Fréttablaðið - 06.01.2007, Síða 112
Ég man eftir því að fyrir rúmum tveimur árum – árið 2004 – voru
fjármál heimilanna á hvers manns
vörum, einkum síðari hluta ársins.
Mikið var talað um það að lands-
menn allir ættu að ráðast í það
þarfa verkefni í sínu heimilishaldi
að skuldbreyta og endurfjármagna
og hvað það var allt saman kallað, á
nýjum og betri lánum. Boðið var
upp á 4,15% vexti og 90% veðsetn-
ingarhlutfall. Fólk átti að útrýma
yfirdráttarskuldunum og hvaðeina,
enda ekkert vit í öðru.
urðu á einni
nóttu sérfræðingar í lánaviðskipt-
um, eftir að hafa verið nokkrum
árum áður um stutt skeið sérfræð-
ingar í hlutabréfaviðskiptum. Boðið
var upp á allar mögulegar tegundir
lána í auglýsingum sem dundu á
okkur frá lánastofnunum allt haust-
ið 2004. Svo mikil var eftirspurn
lánastofnana eftir lánaviðskiptum
að ég man ekki betur en gert hafi
verið grín að því ástandi í skaupinu
það árið. Bankastjóri var þar látinn
tæla skúringakonu bankans, að mig
minnir, inn á kontór til sín til þess
að bjóða henni lán.
tala um árið 2004 eins og það
sé óralangt í burtu. En svo mikill
er hraðinn á Íslandi að í raun og
veru er árið 2004 orðið stjarn-
fræðilega langt í burtu, ef maður
spáir í það. Vextirnir sem okkur
buðust þá eru minning ein – lesa
má um þá í þjóðsögum – og 90%
lánshlutfallið er varla til lengur,
horfið og farið eins og dularfullt
fyrirbrigði á himni. Hvar er það?
Hvert fór það?
allt lánauppboðið, hvatt
áfram og dásamað af hinu opin-
bera, gína við okkur a.m.k. tvær
æði vandasamar flækjur: Annars
vegar himinhátt húsnæðisverð og
hins vegar skuldsettur almenning-
ur með hærri yfirdrátt á herðunum
en nokkru sinni og á hærri vöxtum
en nokkru sinni. Heimilin greiða nú
í yfirdráttarvexti sömu upphæð og
rennur til vegamála á ári hverju,
samkvæmt nýjustu tíðindum. Varla
var það þetta ástand sem stefnt var
að, en svona getur atburðarásin
leikið okkur grátt ef menn gæta
ekki að sér. Fáir rifja nú upp kosn-
ingaloforð sem gefin voru um 90%
lán, enda voru þau fyrirheit mest-
megnis til þess gerð — sýnir reynsl-
an — að pissa með skammgóðum
vermi í buxurnar.
hitt er jafnvel enn verra: Ég sé
ekki betur en að ungt fólk hafi hér
verið leitt í stórbrotna gildru. Hús-
næðisverðið var keyrt upp með
auknum lánamöguleikum og betri
lánskjörum til þess eins að draga
svo úr kjörunum aftur, en skilja
verðið eftir í skýjunum. Nú standa
þeir sem þurfa að kaupa fasteign í
fyrsta skipti frammi fyrir nærri
ókleifum múr: Himinháu fasteigna-
verði og aðeins 70% lánum, með
fáum undantekningum þó.
sem við verð-
um að draga af þessu er auðvitað sá
að það verður að sýna ábyrgð og
festu í efnahagsmálum. Það má
ekki bara sparka af stað á einum
hausteftirmiðdegi árið 2004 ein-
hverjum ógurlegum lánskjörum í
skamman tíma með húrrahrópum
og taka þau svo til baka. Menn
verða að vita hvert þeir eru að
fara.
Lán og ólán
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.IS
/I
KE
3
55
75
0
6/
07
©
In
te
r I
KE
A
Sy
st
em
s
B.
V.
2
00
7
450.000
gestir
Frá því nýja IKEA verslunin var opnuð í október hefur gestafjöldi
hennar farið langt fram úr björtustu vonum okkar.
Við segjum því einfaldlega TAKK – við landsmenn alla.
Gleðilegt nýtt ár.
Opið kl. 10.00 - 20.00 virka daga Laugardaga kl. 10.00 - 18.00 Sunnudaga kl. 12.00 - 18.00 www.IKEA.is