Fréttablaðið - 06.01.2007, Side 42

Fréttablaðið - 06.01.2007, Side 42
6 „Við opnuðum klukkan sex á miðvikudagsmorgun,“ segir Guð- rún Gísladóttir, framkvæmdastjóri og eigandi líkamsræktarstöðvar- innar Átaks á Akureyri, en starf- semin er komin úr 470 fm2 húsi yfir í glæsilegt 1.500 fm2 húsnæði. Þrátt fyrir að þrjár líkamsræktar- stöðvar séu á Akureyri segir Guð- rún að markaður sé til staðar fyrir stækkunina. FRÁBÆRT ÚTSÝNI ÚR POTTINUM „Þessi stöð er ein sú stærsta á landinu og sú flottasta, þótt ég segi sjálf frá,“ segir Guðrún og bætir við að húsnæðið sé glæsilegt í alla staði og þaðan sé fallegt útsýni. Tækjasalurinn sé jafn stór og húsið hafi áður verið og að boðið sé upp á nýjasta nýtt í tækjum. „Við erum með innbyggt sjónvarp í öllum upphitunartækjum, tvo þolfimisali, barnapössun, veitingasal, nudd, snyrtistofur og hvíldarhreiður auk heits potts á þaki hússins þar sem útsýnið yfir fjörðinn er frábært.“ Hönnun hússins er hugsuð út frá vatni sem passar vel við flæðarmálið fyrir utan. Víða má sjá rekavið og sjávargrjót til skreyting- ar og vatn rennur niður veggina í afgreiðslunni og myndar lítinn læk sem niðar inni á kaffihúsinu. Vegg- ina prýða listaverk eftir Margréti Jónsdóttur keramiklistakonu, kuð- ungar og skeljar. LYFTINGATÆKI FYRIR BÖRNIN Guðrún segir tilvalið fyrir fólk að mæta með börnin um helgar og nýta staðinn sem skemmtilegan fjölskyldustað. „Á meðan foreldr- arnir æfa geta börnin leikið sér í lyftingartækjum sem eru sérhönnuð fyrir börn og svo getur öll fjölskyld- an skellt sér í heita pottinn á þak- inu og notið útsýnisins og jafnvel fengið sér að borða á eftir svo þetta er mjög fjölskylduvænt.“ Kaffihúsið er opið öllum og þar er boðið upp á sælkeralokur frá Friðriki V og Bakaranum á brúnni. Ekki er nauð- synlegt að hafa kort í líkamsrækt- arstöðina til að fara í snyrtingu eða í pottinn á þakinu. „Viðskiptavinir Lauga í Reykjavík geta svo einnig nýtt sér þessa stöð og komið hing- að í eina viku í mánuði og okkar viðskiptavinir sömuleiðis æft þar á sama hátt,“ segir Guðrún. REIÐHJÓL FYLGIR ÁRSKORTI Hægt er að fá venjuleg áskriftar- kort til lengri eða skemmri tíma en einnig er boðið upp á platínukort, sem er árskort, þar sem tíu nudd- tímar eru innifaldir auk afsláttar af vörum og þjónustu, sloppa og handklæðis. Með öllum árskortum eða áskrift fylgir átján gíra reiðhjól á meðan birgðir endast. Guðrún er bjartsýn á að margir leggi leiðina í ræktina og sér í lagi núna stuttu eftir áramótin. „Auk alls þess sem við buðum áður upp á erum við núna komin með spinning, dans, fit pilates og unglinganámskeið í bootcamp. Þolfimitímarnir og boot- campið hafa verið vel sóttir og nú bindum við vonir við fit pilates en það eru boltatímar með styrkjandi æfingum þar sem djúpu vöðvarnir eru þjálfaðir. Ég býst við miklum straumi á næstunni og er mjög bjartsýn að fólk taki þessari stöð vel og hvet alla að koma sér af stað,“ segir Guðrún. Allar nánari upplýsingar má finna inni á heimasíðunni www.atakak.is. indiana@frettabladid.is brynhildurb@frettabladid.is Fjölskylduvæn stöð fyrir líkama og sál Líkamsræktarstöðin Átak á Akureyri var enduropnuð nú í vikunni í nýju húsnæði. Stöðin er hin glæsilegasta og skartar fallegu útsýni út á Eyjafjörð úr heita pottinum. { heilsublaðið }
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.