Fréttablaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 59
HM í handbolta
Iceland Express deild karla
Iceland Express deild kv.
Enska úrvalsdeildin
Spænska úrvalsdeildin
Stærsta heimsmeist-
aramót í handbolta hingað til, sem
íslenska landsliðið er búið að
dreyma um í hálft ár, breyttist í
martröð í Magdeburg í gær. Liðið
spilaði einn sinn slakasta leik í
mörg ár gegn miðlungsliði Úkra-
ínu og tapaði, 29-32. Það gekk
nákvæmlega ekki neitt upp hjá
liðinu og í stað þess að ganga frá
leiknum í fyrri hálfleik hélt
íslenska liðið áfram að bjóða Úkr-
aínumönnum að taka þátt í leikn-
um. Þeir þáðu boðið með þökkum
og gengu á lagið á meðan tauga-
veiklaðir leikmenn Íslands brotn-
uðu saman fyrir framan 7.400
áhorfendur sem studdu liðið
dyggilega.
Fyrri hálfleikur var ekki góður
hjá íslenska liðinu í gær. Alfreð
byrjaði með Roland í markinu og
5/1 vörn þar sem Guðjón Valur
klippti út rétthenta skyttu Úkra-
ínumanna.
Sóknarleikur Íslands var mjög
hægur og strákanir virkuðu einn-
ig mjög taugaóstyrkir og hrein-
lega yfirspenntir.
Sóknarleikur Úkraínumanna
var helmingi hægari en þeir léku
„svefnbolta“ og hjá slökum dóm-
urum leiksins komust þeir upp
með að láta boltann ganga heil-
lengi án þess að ógna íslenska
markinu að nokkru ráði. Íslenska
vörnin var slök lengstum og Úkra-
ína fékk mörg ódýr mörk. Þar sem
vörnin var ekki að standa sína
plikt fékk Ísland fá hraðaupphlaup
en aðeins tvö íslensk mörk komu
úr hraðaupphlaupum í fyrri hálf-
leik.
Ólafur Stefánsson komst aldrei
í gang og liðið tapaði boltanum á
klaufalegan hátt hvað eftir annað í
hálfleiknum. Svo lét liðið úkra-
ínska markvörðinn verja ein tólf
skot frá sér í hálfleiknum. Roland
Eradze var bestur í íslenska liðinu
í hálfleiknum en hann varði tíu
skot og mörg hver úr dauðafær-
um.
Þrátt fyrir þennan slaka leik
leiddi liðið með einu marki í leik-
hléi, 13-12, en liðin héldust í hend-
ur nánast allan fyrri hálfleikinn.
Síðari hálfleikur leiksins hjá
Íslandi var ein martröð frá upp-
hafi til enda þar sem nákvæmlega
ekkert gekk upp og lykilleikmenn
brugðust sem og flestir hinna en
Guðjón Valur og Alexander voru
einu mennirnir sem gátu eitthvað
í hálfleiknum. Markvarslan var
engin en Roland og Birkir Ívar
vörðu tvo bolta samanlagt í síðari
hálfleiknum. Í öðru skotinu var
dæmt víti sem skorað var úr.
Úkraína tók yfirhöndina í leikn-
um í upphafi síðari hálfleiks og
náði fljótt fjögurra marka forystu,
15-19. Þann mun náði Ísland aldrei
að brúa og breytti engu hvaða
breytingar Alfreð gerði á liðinu,
það gekk ekkert upp og var átak-
anlegt að horfa á þetta góða lands-
lið sem við eigum hreinlega kasta
frá sér leiknum.
Niðurstaðan er gríðarleg von-
brigði og leikmenn verða að líta í
eigin barm og spyrja sig að því
hvað fór úrskeiðis. Liðið á enn von
um að komast áfram. Þá verður
það að leggja Frakkland í dag en
það verður að teljast mjög ólíklegt
miðað við þá frammistöðu sem
boðið var upp á gegn Úkraínu í
gær.
Íslenska handboltalandsliðið er í vondum málum á HM eftir þriggja marka
tap gegn Úkraínu, 29-32. Leikur Íslands var í molum og liðið verður að leggja
Frakka í dag ætli það sér í milliriðil. Síðari hálfleikurinn var hrein martröð.
„Þetta var helvítis
aumingjaskapur og ekkert
annað. Ég á engin orð yfir þessa
frammistöðu því við vorum ein-
faldlega lélegir,“ sagði Guðjón
Valur Sigurðsson hundfúll
skömmu eftir leik í Bördeland-
halle.
„Vörnin var léleg, markverð-
irnir voru lélegir. Sóknin var
ömurleg og mér fannst þetta
hreint út sagt ömurlegt,“ sagði
Guðjón, en voru menn yfir-
spenntir? „Það sást í fyrri hálf-
leik þegar markvörðurinn varði
nokkur skot og við fórum þá að
haga okkur eins og aumingjar og
urðum skítstressaðir. Við vorum
ragir og í sókninni vorum við
ekki að vinna maður á mann og
þeir stöðvuðu okkur eins og þeir
vildu. Við spiluðum ekki eins og
við ætluðum okkur að gera og
við gerðum í raun allt þveröfugt
við það,“ sagði Guðjón, en getur
liðið rifið sig upp eftir þetta tap?
„Það verðum við að gera. Ef
við lítum á úrslit leiks Frakk-
lands og Úkraínu þá eigum við
ekki möguleika en við gefumst
ekki upp á meðan við eigum
möguleika. Möguleikinn liggur í
því að vinna Frakkana og það er
eins gott að það takist.“
Helvítis aumingjaskapur
„Það er lítið hægt að
segja eftir þennan leik en við
verðum að finna út úr því af
hverju leikur okkar gekk svona
illa í síðari hálfleik,“ sagði
niðurdreginn línumaður Íslands,
Róbert Gunnarsson.
„Fyrri hálfleikur var svo sem
allt í lagi en við gerum samt
mikið af mistökum. Hefðum við
nýtt okkar tækifæri betur þar þá
hefðum við getað verið um 5-6
mörkum yfir í leikhléi og þá hefði
leikurinn unnist. Byrjunin í síðari
hálfleik var skelfileg og eftir það
fóru menn á taugum og við
spiluðum verr eftir því sem á
leið. Af hverju hef ég ekki
hugmynd um en við klikkuðum
sem lið,“ sagði Róbert.
Klikkuðum
sem lið
Ungverjaland tryggði
sér í gær sæti í milliriðli þegar
það vann Noreg með 25 mörkum
gegn 22. Það verða því Noregur
og Danmörk sem há hreina
úrslitaviðureign um hvort liðið
fylgi fyrstnefnda liðinu áfram
upp úr riðlinum en liðin mætast í
dag.
Ungverjar hafa komið á óvart
á mótinu með því að leggja bæði
Dani og Norðmenn að velli.
Danir unnu lið Angóla í gær
örugglega, 39-20, þar sem Lars
Rasmussen var markahæstur
með fjórtán mörk. Sören Stryger
skoraði fimm.
Önnur úrslit gærdagsins voru
eftir bókinni. Túnis, Slóvenía,
Frakkland, Pólland, Þýskaland,
Spánn, Tékkland, Ungverjaland
og Króatía hafa þegar tryggt sér
sæti í milliriðlunum.
Ungverjaland
vann Noreg