Fréttablaðið - 06.01.2007, Side 48

Fréttablaðið - 06.01.2007, Side 48
12 Margir foreldrar þekkja vandamál- in sem fylgt geta háttatíma barna sinna. Birgitta Jónsdóttir Klasen náttúrufræðingur heldur námskeið í þessum mánuði ætluð foreldrum sem vilja gera háttatímann að góðri stund. Birgitta segir að öll börn geti sofnað á innan við fimmtán mínút- um og hefur hún hjálpað mörgum foreldrum gegnum tíðina að koma börnum sínum niður á kvöldin. Námskeiðin verða tvö, annað fyrir foreldra barna á aldrinum átta mánaða til tveggja ára og hitt fyrir foreldra barna á aldrinum þriggja til sjö ára. Á námskeiðunum kennir Birgitta foreldrum hagnýtar aðferð- ir til að róa börn sín og svæfa á skömmum tíma en foreldrarnir mæta með börnin með sér á nám- skeiðið. Auk þessa mun Birgitta fara yfir kenningar í mataræði fyrir börn. Nánari upplýsingar um nám- skeiðin má finna á www.akademi- an.is. - jóa Svæft á korteri 16. og 17. janúar verða haldin námskeið fyrir foreldra sem hjálpa þeim að svæfa börnin sín á skömmum tíma. { heilsublaðið } Nú þegar margir standa frammi fyrir því að efna öll þau áramótaheit sem gefin voru í gullinni þoku kampa- víns og sprunginna flugelda er ekki úr vegi að fá ráðleggingar frá Val- gerði Magnúsdóttur sálfræðingi um það hvernig er best að koma sér í gang. „Áramótaheitin okkar snúast oft um að bæta heilsuna á einhvern hátt. Þegar við setjum okkur mark- mið af því tagi skiptir miklu máli að hugsa til langs tíma og halda ekki að það sé nóg að atast svolítið í nokkrar vikur og falla svo aftur í sama horf- ið. Best er að setja einföld og skýr markmið sem falla vel að daglegu lífi, móta daglegar venjur sem eru okkur í hag og leyfa þeim síðan að þróast yfir nokkurn tíma. Þannig gerum við ekki þær kröfur til okkar að við snúum öllu á haus í lífi okkar á stundinni og völdum okkur sjálf- um oft ómældum vandræðum með því. Markmiðin þurfa að vera „smart“, skammstöfun fyrir „skýr, mælanleg, áhugaverð, raunhæf og tímasett”“ Það þarf að vera skýrt hvers konar markmiði við ætlum að ná og það markmið þarf að vera raunhæft. Það þýðir ekki að ætla sér að hlaupa maraþon eftir nokkurra vikna þjálf- un eða að missa fjölda kílóa á fáum dögum. Við tímasetjum hvenær við ætlum að byrja og hvenær við ætlum að vera komin á gott ról. Það þýðir ekki að byrja í of miklum rykk, því þá gefumst við oft upp. Best er að setja okkar eigin markmið og finna leiðir sem henta okkur sjálfum, en ekki fá lánuð markmið eða viðmið frá öðrum. Það er auðveldara að ná mark- miðum sem eru okkur mikilvæg ef leiðin að þeim er áhugaverð líka. Það er ekki nóg að markmiðið sé spennandi í fjarska en leiðin ótrú- lega leiðinleg og erfið. Það er mikil- vægt fyrir úthald okkar að breyting- in á lífsstíl falli vel að þeim venjum sem við viljum halda og passi inn í daglegt líf. Við viljum geta mælt árangurinn okkar. Sá sem er að breyta holdafari eða bæta úthald getur mjög auðveld- lega fylgst með því hvernig gengur og í öðrum tilfellum er mikilvægt að finna aðferð til að meta árangurinn. Reyklausu dagarnir eða klukkutím- arnir eru mælieining sem og úthald- ið sem eykst, þó að ekki sé um nema mínútu í einu. Og allra best er að geta metið árangurinn með því að koma sér upp aðferðum til að meta bætta líðan. Ef okkur skrikar fótur og við föllum í freistni getum við lært eitthvað af því og snúið því þannig upp í góða reynslu. Við vinnum miklu betur með jákvæðu hugarfari og uppörvun frá okkur sjálfum því við erum okkar eigin bestu banda- menn. Best er að reyna að taka sem fyrst í taumana og læra af reynslunni að fyrirbyggja næsta bakslag, læra að þekkja ferlið og snúa af brautinni, helst auðvitað áður en fallið á sér stað. Fyrir þá sem eru að strengja sama áramótaheitið aftur og aftur getur verið gagnlegt að skoða af hverju það hefur ekki staðið áður og hverju á að breyta. Skorti okkur úthald, hefðum við þurft að velja leiðirnar betur, höfðum við stuðning og bandamenn? Það er mikilvægt að henda ekki öllu saman þegar okkur verður á í messunni heldur að leiðrétta stefnuna og halda ótrauð áfram. Áramótaheit á ekki að snúast um annaðhvort eða heldur jákvæða og skemmtilega lífsstílsbreytingu til frambúðar.“ - bb Áramótaheit ættu að vera til frambúðar Valgerður Magnúsdóttir sálfræðingur segir það lykilatriði að setja markmið til langs tíma. Sítrusávextir geta komið í veg fyrir krabbamein í munni hjá karlmönnum, samkvæmt rann- sókn sem unnin var í Harvard háskóla nýverið. Með því að borða eina appelsínu á dag eða hálfan greipávöxt er hægt að draga úr hættunni á krabba- meini í munni um allt að 40 prósent. Vísindamenn kom- ust að þessari niðurstöðu eftir að hafa fylgst með 42 þúsund mönnum í 16 ár. „Í C-vítamíni er mikið af andoxunarefnum sem vernda frumur gegn ill- kynja breytingum,“ segir Nancy Maserejian, Sc.D., ein þeirra sem stýrðu rannsókninni. „Hins vegar er það óljóst hvort þessi varnarviðbrögð eru vegna C- vítamínsins eða hvort önnur efni í ávöxtunum eru að verki.“ Sem þýðir að ekki er víst að C- vítamín eitt og sér s k i l i sama árangri. Sítrusávextir 15% afsláttur af Magimix kaffivélunum M100 Nespresso Verð frá kr.: 19.295 M200 Automatic Nespresso Verð frá kr.: 51.340 Aðrir söluaðilar: Magimix kaffivélin er einstök að allri gerð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.