Fréttablaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 54
18 { heilsublaðið }
Hjá Dansskóla Sigurðar Hákonar-
sonar er hægt að taka þátt í mörgum
skemmtilegum dansnámskeiðum.
Í boði er magadans, salsa, hefð-
bundin samkvæmisdansanámskeið,
freestyle og jazzdans. Edgar Konráð
Gapunay, danskennari og skóla-
stjóri, segir dansinn rækta bæði sál
og líkama.
„Fólk fær allsherjarhreyfingu
fyrir líkamann með því að dansa.
Dansinn reynir á samspil margra
líkamshluta og vöðvar sem lengi
hafa legið í dvala fá hreyfingu á
ný.“ Edgar segir einnig að fólk
ætti ekki að láta líkamlegt ástand
koma í veg fyrir að dansinn sé lát-
inn duna. „Í sumum tilfellum hafa
læknar ráðlagt hjartsjúku fólki,
sem ekki má við of miklu álagi, að
stunda dans. Einnig er dans mjög
góður fyrir þá sem eru slæmir í baki
þar sem dansinn líkist mjög göngu
sem oft er mælt með fyrir bakveika.
Fólki er velkomið að hafa samband
við okkur og athuga hvort líkam-
legt ástand þeirra þurfi að hamla
þeim að dansa. Í flestum tilfellum
er nóg að sleppa þeim hluta dansins
sem reynir mest á, eins og hoppum
og heljarstökkum,“ segir Edgar og
hlær.
Salsanámskeið og magadans-
námskeið eru meðal þeirra nýjunga
hjá Dansskóla Sigurðar Hákonar-
sonar sem eru hvað vinsælastar.
„Á þessum námskeiðum dönsum
við mikið með frjálsri aðferð og því
henta þau vel fyrir þá sem vantar
dansfélaga, hvort sem það eru karl-
ar eða konur,“ segir Edgar. „Við
kennum sporin sem eru miðuð fyrir
einstaklinga og svo þegar við döns-
um paraspor þá róterum við dans-
félögunum svo pörin haldast ekki
eins allt námskeiðið. En stærstu
námskeiðin hjá okkur eru auðvitað
samkvæmisdansarnir. Þau nám-
skeið eru fjórtán vikur meðan önnur
námskeið eru að meðaltali tíu vikur.
Svo eru í boði framhaldsnámskeið
svo dansinn þarf ekki að taka enda.
Allir sem hafa komið og
dansað hjá okkur hafa
skemmt sér konunglega. Og
ég trúi því að árangurinn
af hreyfingunni sé alltaf
betri þegar þú skemmtir þér
meðan á henni stendur.“
johannas@frettabladid.is
Bæði skemmtun og líkamsrækt
Líkamsrækt þarf ekki alltaf að fara fram á líkamsræktarstöðvum kringum lóð og hlaupabretti. Einnig má rækta lík-
ama og sál með því að tipla glaður um dansgólfið í syngjandi sveiflu.
Matur fyrir
heilann
Karrí gæti hjálpað til við að
lækna alzheimer-sjúkdóminn.
Vísindamenn í UCLA með-
höndluðu frumur sem voru
sýktar af alzheimer með efni
sem unnið var úr kúrkúm-
in, gulu efni sem
finnst í túrmerik
sem er krydd í
karríi. Niður-
stöðurnar voru
þær að frum-
urnar styrktust
í helmingi þeirra
sjúklinga sem til-
raun var gerð á með
efnið. Vísindamennirnir von-
ast til að þeir geti í framhaldi
af þessu þróað meðferð til að
hjálpa alzheimer-sjúklingum.
Karrí