Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 54

Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 54
18 { heilsublaðið } Hjá Dansskóla Sigurðar Hákonar- sonar er hægt að taka þátt í mörgum skemmtilegum dansnámskeiðum. Í boði er magadans, salsa, hefð- bundin samkvæmisdansanámskeið, freestyle og jazzdans. Edgar Konráð Gapunay, danskennari og skóla- stjóri, segir dansinn rækta bæði sál og líkama. „Fólk fær allsherjarhreyfingu fyrir líkamann með því að dansa. Dansinn reynir á samspil margra líkamshluta og vöðvar sem lengi hafa legið í dvala fá hreyfingu á ný.“ Edgar segir einnig að fólk ætti ekki að láta líkamlegt ástand koma í veg fyrir að dansinn sé lát- inn duna. „Í sumum tilfellum hafa læknar ráðlagt hjartsjúku fólki, sem ekki má við of miklu álagi, að stunda dans. Einnig er dans mjög góður fyrir þá sem eru slæmir í baki þar sem dansinn líkist mjög göngu sem oft er mælt með fyrir bakveika. Fólki er velkomið að hafa samband við okkur og athuga hvort líkam- legt ástand þeirra þurfi að hamla þeim að dansa. Í flestum tilfellum er nóg að sleppa þeim hluta dansins sem reynir mest á, eins og hoppum og heljarstökkum,“ segir Edgar og hlær. Salsanámskeið og magadans- námskeið eru meðal þeirra nýjunga hjá Dansskóla Sigurðar Hákonar- sonar sem eru hvað vinsælastar. „Á þessum námskeiðum dönsum við mikið með frjálsri aðferð og því henta þau vel fyrir þá sem vantar dansfélaga, hvort sem það eru karl- ar eða konur,“ segir Edgar. „Við kennum sporin sem eru miðuð fyrir einstaklinga og svo þegar við döns- um paraspor þá róterum við dans- félögunum svo pörin haldast ekki eins allt námskeiðið. En stærstu námskeiðin hjá okkur eru auðvitað samkvæmisdansarnir. Þau nám- skeið eru fjórtán vikur meðan önnur námskeið eru að meðaltali tíu vikur. Svo eru í boði framhaldsnámskeið svo dansinn þarf ekki að taka enda. Allir sem hafa komið og dansað hjá okkur hafa skemmt sér konunglega. Og ég trúi því að árangurinn af hreyfingunni sé alltaf betri þegar þú skemmtir þér meðan á henni stendur.“ johannas@frettabladid.is Bæði skemmtun og líkamsrækt Líkamsrækt þarf ekki alltaf að fara fram á líkamsræktarstöðvum kringum lóð og hlaupabretti. Einnig má rækta lík- ama og sál með því að tipla glaður um dansgólfið í syngjandi sveiflu. Matur fyrir heilann Karrí gæti hjálpað til við að lækna alzheimer-sjúkdóminn. Vísindamenn í UCLA með- höndluðu frumur sem voru sýktar af alzheimer með efni sem unnið var úr kúrkúm- in, gulu efni sem finnst í túrmerik sem er krydd í karríi. Niður- stöðurnar voru þær að frum- urnar styrktust í helmingi þeirra sjúklinga sem til- raun var gerð á með efnið. Vísindamennirnir von- ast til að þeir geti í framhaldi af þessu þróað meðferð til að hjálpa alzheimer-sjúklingum. Karrí
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.