Fréttablaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 18
AFMÆLI
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysin-
gar@frettabladid.is eða hringja í
síma 550 5000.
„Sigur er ekki það
mikilvægasta þegar þú
ert ungur. Það mikil-
vægasta er að hlúa að
hæfileikaríkum
leikmönnum og veita
þeim gott sjálfstraust.
Fóstureyðingar leyfðar
„Ég átti svo sem ekki von á þessu
þannig að þetta kom þægilega á
óvart,“ segir Guðmundur Oddsson,
en breska tímaritið The Laywer
valdi hann einn af þeim 40 erlendu
lögmönnum í Bretlandi sem mest
kvað að í fyrra. The Laywer er mest
lesna fagrit lögmanna í Bretlandi og
gefið út um allan heim. Blaðið segir
að Guðmundur hafi vakið mikla
athygli síðastliðið vor þegar hann
kom á fót skrifstofu fyrir Logos í
London. „Svo vel hefur gengið hjá
Guðmundi að Logos hefur nú sent
annan lögfræðing til Lundúna og
stefnir ennfremur að því að ráða
reynda breska lögmenn til starfa.“
„Þótt lögmenn megi telja í þús-
undum hér úti er þetta lítill heimur,
menn vita hver af öðrum og það er
greinilega tekið eftir Íslendingum í
dag,“ segir Guðmundur. Hann þakk-
ar þessa vegsemd verkefnum og
samningum sem hann hefur tekið
þátt í að ljúka. „Vonandi hefur maður
eitthvað fram að færa í þessum
efnum. Samkeppnin hérna úti er
hörð og fyrir litla ráðgjafa af Íslandi
er enginn hægðarleikur að gera sig
gildandi, en þetta hefst allt saman ef
maður hefur gott fólk á bak við sig.
„Ég geri bara svo og svo mikið sjálf-
ur en hef bakland í kollegum mínum
heima, sem bera hitann og þungann
af þessum verkefnum líka.“
Guðmundur segist ekki fyrr en
eftir á hafa gert sér grein fyrir að
það þætti merkilegt að komast á
þennan lista tímaritsins. „Mér hafa
borist bréf, símtöl og tölvupóstur
frá kollegum mínum sem vilja óska
mér til hamingju, bæði fólk sem ég
hef unnið með og sem ég þekki ekki
og er afar ánægjulegt.“
Hann kveðst þó ekki ætla að
halda sérstaklega upp á þetta. „Það
er margt í pípunum og það þarf að
halda boltanum rúllandi á mörgum
vígstöðvum. Annars er svo gaman
að vera til að maður þarf ekkert að
gera sér glaðan dag út af þessu sér-
staklega.“
70 ára
í dag, 22. janúar er
Páll Jóhann
Einarsson
(Palli fl ug) sjötugur. Í tilefni þessara
tímamóta tekur Palli á móti
fjölskyldu, vinum og velunnurum
í safnaðarheimili Bústaðakirkju
laugardaginn 27. janúar kl. 15-19.
„Ég er stolt og þakklát fyrir viður-
kenninguna og heiti því að leggja
áfram mitt af mörkum til að auka áhrif
kvenna í atvinnulífinu vegna þess að
ég tel að það sé atvinnulífinu til góðs,“
segir Halla Tómasdóttir, framkvæmda-
stjóri Viðskiptaráðs, sem fékk aðal-
verðlaun Félags kvenna í atvinnu-
rekstri þegar þau voru afhent fyrir
helgi.
„Kannski finnst mér skemmtileg-
ast að hvatningarverðlaunin fari til
Guðbjargar Glóðar Logadóttur, stofn-
anda og eins eigenda Fylgifiska, því að
hún tók þátt í fyrsta verkefninu Auður
í krafti kvenna. Ég sá þá strax í augun-
um á henni að hún ætti eftir að gera
góða hluti,“ segir Halla.
Ný verðlaun, Gæfuspor, komu í hlut
fyrirtækis sem hefur verið óhrætt við
að ráða konur í stjórnunarstöður og
voru þau afhent Atorku en fjórir af
sex æðstu stjórnendum innan Atorku
eru konur, eins og Linda Björk Gunn-
laugsdóttir, framkvæmdastjóri A.
Karlsson, Ragnhildur Geirsdóttir,
framkvæmdastjóri Promens, Margrét
Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri
Icepharma og Guðný Rósa Þorvarðar-
dóttir, framkvæmdastjóri Parlogis.
Þorsteinn Vilhelmsson, stjórnarfor-
maður Atorku, tók á móti viðurkenn-
ingunni. Hann segir það ánægju og
heiður að taka á móti þessari viður-
kenningu. „Þessi félög eiga öll samm-
erkt að nýir forstjórar eða fram-
kvæmdastjórar eru konur. Við gefum
konum ekki síður tækifæri en körlum
og þær hafa að okkar mati reynst hæf-
ari.“ Guðrún Erlendsdóttir, fyrrver-
andi forseti Hæstaréttar Íslands, fékk
þakkarviðurkenningu FKA.
Halla fékk aðalverðlaunin