Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.01.2007, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 22.01.2007, Qupperneq 1
Risaútsa la Íslenska á vinnustað - já takk Aðildarfyrirtæki SI eru hvött til að bjóða erlendu starfsfólki kennslu í íslensku. Hægt er að sækja um styrk til þess hjá menntamálaráðuneytinu. Umsóknarfrestur rennur út 2. febrúar nk. Sjá nánar á www.mrn.is Meirihluti, eða 62,1 prósent, vill ekki að Ríkisút- varpið keppi við einkarekin fyrir- tæki á auglýsingamarkaði, sam- kvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 37,9 prósent sögðu hins vegar að Ríkisútvarpið ætti að halda áfram á auglýsingamarkaði. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segist fagna því að menn tjái sig og hafi skoðun á Ríkisútvarpinu. „Ég hef margoft sagt að menn eigi að ræða frekar hvernig hlutverk Ríkisútvarpsins eigi að vera á auglýsingamarkaði. Við vorum ekki reiðubúin að taka það skref að sinni, af því að þá hefði þurft að hækka nefskattinn sem því nemur. Einhvers staðar að verða þessar 900 milljónir að koma.“ Þorgerður segir unnið að því að takmarka sókn Ríkisútvarpsins á vefmiðlum og á kostunarmarkaðn- um um leið og því sé gert kleift að stanfs undir menningarhlutverki sínu. RÚV keppi ekki við einkafyrirtæki Hjálmar Árnason, alþingismaður og formaður þing- flokks Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að hætta í stjórn- málum. Þessa ákvörðun tilkynnti hann í gær eftir að úrslit voru kynnt í prófkjöri framsóknarmanna í Suð- urkjördæmi, sem fram fór í fyrra- dag. Þar varð Hjálmar í þriðja sæti, en sóttist eftir því fyrsta. Hann segist ætla að ljúka núver- andi kjörtímabili, en hætta afskipt- um af stjórnmálum eftir það. Guðni Ágústsson, landbúnaðar- ráðherra og varaformaður Fram- sóknarflokksins, hlaut afgerandi kosningu í fyrsta sæti framboðs- listans, en Bjarni Harðarson rit- stjóri lenti í öðru sæti. Sem fyrr segir varð Hjálmar í þriðja sæti. Eygló Harðardóttir hlaut fjórða sætið, Elsa Ingjaldsdóttir varð í því fimmta og Lilja Hrund Harð- ardóttir hreppti sjötta sætið. Metþátttaka var í prófkjörinu en yfir 3.500 manns kusu. Tólf gáfu kost á sér í sex efstu sæti list- ans. Lokatölur voru kynntar um klukkan sjö í gærkvöldi. „Hinum pólitíska kafla í mínu lífi er nú lokið og ég yfirgef hann þakklátur,“ segir Hjálmar. „Ég vil gefa öðrum kost á að styrkja list- ann enn frekar og dreg mig því í hlé mjög sáttur. Ég óska félögum mínum á listanum alls hins besta.“ Hann segist una vel þeirri lýð- ræðislegu niðurstöðu sem kom fram í prófkjörinu, og að nýr kafli í ævisögu hans muni hefjast að kjörtímabilinu loknu. „Ég er hrærður og þakklátur,“ segir Guðni Ágústsson. „Ég held að ég hafi aldrei fundið jafn gríð- arlegan stuðning við mig og flokk- inn hér í kjördæminu eins og ég hef fundið fyrir seinustu daga.“ Hann segir Hjálmar hafa gert sér grein fyrir áhættunni sem hann tók með því að keppa við ráð- herra og varaformann flokksins um fyrsta sætið. „Það voru heilmik- il átök á milli stuðningsmanna okkar beggja og það var mikið líf í kosningabaráttunni. Þetta er hans niðurstaða, ég kveð kæran félaga og mun sakna hans.“ Bjarni Harðarson, sem hlaut annað sætið, segir niðurstöðuna ekki beint hafa komið sér á óvart, en hún sé afar ánægjuleg. „Það á enginn neitt í pólitík, það er sífellt barist um stólana og nýir menn eiga möguleika. Það er bara eðlið í þessu pólitíska lífi,“ segir hann. Hjálmari hafnað og hættir „Dreg mig í hlé sáttur,“ segir Hjálmar Árnason sem ætlar að hætta í stjórnmálum. Hann sóttist eftir fyrsta sæti í prófkjöri Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi, en endaði í þriðja. Guðni Ágústsson varð í fyrsta sæti. Vígvöllur þjóðarinnar Gróska hjá íslenskum frímerkjasöfnurum Semur tónlist fyrir Á vegum úti Smáauglýsingasími550 5000 Auglýsingasími Allt550 5880 Þú getur pantaðsmáa lý Laugardalshöllin er vettvangur okkar helstu sigra á sviði íþrótta og einn af helstu tónleikastöðum landsins. Laugardalshöll var vígð 6. desember árið 1965. Arkitekt hennar er Gísli Halldórsson en hann teiknaði höllina árið 1959. Reykjavíkurborg og Íþróttabandalag Reykjavíkur eiga heiðurinn að byggingu hennar en fjölmargir komu að framkvæmdinni og fjármögnun hennar. Til að mynda lán- aði TBR 200.000 krónur til framkvæmdanna. Í Laugardalshöll hafa unnist margir sætir sigrar um árin og margir hafa sömuleiðis farið svekktir heim. Fyrsti opin- beri leikurinn sem fram fór á parketinu í höllinni var hand- boltaleikur úrvalsliðs Reykjavíkur og landsliðs þáverandi Tékkóslóvakíu. Sá leikur fór fram 4. desember vígsluárið 1965, tveimur dögum áður en höllin var vígð. Laugardalshöllin er um 6.500 fermetrar að viðbættri 9.500 fermetra stálgrindarviðbyggingu sem sérhönnuð er fyrir frjálsar íþróttir. Ýmsir stórviðburðir hafa farið fram undir þaki Laugar- dalshallarinnar. Tónleikar Led Zeppelin árið 1970, heims- meistaramótið í handknattleik árið 1995 (þó við viljum gleyma árangri íslenska landsliðsins á því móti sem fyrst), skákeinvígi aldarinnar milli Fishers og Spasskís árið 1972, og nú síðast þegar kveikt var í Svíagrýlunni, hún bútuð sundur og gefin landvættunum. Íslenska karlalandslið- ið í handknattleik tapaði í gær fyrir Úkraínu, 32-29. Frammi- staða liðsins var ekki góð og nánast allir leikmenn liðsins langt frá sínu besta. Fyrir vikið á Ísland nú veika von um að komast áfram í milliriðlakeppnina. Til þess verð- ur landsliðið að vinna Evrópu- meistara Frakka í dag. Strákarnir höfðu eins marks forystu í hálfleik en allur botn datt úr leik liðsins í síðari hálfleik, bæði í vörn og sókn. Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari sagði eftir leik að sínir menn hefðu „framið sjálfsmorð“ í leiknum. Guðjón Valur Sigurðsson tók í svipaðan streng. „Vörnin var léleg, markverðirnir voru lélegir. Sóknin var ömurleg og mér fannst þetta hreint út sagt ömurlegt,“ sagði hann. Ólafur Stefánsson fyrirliði var ekki til viðtals eftir leik en eins og gefur að skilja átti hann mjög erfitt með að sætta sig við úrslit leiksins. Veik von fyrir strákana okkar 77% 48% 0% Fr é tt a b la › i› Fr é tt a b la › i› M b l. M b l. *Samkvæmt fjölmi›lakönnun Capacent í nóvember 2006. Mánudagur LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA höfuðborgarsvæðið Blaðið 30 20 10 60 50 40 0 70 80
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.