Fréttablaðið - 06.01.2007, Qupperneq 87
Á
rið 2007 gæti orðið það heitasta frá upphafi mælinga sam-
kvæmt spá vísindamanna bresku veðurstofunnar. Meðal-
hitastig mun að öllum líkindum hækka á heimsvísu vegna
áhrifa frá El Nino hafstraumnum að því er greint var frá á
vef BBC.
El Niño hafstraumurinn er talinn vera einn stærsti
áhrifavaldur á veðurfarslegar breytingar á heimsvísu milli ára. Mikil
fylgni mælist á milli El Niño og hitastigs í heiminum að sögn Chris Fol-
land, sérfræðings í loftslagssrannsóknum hjá bresku veðurstofunni,
sem nefnir einnig gróðurhúsaáhrif af mannavöldum sem annan megin
áhrifavald.
El Niño myndast þegar óvenjulega heitur sjór streymir upp að norð-
vesturströnd Suður-Ameríku. Þessi hlýi hafstraumur kemur síðan í stað
kaldari Humboldt-hafstraumsins. Yfirleitt varir þetta ástand bara í
nokkrar vikur og síðan kemst aftur á jafnvægi. En ef þetta ástand varir
í nokkra mánuði á sér stað umfangmeiri hlýnun sjávar sem hefur víð-
tækar afleiðingar.
Spá um hitamet á árinu 2007 er byggð á því að El Niño hafstraumurinn
hefur sótt í sig veðrið í Kyrrahafinu að undanförnu. Síðast náði El Niño
sér verulega á strik árið 1998 sem varð það heitasta frá upphafi mælinga.
Það ár var ársmeðaltalshitinn 0,52 gráðum yfir langtímameðalatalinu,
sem var 14 gráður.
Vísindamenn hafa tvær aðferðir við að spá fyrir um áhrif El Niño að
sögn Follands. „Önnur er tölfræðileg aðferð sem byggir á tveimur
munstrum af sjávarhita á svæðinu sem El Niño heldur sig á, og hin er
flókið tölfræðilegt líkan.“ Spáin sem af þessum aðferðum leiðir er síðan
fínstillt með því að líta yfir gögn frá undanförnum 50 árum. „Við höfum
prófað þessa spá þrisvar sinnum, og uppfært hana í hverjum mánuði, og
hún er fullkomnlega stöðug.“
Vísindamenn bresku veðurstofunnar telja að það séu 60 prósent líkur
á að hitamet verið slegið í ár. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að þess-
ar nýju upplýsingar séu enn ein aðvörunin um að breytingar séu að
verða á veðurfari á heimsvísu.
El Niño stuðlar að hitameti í ár
Meðalhitastig í heiminum mun hækka í ár og slá
hitametið frá árinu 1998 samkvæmt spám vís-
indamanna bresku veðurmælingastofnunarinn-
ar. Spárnar byggja öðru fremur á því að El Niño
hafstraumurinn hefur sótt í sig veðrið að undan-
förnu meira en venjulega. Seinast þegar það gerð-
ist leiddi það til hlýjasta árs frá upphafi mælinga,
árið 1998.
Icetransport ehf er n‡tt nafn á flutningafyrirtækinu Hra›flutningum ehf sem um flessar mundir
er a› útvíkka fljónustu sína til muna. N‡ja nafni› endurspeglar ví›tækara starfssvi› og
alfljó›legri áherslur auk fless sem fla› tengir fyrirtæki› vi› heimalandi›.
Icetransport ehf b‡›ur upp á flutninga í lofti og á sjó, til og frá Íslandi. Einnig eru í bo›i
hra›sendingarfljónusta og vinna vi› ger› tollskjala auk fless sem fyrirtæki› rekur vöruhús
fyrir vi›skiptavini sína. Icetransport ehf er umbo›sa›ili fyrir FedEx á Íslandi.
Vi› hvetjum jafnt núverandi sem n‡ja vi›skiptavini a› kynna sér fljónustu okkar. Athugi›
breytt símanúmer, fax og veffang.
Flutningafyrirtæki á heimsvísu
Icetransport ehf
Gjótuhrauni 4, Hafnarfir›i
Sími 4 120 120, fax 4 120 100
www.icetransport.is