Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 70
34
Bailin vaxtamótunarmeðferð
hefur verið í boði hér á landi í rúmt
ár. Meðferðin er norsk að uppruna
og eru starfræktar nokkur hundruð
stofur í fjórtán mismunandi lönd-
um víða um heim.
Bailinmeðferðin er þríætt. Fyrst
bera að nefna andlega þjálfun þar
sem hlustað er á hvatningar og
fræðsludiska í hverri meðferð. Svo
er þjálfun í tölvustýrðu þjálfunar-
tæki sem er einstaklingsbundin
meðferð þar sem notast er við raf-
leiðni. Að lokum eru veittar leið-
beiningar um mataræði þar sem
unnið er með þarfir hvers og eins.
Jakobína Flosadóttir hjá Kosta-
konum segir meðferðina henta vel
fyrir þær konur sem eiga erfitt með
að stunda líkamsrækt vegna gigt-
ar, bakverkja eða annarra heilsu-
vandamála. „Bailine er einnig til-
valið fyrir konur sem nýlega hafa
eignast barn þar sem meðferðin
hjálpar til við að styrkja grindar-
botnsvöðvana,“ segir Jakobína.
„Konur hafa líka séð góðan árang-
ur á stöðum eins og baki, innri
lærum og mjöðmum, þeim stöðum
sem getur reynst erfitt að styrkja
og grenna með venjulegri líkams-
rækt.“
Konur átján ára og eldri geta
fengið ókeypis prufutíma hjá
Kostakonum. Nánari upplýsingar
má finna á www.bailine.is.
Bailine meðferð
fyrir kroppinn
Kostakonur í Vegmúla bjóða upp á Bailine vaxtamótunar-
meðferð fyrir konur.
„Andleg líðan hefur lengst af orðið
útundan í heilsugæslu kvenna á
meðgöngu og eftir fæðingu. Ef
spurt var um hana var það yfirleitt
gert með einni setningu og afgreitt
á fremur yfirborðslegan hátt,“ segir
Marga og heldur áfram: „Nú höfum
við í höndunum próf sem eru notuð
víða um heim til að meta líðan
konunnar með nákvæmum hætti.
Það er kölluð skimun. Ef þau próf
benda til vanlíðunar er það hlut-
verk fagfólks að bregðast við með
frekari viðtölum og stuðn-
ingi.“
Marga segir miklu máli
skipta hvernig prófið sé
lagt fyrir. „Í Bretlandi hefur
komið í ljós að þó að svona
skimun sé fastur liður í
heilsugæslunni þá svindlar
um helmingur kvennanna
á prófinu. Þær halda að
verið sé að leita að einhverj-
um geðrænum vandamálum
sem þær vilja ekki að aðrir
viti um. Hér á landi höfum
við ekki gert sambærilega
könnun og vitum því ekki
hvernig íslenskar konur eru
almennt stemmdar fyrir
skimuninni. Þó er ljóst að ef
ekki er staðið rétt að henni
þá gefur hún ranga mynd
og fjöldi kvenna sem þyrftu
á stuðningi að halda flýtur
fram hjá.“
Marga hefur haldið nám-
skeið fyrir hjúkrunarfræðinga
hér á landi þar sem hún
kennir úrræði sem draga úr vanlíð-
an barnshafandi kvenna. Hún segir
námskeiðin hafa skilað mælanleg-
um árangri. „Á heilsugæslustöðvum
er víða skimað fyrir líðan kvenna
á meðgöngu og eftir fæðingu og
heimsóknum fjölgað til þeirra sem
þurfa þess með. Könnun leiddi í
ljós að þar sem hjúkrunarfræðingar
höfðu kynnt sér meðferðarúrræðin
höfðu sjötíu prósent kvenna fengið
bata á sjötta mánuði eftir fæðingu.
En á þeim heilsugæslustöðvum
sem ekki höfðu fólk með viðbótar-
menntun á þessu sviði höfðu fimm-
tíu prósent kvennanna náð sama
árangri. Þannig var greinilegt sam-
hengi á milli þekkingar fagfólksins
og líðanar kvennanna.“
gun@frettabladid.is
Meta þarf andlega líðan
kvenna á meðgöngunni
Mæður finna oft fyrir depurð í kringum barnsburð. Marga Thome prófessor segir
ljósmæður og hjúkrunarfræðinga í lykilstöðu til að kanna andlega líðan þeirra og veita
stuðningsmeðferð eftir þörfum.
7. Íslandsmeistaratitlar og 5. silfur
á síðasta Íslandsmeistaramóti
Nýtt tímabil að hefjast !
B
O
X
B
O
X
hollari næring
hreinni húð
betri líðan
hraustlegra útlit
m
a
ria
co
sta
n
tin
o
i
f
á
maria costantino
Bók um hreinsun óæskile
gra efna úr líkamanum
{ heilsublaðið }