessa fimm mánuði
um Suður-Ameríku en kynntist þó
nokkrum ferðalöngum á leiðinni
af ýmsum þjóðernum, sem höfðu
sumir hverjir flakkað um árabil,
enda segir Huginn ferðalag af
þessum toga fljótt að snúast upp í
lífsstíl. Sjálfur hafi hann hins
vegar kosið að halda heim á leið og
sjái ekki eftir því.
Hægt er að fræðast betur um
ævintýri Hugins með því að verða
sér úti um eintak af bókinni Háska-
för um Suður-Ameríku.
Fimm ránstilraunir og banvænn snákur
Á www.chooseyourownlond-
on.com. má undirgangast
skemmtilegt persónuleikapróf
sem hjálpar hverjum og einum
að fá sem mest út úr ferð sinni
til London.
Ferðamálaráð Bretlands hefur
útbúið sérstakar síður fyrir Norð-
urlöndin og þar á meðal Ísland. Á
þessum síðum má undirgangast
skemmtilegt persónuleikapróf
sem gefur vísbendingu um hvers
kyns ferðamaður viðkomandi er.
Markmiðið með þessu er að auð-
velda fólki að finna uppáhalds-
staði sína í samræmi við niður-
stöður prófsins næst þegar það
heimsækir London.
Margir hafa nýtt sér þetta
skemmtilega próf og eru rúm 33
prósent þeirra Íslendinga sem
tekið hafa prófið sá ferðamaður
sem Svíarnir kalla „anglofiler“.
Það er sá ferðamaður sem heldur
mikið upp á Bretland og allt sem
breskt er. Þessi hópur hefur mik-
inn áhuga á enskri framleiðslu,
breskri veitingahúsamenningu,
pöbbum, listum, tónlist og skemmt-
analífi, að ógleymdum enska bolt-
anum. Aðrir heyra undir svokallað
þotulið sem vilja bara það „besta“
og vilja kanna nokkuð fínni staði í
London. „Good Time Guy/Girl“ er
annar flokkur en það er sá hópur
sem kýs að sofa út, versla á daginn
og skemmta sér svo fram á nótt.
Eftir þátttöku í prófinu fær við-
komandi sendan póst með upplýs-
ingum um þá staði og viðburði
sem líklegast væri að þeim líkaði
best miðað við niðurstöður könn-
unarinnar. Hægt er að taka þetta
skemmtilega ferðamannapróf á
vefslóðinni www.chooseyour-
ownlondon.com.
Sjálfskönnun
ferðamannsins