Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 46

Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 46
10 „Við höfum nú þegar hafið undirbúning fyrir gildistöku lag- anna og markmiðið er að gefa veitingamönnum og almenningi sem besta fræðslu um hvað lögin hafa í för með sér,“ segir Jakob- ína H. Árnadóttir, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð. Lýðheilsustöð er í forsvari fyrir undirbúning nýrra tóbaksvarnalaga og í samstarfi við Samtök ferðaþjón- ustunnar var útbúið kynningarefni um fyrirhugaða gildistöku þar sem helstu breytingar á tóbaksvarnalög- um eru útskýrðar með tilvísun til reynslu þeirra erlendis. Lögin hafa gefið góða raun í nágrannalöndun- um en markmiðið er að forðast áhrif óbeinna reykinga á starfsfólk. Sam- bærileg lög gilda einnig á Írlandi, Ítalíu, Möltu, í Noregi, Svíþjóð og Skotlandi ásamt mörgum ríkjum Bandaríkjanna en þar hafa rann- sóknir sýnt jákvæðar afleiðingar bannsins. Auk kynningarefnisins voru gefnir út tvenns konar límmiðar fyrir glugga veitinga- og skemmti- staða þar sem vakin er athygli á gildistökunni. Lýðheilsustöð vinn- ur einnig að rannsóknum á afleið- ingum laganna sem skiptast í fleiri liði. Þar verður viðhorf og hegð- un almennings kannað, heilsufar starfsmanna, breytingar á tíðni reykinga og efnahagsáhrif. „Rann- sóknir frá löndum með sambærileg lög sýna jákvætt viðmót í kjölfar gildistöku auk þess sem sala á tób- aki hefur minnkað í sumum lönd- um,“ segir Jakobína. Nú þegar eru mörg kaffihús orðin reyklaus og síðastliðin ár hefur hópur þeirra sem kjósa reyk- leysið aukist. „Tekjutap vegna lag- anna hefur verið óverulegt erlendis. Sem dæmi hefur velta veitingahúsa í New York aukist eftir lagasetn- inguna,“ segir Jakobína. Á Íslandi mun vinnueftirlit ásamt heilbrigðis- eftirliti í hverju sveitarfélagi fyrir sig fylgjast með því að lögunum verði framfylgt. „Enn er ekki ljóst hvaða afleiðingar fylgja brotum á lögunum en sennilega munu þau varða áminningum og dagsektum. Þó finnst mér sennilegt að flestir virði lögin,“ segir Jakobína. Þrátt fyrir að reykingar verði bannaðar á veitinga- og skemmti- stöðum verður enn leyfilegt að reykja á almannafæri en hugsan- lega verða einhverjar takmarkanir á svæðum tengdum veitingahúsum. - rh Reykingabann í sumar Veitinga- og skemmtistaðir á Íslandi verða reyklausir frá og með 1. júní samkvæmt nýjum tóbaksvarnalögum. Undirbúningur fyrir gildistöku laganna er nú þegar hafinn. Sérstakir skór með merkinu MBT hafa komið fram á sjónarsviðið á síðustu árum og aflað sér vinsælda. Rannsóknir sýna að notkun þeirra minnkar álag á ökkla, hné, mjaðmir og bak, sér í lagi mjóbak. Þannig er hægt að draga úr eymslum í þessum liðum. Ein besta forvarnaræfing gegn bakverkjum er að ganga reglulega, svo sem þrjátíu mínútna göngutúr. Skórnir skipta verulegu máli og MBT hafa reynst vel. Nafnið MBT þýðir Masei Barefoot Training og byggir á fótabeitingu berfættra Afríkubúa úti í náttúrunni enda er mannslíkaminn skap- aður til að hreyfa sig fótgangandi á ójöfnu u n d i r l a g i . S k ó s ó l i n n er hár og uppbyggður af sjö lögum sem saman mynda eins konar jafnvægisbretti. Betra er að byrja notkun skónna í smá skömmtum því fyrstu dag- ana getur orðið vart við harðsperrur í kálfavöðvum og víðar. Tugþrauta- kappinn Jón Arnar Magnússon hefur notað skóna í nokkur ár og til gam- ans má geta þess að margir frægir Hollywood-leikarar nota skóna, þar á meðal Angelina Jolie en hvort hún var með þá með sér við Jöku l sá r lón um árið vitum við ekki. MBT-skórn- ir eru eingöngu til sölu hjá viðurkennd- um MBT leiðbein- endum vegna þess að mjög mikilvægt er að nota þá rétt frá fyrsta degi. Þeir fást hjá Sjúkraþjálf- un Suðurnesja, Hafnargötu 15, Veggsporti, Dynj- anda og Intersporti í Reykjavík og Sportveri á Akureyri. Nánari upplýsingar er að finna á www.mbt.is - gun Góðir fyrir göngulagið MBT skófatnaður hefur reynst þeim einkar vel sem strítt hafa við eymsli í baki. { heilsublaðið } 29 vítamín og steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans Lífrænt Fjölvítamín Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum. V o t tað 100% lífræ nt Til að fá jafnmikið af nokkrum völdum næringarefnum og í dagskammti af Lifestream Spirulína þarf að borða: · 7 gulrætur (betakarotín) · 1 skál af fersku spínati (járn) · 1 skál af híðishrísgrjónum (kalíum) · 1 glas af mjólk (kalk) · 125 gr. nautakjöt (prótín + B12 vítamín) · 30gr. hveitigrassafa (blaðgræna) · 1 hylki Kvöldvorósarolía (GLA fitusýrur) Súrefnistæmir umbúðirnar til að vernda næringarefnin. Lifestream þörungarnir eru ómengaðir vegna þess að þeir eru ræktaðir í ferskvatni eftir ströngum gæðastaðli. ISO9001 · ISO14001 Aukið úthald, þrek og betri líðan Styrkir fljótt líkamann gegn kvefi og flensu WHO Alþjóðlega Heilbrigðisstofnunin telur hágæða Spirulina ákjósanlegan næringarauka fyrir börn og fullorðna. Mörg hundruð rannsóknir hafa verið gerðar á Spirulina og fjöldi þeirra hefur birst í virtum vísindaritum. Lifestream Spirulina eflir einbeitingu, gefur orku, dregur úr pirringi, sleni og sætindaþörf. Gott fyrir alla sem eru í vinnu, námi og vilja halda línunum í lagi. Greinilegur munur eftir nokkra daga inntöku Hress og hraust í ræktina og vinnu með Spirulina! Lifestream Spirulina gefur mér mjög mikla orku en ég finn ótrúlega .nniðaþk etgérage þnumnnik im Þó svo að ég borði mjög hollt fæði er það Spirulina sem gerir mér kleift að hafa orku í allt sem þarf að gera en ég er í skóla, vinnu, líkamsrækt og æfi fótbolti. Hef miklu meiri úthald og er hressari á morgnana. Daði R. Kristleifsson, 18 ára www.celsus.isGóð heilsa Byrjendanámskeið byrja 15. jan. Lifandi fæði námskeið 19-20. jan.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.