Fréttablaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 68
32 { heilsublaðið }
„Við höfum verið lengi í samstarfi
við þýska rúmaframleiðandann
Lattoflex, sem hefur verið í farar-
broddi í þróun heilsurúma í hálfa
öld. Lattoflex var meðal annars
fyrsta fyrirtækið til að kynna rimla-
rúmbotna á sínum tíma. Síðan þá
hefur mikið vatn runnið til sjávar
og hefur framleiðandinn nú sett
á markað heilsurúmið Winx sem
óhætt er að fullyrða að eigi sér enga
hliðstæðu,“ segir Agnar.
Að því er segir í fréttatilkynn-
ingu frá Eirbergi er Winx300 rúm-
kerfið frá Lattoflex búið nýjum
sérhönnuðum vængjum sem stuðla
að bættu blóðflæði í líkamanum.
Álagspunktar eru hverfandi vegna
vængjanna, sem einnig virkja eðli-
legar hreyfingar í svefni og því
hvílist líkaminn betur. Vængjakerf-
ið veitir einnig fullkominn stuðning
við allan líkamann, óháð þyngd
hvers og eins. Rúmin eru að auki
stillanleg undir baki og öxlum eftir
breytilegum þörfum hvers og eins.
„Þessi rúm eru fyrst og fremst
hönnuð til að varna legusárum og
við höfum því mikið verið að selja
rúm frá Lattoflex til heilbrigðis-
stofnana. Við erum meðal annars
eini birgirinn í sjúkrarúmum næstu
tvö árin. Hins vegar er deginum
ljósara að þessi rúm eru alveg
eins góð fyrir almenning. Ein-
faldlega vegna þess að rúmin eru
alveg ótrúlega þægileg. Þess vegna
fannst okkur rétt að láta almenn-
ing njóta þeirra líka.“
Ný hönnun heilsurúma
Eirberg ehf. er söluaðili nýs sérþróaðs heilsudýnukerfis. Agnar H. Johnson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir hönnunina á dýnunum vera einstaka.
Í fallegu gömlu húsi við Viðjulund
1 á Akureyri er mannræktarstöðin
Yogalundur. Stöðin er í raun fimmta
barn Höllu Stefánsdóttur, fjögurra
barna móður, jógakennara og einka-
þjálfara með meiru, en þar hafa auk
hennar hreiðrað um sig hómópati,
nuddari, reikimeistari, heilari og
höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari
ásamt öðrum sem beita heildrænum
meðferðum. Yogalundur hefur verið
starfandi í rúmt ár. „Ég tók staðinn
á leigu í ágúst í fyrra og hann leit
þá allt öðruvísi út. Við brutum niður
veggi og settum upp aðra, máluð-
um og gerðum það sem gera þurfti,“
segir Halla og vill koma á framfæri
þökkum til allra þeirra sem lögðu
hönd á plóginn. „Þremur vikum
eftir að ég kom hér inn var stöðin
opnuð en í millitíðinni fór ég suður
í viku endurmenntun í jóga.“
Halla hefur mjög langa reynslu
af kennslu í líkamsrækt og hefur
unnið með ólíkum hópum. „Ég hef
til dæmis unnið með geðdeild FSA
frá því 1992 þar sem ég fékk svolítið
frjálsar hendur. Ég er þannig kenn-
ari að ég fer ekki eftir bókstaf heldur
legg áherslur eftir þörfum nemend-
anna og sá strax að ekki væri nóg
að kenna þessum hóp bara leikfimi
heldur væri mikil þörf á teygjum og
og djúpslökun. Seinna bætti ég svo
við ropejóga sem gafst einstaklega
vel. Ropejóga kveikir á gleðiefna-
samböndunum, gefur jafnvægi og
hjálpar okkur að ná betri stjórn á
huganum. Ég hef líka starfað með
fótboltaliðum, körfuboltaliðum og
meistaradeild KA og þegar ég var
með þeim fyrir nokkrum árum var
meiðslatíðni minni og þeir náðu
betri árangri í sinni grein.“ Halla
hefur einnig þjálfað keppnishóp-
inn í sundfélaginu Óðni og íþrótta-
kennara. „Jóga er gott fyrir alla
því það stuðlar að bættu jafnvægi
líkama og sálar og hér í Yogalundi
er markmiðið að sem flestir finni
þetta jafnvægi í vingjarnlegu og
afslöppuðu umhverfi,“ segir Halla
að lokum. Í Yogalundi hefst jóga-
kennslan klukkan sex á morgnana
og þangað eru allir velkomnir. - bb
Jafnvægi og hlýja í Yogalundi
Halla Stefánsdóttir jógakennari rekur mannræktarstöðina Yogalund. Í Yogalundi er
boðið upp á ýmsar heildrænar meðferðir og auðvitað jóga í þægilegu andrúmslofti.
BYRJE
NDANÁ
MSKEIÐ
10 ÁRA
OG ELD
RI ERU
Að HE
FJAST
BYRJE
NDUR 6
-9 ÁRA
EKKI Þ
ESSA Ö
NN