Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 106

Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 106
 Jóhannes Karl Guðjóns- son, landsliðsmaður í fótbolta, sagði við Fréttablaðið í gær að hann vildi losna frá hollenska úrvalsdeildarliðinu AZ Alkmaar og komast aftur til Englands. Jóhannes Karl samdi við AZ síðastliðinn vetur þegar hann var enn á mála hjá Leicester. Þar þótti hann standa sig vel og telur hann því líklegt að hann eigi greiða leið inn í ensku knattspyrnuna á nýjan leik. „Það ætti að verða auðvelt að fara aftur til Englands og hafa nú þegar nokkur lið í Championship- deildinni sýnt mér áhuga,“ sagði Jóhannes Karl, sem er þó samn- ingsbundinn AZ til ársins 2010. „AZ er búið að gefa mér grænt ljós á að ég fari og finni mér nýtt lið en það verður svo að koma í ljós hvernig ég losna undan samn- ingnum. Ég á enn þrjú og hálft ár eftir og þurfum við því að komast að ásættanlegri niðurstöðu hvað varðar starfslok. Það eru því mörg mismunandi atriði sem koma við sögu í þessu máli.“ Hann býst þó ekki við að AZ muni standa í vegi fyrir sér ef hann finnur sér „rétta“ liðið eins og hann segir sjálfur. Nú er hlé á hollensku úrvals- deildinni og er Jóhannes Karl staddur hér á landi í fríi með fjöl- skyldu sinni. Hann á að mæta aftur til æfinga 10. janúar. Hann neitar því ekki að um gríðarleg vonbrigði sé að ræða þar sem AZ bauð honum afar hag- stæðan langtímasamning. Greini- legt að verið var að kaupa framtíð- armann í liðinu. Louis van Gaal, þjálfari liðsins, hefur þó ekki hrifist af leikstíl Jóhannesar Karls. „Mestu vonbrigðin eru þau að ég fékk aldrei tækifæri til að sanna mig. Ég fékk tvisvar að vera í byrjunarliðinu, einu sinni í minni stöðu og einu sinni úti á kanti. Eftir það fékk ég ekkert tækifæri þó svo að við hefðum unnið leik- inn. Ég fatta því ekki alveg hvað þjálfarinn er að pæla. Kannski að honum hafi ekkert líkað við mig.“ Í upphafi tímabils fékk hann engin tækfæri en eftir því sem leið á haustið náði hann hægt og bítandi að komast í leikmannahóp- inn og svo byrjunarliðið. En honum var svo kippt skyndilega aftur úr hópnum í desember. „Þetta virtist allt ganga í rétta átt en varð svo enn verra undan- farinn mánuðinn.“ Það var þó ekki Van Gaal sem sá um að fá Jóhannes Karl til félagsins, heldur framkvæmda- stjóri þess. Það gæti að hluta til skýrt örlög hans í haust. Eldri bræður Jóhannesar Karls, Þórður og Bjarni, komu heim úr atvinnumennskunni síðasta ár og hófu að leika með ÍA. Sjálfur fer hann ekki í grafgötur með það að fjárhagslegur ávinningur sinn af því að spila erlendis sé ástæðan fyrir því að hann sé ekki kominn heim. „Ef ég væri að þéna jafn mikið á Íslandi og í Englandi eða Hol- landi væri ég löngu kominn heim. Mér finnst því afar ólíklegt að ég komi heim á þessu ári.“ Hann segir að ekki komi til greina að fara í aðra deild en úrvalsdeildina eða Championship- deildina í Englandi. „Ég myndi frekar sitja á aftur- endanum í Hollandi og hirða laun- in mín en að spila í League One þar sem ég gæti aldrei fengið sam- bærileg laun og ég fæ hér. Það sama gildir um önnur lið, ég fer ekkert nema ég fái sömu laun og ég er á núna. Það er einnig ljóst að ég hefði aldrei farið til Hollands í fyrra nema út af þeim samningi sem ég fékk.“ Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Jóhannes Karl er settur í kuldann því hann fékk afar fá tækifæri hjá spænska liðinu Real Betis sem hann var samnings- bundinn frá 2001 til 2004. Annar landsliðsmaður, Grétar Rafn Steinsson, er einnig á mála hjá AZ. Landsliðsmaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson vill hætta hjá AZ Alkmaar og komast aftur í ensku knatt- spyrnuna. AZ hefur gefið honum grænt ljós á að finna sér nýtt lið. „Vissulega mikil vonbrigði,“ segir hann. 13 US Ivry, félag Ragnars Óskarssonar í Frakklandi, vann í fyrrakvöld sigur á landsliði Úkraínu í æfingaleik, 27-25. Ísland mætir Úkraínu strax í öðrum leik sínum á mótinu og telja margir að um algeran lykilleik sé að ræða fyrir framhald liðsins á mótinu. Ragnar lék vitanlega ekki með Ivry þar sem hann æfir og keppir þessa dagana með íslenska landsliðinu. Ivry vann lands- lið Úkraínu Luis Boa Morte staðfesti í gær að hann væri á leið til Íslendingaliðsins West Ham fyrir fimm milljónir punda. Eru þetta fyrstu staðfestu kaup Eggerts Magnússonar síðan hann tók við stjórnarformennsku í félaginu í síðasta mánuði. Boa Morte hefur því að öllum líkindum leikið sinn síðasta leik hjá Fulham þar sem hann var orðinn fyrirliði. „Þetta var ekki erfið ákvörð- un,“ sagði Boa Morte. „Þetta er betri samningur sem ég fæ en ég var með hjá Fulham.“ Boa Morte til West Ham Félögin fóru fram á fjölgun Garðar Jóhannsson skrifaði loksins undir löglegan samning við norska úrvalsdeild- arliðið Fredrikstad í fyrradag. Hann gerði það einnig í haust en þá kom í ljós að félagaskipti hans voru ólögleg. Hann fór aftur til Noregs í upphafi ársins og er nú loksins orðinn löglegur leikmaður hjá Fredrikstad. „Það eina sem var breytt á samningnum var dagsetningin. Ég er því mjög ánægður að þessu sé loksins lokið.“ Bara dagsetn- ingunum breytt Eins og fram hefur komið munu KR-ingar taka þátt í æfingamóti á La Manga í næsta mánuði. Áætlað var að auk KR tækju fjögur lið úr norsku úrvalsdeildinni, tvö frá Rússlandi og eitt frá Úkraínu þátt í mótinu en þrjú síðastnefndu liðin hafa ákveðið að vera ekki með. Öll liðin leika því innbyrðis og mætir KR Vålerenga í fyrsta leik, þá Lilleström, Brann og Rosen- borg. Þessi lið lentu í fjórum efstu sætum deildarinnar í haust. Þrjú lið hætta við þátttöku Íslenska karlalandslið- ið í handbolta tapaði með 12 marka mun, 34-22, fyrir Norðmönnum í fyrsta leik liðsins á Lauritz Knudsen-mótinu sem hófst í Dan- mörku í gær. Ísland var þremur mörkum undir í hálfleik, 16-13, en tapaði seinni hálfleiknum með níu marka mun, 9-18. Íslenska handboltalandsliðið hefur ekki tapað stærra í rúm 18 ár eða síðan liðið tapaði með 13 mörkum, 19-32, fyrir Sovétmönn- um á Ólympíuleikunum 1988. Þetta var fyrsti undirbúningsleik- urinn af fimm sem liðið spilar fyrir HM í handbolta og liðið á greinilega langt í land. Alfreð Gíslason, þjálfari íslenska liðsins, var brúnaþungur eftir leikinn. „Seinni hálfleikurinn hjá okkur var algjör skandall og til skammar. Ég var að prófa eitt og annað og þess vegna má segja að stærðin á tapinu sé mér að kenna en það er hins vegar ófyrir- gefanlegt að það sé ekki nein bar- átta í vörninni og að menn hlaupi ekki til baka,“ sagði Alfreð. Alfreð segir að það þýði samt ekki að gefast upp. „Úrslitin úr þessum leikjum eru ekki aðal- atriðið og fyrri hálfleikinn var á köflum mjög góður. Það var fúlast að sjá strákana gefast upp því ég hef sjaldan séð íslenska landsliðið gefast upp. Við skuldum sjálfum okkur það því að spila betur í næstu leikjum,“ sagði Alfreð eftir leik. Íslenska landsliðið mætir Póllandi í dag og lokaleikurinn er gegn Dönum á sunnudaginn. Mörk Íslands: Alexander Petter- son 4, Róbert Gunnarsson 4, Guð- jón Valur Sigurðsson 3, Vignir Svavarsson 3, Ólafur Stefánsson 2, Logi Geirsson 2, Ásgeir Örn Hallgrímsson 1, Einar Örn Jóns- son 1, Ragnar Óskarsson 1 og Snorri Steinn Guðjónsson 1. Allir leikmenn íslenska liðsins fengu að spreyta sig í þessum leik. Skelfilegur seinni hálfleikur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.