Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 73
37
Hvaða krydd eru hollust? Ítalsk-
ir vísindamenn rannsökuðu
algengustu kryddin í þeim til-
gangi að mæla andoxunarefni
þeirra. Þrátt fyrir að lárviðarlauf
og saffron tróni efst á listanum,
sem þeir unnu í kjölfarið, segja
þeir að fátt skáki gamla góða
svarta piparnum.
Magn andoxunarefna í kryddi
(millímól í kílói)
Saffron 53
Lárviðarlauf 47,9
Rósmarín 44
Paprika 40
Svartur pipar 37
Oreganó 30,7
Timjan 30,5
Salvía 23,4
Basilíka 21,8
Tíu bestu
kryddin
{ heilsublaðið }
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
9
5
1
8
Það er góður siður
að borða alltaf morgunmat
Þeir sem borða morgunmat eru grennri
Það er útbreiddur misskilningur að það sé auðveldara að
grennast ef morgunverði er sleppt. Þvert á móti þá sýna
rannsóknir að þeir sem borða morgunmat eru alla jafna
grennri en þeir sem sleppa því. Ástæðan er m.a. sú að þeir
sem sleppa morgunverði hættir til að næla sér oftar í aukabita
til að bæta sér upp slen og orkuleysi. Vendu þig á að borða
alltaf morgunmat. Það tekur bara fimm mínútur að fá sér skál
af Special K með léttmjólk eða undanrennu og þú nýtur þess
langt frameftir degi.
Morgunmatur kemur brennslunni í gang og gefur þér orku
til að byrja daginn. Special K er bragðgóður og hressandi
morgunmatur og með honum færðu mörg lífsnauðsynleg
vítamín og síðast en ekki síst járn.
„Ég á það til að gleyma … ýmsu!“
„Þó ég fari aldrei út úr húsi án þess að borða morgunmat, gleymi ég iðulega að setja
diskinn í uppþvottavélina. Skil hann bara eftir á eldhúsborðinu. Ég byrja líka oft á að
segja fólki brandara sem ég hef heyrt en man svo ekki hvernig þeir enda.“
Hulda Björk Garðarsdóttir, óperusöngkona
Tíu leiðir í átt að heilbrigðara lífi
1.Hættu að reykja. Ef uppáhaldsmaturinn þinn myndi innihalda 400 eiturefni og 60 þekkt
krabbameinsvaldandi efni, myndir þig samt langa
í matinn? Með því að hætta að reykja eykur þú
líka heilbrigði þeirra sem eru í kringum þig.
2.Reykir þú ekki er besta leiðin að bættri heilsu að borða að minnsta kosti fimm
skammta af grænmeti og ávöxtum á dag. Mundu
að glas af ósykruðum appelsínusafa telst sem
einn skammtur.
3.Til að koma í veg fyrir skapsveiflur er gott að borða lítillega á fjögurra klukkutíma
fresti. Látir þú líða meiri tíma á milli snæðinga
en fjóra tíma verður líkaminn ansi pirraður og
þú finnur vel fyrir því.
4.Ef þú byrjar daginn á því að fá þér egg hjálpar það við að minnka kaloríuneyslu
yfir daginn um 400 kaloríur. Þetta kemur fram í
rannsókn á vegum bandarísku offitustofnuninn-
ar Rochester Centre.
5.Skiptu um rúmdýnu á sjö til tíu ára fresti til að koma í veg fyrir bakmeiðsli. Á meðan
er gott að snúa dýnunni að minnsta kosti einu
sinni í mánuði til að slétta úr svefndældinni sem
myndast eftir þig.
6.Líkamar okkar eru gerðir til að hreyfa þá. Gerðu hjartanu góðan greiða og fleygðu
stressinu í ruslið með því að hreyfa þig. Nokk-
ur skref geta gert gæfumuninn. Gakktu í búðina,
farðu fyrr úr strætó. Leggðu bílnum fjær vinn-
unni.
7.Drekktu sjö til átta glös af vatni á dag.
8.Fáðu snertingu. Vertu dugleg/duglegur að faðma ættingja, vini, börn og maka. Eða
kauptu þér gæludýr. Snerting hjálpar okkur
öllum að bættri heilsu og hamingjuríkara lífi.
9.Ekki láta vinnuna eyðileggja fyrir þér frí-dagana. Notaðu frídagana til að slaka á og
endurhlaða batteríin en ekki til að sinna auka
verkefnum eða stunda fjarvinnu.
10. Hláturinn lengir lífið og hefur það verið sannað að góður skammtur af hlátri
tekur nokkur ár af lúinni sál. Gefðu þér tíma til
að hlæja með vinum, horfa á fyndið sjónvarps-
efni eða lesa góða grínbók.