Fréttablaðið - 06.01.2007, Side 66
{ heilsublaðið }
„Við sáum brýna þörf á íslensku
fræðsluefni um parkinson-sjúkdóm-
inn þegar við unnum á taugadeild
Landspítalans,“ segir Þórhildur
Ólafsdóttir sjúkraþjálfari sem nýlega
gaf út fræðsluhefti og mynddisk um
sjúkdóminn ásamt samstarfskonu
sinni, Önnu Kristrúnu Gunnarsdótt-
ir. Verkefnið er unnið í samvinnu
við Parkinsonsamtökin á Íslandi
sem einnig tekur að sér dreifingu.
„Helstu einkenni sjúkdómsins eru
hreyfierfiðleikar og vöðvastirðleiki
þar sem lyfjameðferð og markviss
líkamsþjálfun geta bæði seinkað
og dregið úr sjúkdómseinkennum,“
segir Þórhildur. Flestir vita hve mik-
ilvæg reglubundin hreyfing er, en
fyrir Parkinson-sjúklinga er hún
algjört lykilatriði. „Hópþjálfun er
mjög mikilvæg, en þar sem sjúk-
dómurinn er mjög sveiflukenndur
er líka gott að hafa mynddiskinn
heima til að geta gert æfingar þegar
líðanin er góð,“ segir Anna. Æfing-
arnar á myndbandinu skiptast eftir
erfiðleikastigum, taka fyrir slökun
og gefa góð ráð um dagsskipu-
lag. Parkinson-samtökin á Íslandi
sjá um að dreifa efninu til félags-
manna, fagfólks og aðstandenda,
en ár hvert greinast um 40 manns
með sjúkdóminn þar sem flestir
eru 60 ára eða eldri. „Rétt þjálfun
eykur lífsgæði og getur stuðlað að
auknu sjálfstæði þessa hóps. En auk
þess er mikilvægt að aðstandendur
og fagfólk geti aukið við þekkingu
sína,“ segir Þórhildur. Fræðsluefnið
má nálgast hjá Parkisonsamtökum
Íslands. Sjá nánar: www.parkinson.
is. - rh
Aukin lífsgæði fyrir
Parkison-sjúklinga
Nýlega kom út fræðsluefni með æfingamyndbandi fyrir
Parkinson-sjúklinga. Markmiðið er þessi hópur fái lík-
amsþjálfun við hæfi auk þess að fræða og auka skilning
á sjúkdómnum.
EVERY BODY TELLS A STORY
PÚLSMÆLAR
Útilíf Smáralind, Kringlunni og Glæsibæ // Halldór Ólafsson Akureyri
Afreksvörur // Fitness Sport // Hlaup.is // Hreysti // Intersport // Markið
Trönuhrauni 6 • 220 Hafnarfjörður • Sími: 565 1533 • Fax: 565 3258 • Netfang: polafsson@polafsson.is
Púls - hlaupa - fitness - kaloriu og
skrefamælar í miklu úrvali
Það er nauðsynlegt fyrir börnin að borða vel
á morgnana. Þess vegna viljum við gefa þeim
morgunkorn sem þeim finnst gott á bragðið
og er líka hollt. Blanda af fjölkornastjörnum
og heilhveitihringjum með súkkulaðibragði er
góður pakki – hentar vel fyrir alla fjölskylduna.
Weetos eru vítamín- og járnbættir
heilhveitihringir með góðu súkkulaðibragði.
GEFUM KRÖKKUNUM
GÓ‹AN PAKKA!
Vítamínbætt
Heilhveitihringir og fjölkornastjörnur
Heilsukolvetni (Prebiotic)
Gott brag›
Lágt innihald metta›rar fitu
STJÖRNU-WEETOS
Multigrain Stars
H
eil
sukolvetni
Prebiot
ic
DANS
Barnadansar
Salsa
Samkvæmisdansar
Magadans
Freestyle-Jazzballet.
Byrjendur og framhald
Starfsmanna og stéttarfélög veita
styrki vegna dansnámskeiða
Innritun og upplýsingar í síma
564-1111 eða www.dansari.is
Allir þeir sem huga að heilsunni
eiga sitt uppáhaldsdót sem veitir
þeim gleði á einn eða annan máta.
Sumir eiga rándýr og háþróuð tól
og tæki sem hjálpa við að ná betri
árangri í líkamsræktinni. Aðrir
huga að andlegri líðan og enn
aðrir kjósa einfaldlega að dekra
við líkamann. Hér koma nokkrar
hugmyndir að nýjum heilsuleik-
föngum, ef svo má að orði komast,
sem ættu að geta glatt einhverja.
Heilsuleikföng