Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 86

Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 86
T ony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, hefur til dæmis boðað afsögn sína fyrir haustið. Reiknað er með að hann geri nán- ari grein fyrir því í mars og boði þá jafnframt til kosninga. Búist er við að þar etji Gordon Brown fjár- málaráðherra kappi við David Cameron, leiðtoga Íhaldsflokks- ins, um forsætisráðherraembætt- ið. Stríðið í Írak verður í fréttum meira og minna allt árið, rétt eins og á síðasta ári, hvort sem Banda- ríkjamenn byrja að draga herlið sitt til baka þaðan eða ekki. Núna strax eftir helgina er reiknað með að Bush Bandaríkjaforseti skýri frá breyttri stefnu sinni gagnvart Írak og bandarískir fjölmiðlar hafa nú þegar skýrt frá væntan- legum mannabreytingum í tengsl- um við það. Á árinu þarf Bush að glíma við nýjan meirihluta andstæðinga sinna á Bandaríkjaþingi. Demó- kratar krefjast þess að hann hefji sem fyrst brottflutning hersins frá Írak, en Bush er tregur til þess, hefur jafnan sagst vilja sjá merkjanlegan árangur af stríðs- rekstrinum áður en honum verði hætt. Enginn árangur er þó í sjón- máli og ólíklegt að demókratar sýni mikla biðlund. Átök sjía og súnnía í Írak hafa líka áhrif langt út fyrir landamær- in. Íran hefur til dæmis staðið við bakið á sjíum í Írak og Sádi-Arab- ía hefur heitið íröskum súnníum sínum stuðningi, þannig að lítið þarf til að stríðið í Írak breiðist út til nágrannalandanna með einum eða öðrum hætti. Átökin í Palestínu verða enn sem fyrr áberandi í fjölmiðlum, þótt erfitt sé að sjá hvert stefnir í þeim langdregna harmleik. Hrak- farir ísraelska hersins í Líbanon síðasta sumar og sífelldar skærur á Gazasvæðinu gera það að verk- um að Ehud Olmert, forsætisráð- herra Ísraels, er mun verr staddur nú en fyrir ári þegar hann tók við af Ariel Sharon. Innbyrðis átök Palestínumanna gera síðan illt verra og gætu endað í borgara- stríði. Þá verður staða Kosovohéraðs til umræðu á ný strax í kjölfar þingkosninga í Serbíu nú í janúar. Kosovobúar leggja mikla áherslu á að hljóta sjálfstæði en Serbar standa sem fyrr harðir gegn því. Kosningar verða haldnar í Frakklandi, Belgíu, Finnlandi, Eistlandi og víðar á árinu og þá má nefna að í marsmánuði hefst alþjóðlegt ár tileinkað heimskauta- svæðunum. Alþjóðlega heim- skautaárið stendur reyndar í tvö ár og lýkur því ekki fyrr en í mars árið 2009. Rannsóknir á heim- skautasvæðunum verða efldar um allan helming á þessu tímabili. Í mars hefst einnig ár svínsins samkvæmt kínversku tímatali. Viðburðaríkt ár í vændum Eins og öll önnur ár ber árið 2007 fleira í skauti sínu en vitað er um í upphafi þess. Engu að síður þarf enga spádómsgáfu til að sjá fyrir marga þá viðburði sem munu setja svip sinn á heimsfréttirnar næsta árið. Guðsteinn Bjarnason skoðar komandi ár með aðstoð Graphic News.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.