Fréttablaðið - 06.01.2007, Qupperneq 50
14
Halldóra Sigurdórsdóttir hafði unnið
sem blaðamaður í fjölda ára þegar
hún veiktist illa af vefjagigt. Í leit
sinni að bata studdist hún við óhefð-
bundnar lækningar og var noktun
blómadropa ein þeirra leiða sem
Halldóra kannaði í baráttu sinni.
Halldóra hafði safnað jurtum og
sveppum til eigin nota í yfir tuttugu
ár en þegar hún upplifði hvaða
lækningamátt droparnir höfðu að
geyma hóf hún nám í gerð og notk-
un blómadropanna.
„Mig langaði að borga til baka og
miðla þeim bata sem ég hafði öðlast
með óhefðbundnum lækningum,“
segir Halldóra. Meðan á náminu
stóð var hún með mörg tilraunadýr
en fólki leið svo vel af dropunum
að Halldóra þurfti að hafa sig alla
við að námi loknu til að anna eft-
irspurn fólks á dropunum. Auk þess
að nýta sér mátt blómadropanna
breytti Halldóra algjörlega um lífs-
stíl og þar á meðal mataræði.
Um reynslu sína af sjúkdómsbar-
áttunni og vitneskju sína um óhefð-
bundnar lækningar skrifaði Hall-
dóra bók, „Leiðin að bættri líðan“,
sem kom út árið 2002. Halldóra
er í dag vinsæll námskeiðahaldari
þar sem hún fræðir fólk um óhefð-
bundnar lækningar, fjallar um nær-
ingu, eldar hollan og góðan mat og
kynnir kínversku hreyfingatæknina
Qi Gong. Halldóra veitir alhliða
heilsuráðgjöf en samt eru blóma-
droparnir ávallt vinsælastir.
„Langflestir sem koma til mín
þjást af depurð, streitu eða orku-
leysi. Droparnir hentar mjög vel við
því en eru einnig góðir við kvíða,
svefnleysi, lélegri sjálfsímynd og
henta jafnt börnum sem fullorðn-
um,“ segir Halldóra. Um 75 íslenskar
jurtir eru í dropunum sem Halldóra
bæði fær frá öðrum eða tínir sjálf,
blöndurnar eiga sér þó ríka hefð og
eru alls ekki nýjar af nálinni.
„Mennirnir hafa notað jurtir til
matar og lækninga frá upphafi.
Náttúran á sitt eigið apótek og þar
eru oft lausnirnar sem við erum að
leita að,“ segir Halldóra.
„Það eru engin ávanabindandi
efni í dropunum. Fyrir flesta dugar
að taka dropana í styttri tíma til að
rjúfa vítahring sem fylgt getur ein-
hverskonar vanlíðan.
Blómadropar eru mikið notaðir í
löndum eins og Bandaríkjum, Ástr-
alíu, Þýskalandi og Frakklandi og
segir Halldóra að allir geti nýtt sér
kraft blóma og jurta.
„Lífið er ævintýri og það er ekki
lengd þess sem skiptir máli heldur
hvernig því er lifað,“ segir Halldóra
brosandi.
Nánari upplýsingar um heilsu-
ráðgjöf, námskeið og blómadropa
Halldóru er að finna hjá www.viki.
is. - rh
Kraftur og orka blómanna
Halldóra Sigurdórsdóttir öðlaðist bata af vefjagigt með óhefðbundnum lækningum.
Eftir veikindin tók hún sig til og skrifaði bókina „Leiðin að bættri líðan“.
Öryggishnappur Securitas er
lítið og einfalt tæki sem auðvelt
er að ýta á ef óhapp eða skyndi-
leg veikindi ber að höndum.
Flestir kjósa að dvelja heima
hjá sér sem lengst þrátt fyrir
hækkandi aldur, fötlun eða veik-
indi. Þar hefur öryggishnappur
Securitas komið mörgum að
gagni. Hnappurinn er fyrirferð-
arlítill. Hann er borinn um únlið
eða háls þannig að auðvelt sé
að ýta á hann ef eitthvað verður
að. Þegar þrýst er á hann berast
samstundis boð til stjórnstöðv-
ar Securitas á Neyðarlínunni í
112 og beint talsamband opn-
ast við sérþjálfað starfsfólk auk
þess sem öryggisvörður mætir á
staðinn. Einnig er haft samband
við aðstandendur.
Greitt er vægt mánaðargjald
fyrir öryggishnappinn, búnað-
inn og þá þjónustu sem honum
fylgir.
Öryggi í áskrift
Á vef Lýðheilsustöðvar stendur yfir samkeppni fyrir unglinga á aldrinum
15-20 ára sem annaðhvort vilja hætta að reykja eða eru reyklausir. Svara
þarf spurningum um reykingar og skrifa örsögu sem tengist reykingum.
Dregið verður úr hópi keppenda þar sem tvær utanlandsferðir verða í boði,
auk þess sem áhugaverðar örsögur verða verðlaunaðar vikulega. Sjá nánar:
www.lydheilsustod.is.
Frítt til Evrópu fyrir
reyklausa unglinga
Nám
skeiðin hefjast 8.janúar mánudag
inn
ÁTTU VON Á BARNI?
Við í Hreyfilandi bjóðum upp Meðgöngujóga
og Bumbufimi®
Mæðrafimi® •
Bumbufimi® • Meðgöngujóga • Snillingafimi® fyrir
börn 3-12 ára • Hreyfifimi® fyrir börn 1-3 mánaða •
Gþ-fimi® fyrir börn 3-5 ára • Tónagull tónlistanámskeið
ERTU MEÐ
NÝFÆTT BARN
og vilt koma þér í fyrra form
á heilsusamlegan hátt?
MÆÐRAFIMI® 3X Í VIKU!
Byrjaðu árið með því að hugsa vel um heilsu þína!
Kíktu á vefsíðu okkar www.hreyfiland.is eða hringdu í síma 577 2555
2 FYRI
R 1
fulleldað, tilbúið á 5 mín.
Heilsubuff
ÁN MSG
{ heilsublaðið }