Fréttablaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 23
Það hljómar sem nokkuð
fjarlæg framtíðarsýn að vera
með vélmenni á heimilinu sem
hjálpar til við þrif. En þetta er
þó alls ekki fjarri lagi.
iRobot ryksugan Roomba er sér-
stök fyrir þær sakir að hún ryk-
sugar meðan heimilisfólkið er að
heiman. Hún er kringlótt og lág og
kemst alls staðar að. Getur ryk-
sugað í öll horn hvort sem er á
parketti, dúk eða teppi. Þá eru
snúrur og lágir þröskuldar engin
fyrirstaða því mótorinn sem knýr
hana er það öflugur. Það er því
engin hætta á að hún festist á ein-
hverjum stað og komist ekki burt.
Þá er hún það lág að hún kemst
undir flesta sófa og rúm. Roomba
ryksugan fer yfir svæðið mörgum
sinnum í hvert skipti eða þangað
til það er orðið hreint.
Gæludýraeigendur eiga oft í vand-
ræðum með hárflygsur sem
feykjast um gólfin. Tals-
menn iRobot telja ryk-
suguna henta einstak-
lega vel fyrir þá.
Ryksugan er
með tölvuheila
sem getur lært. Í
fyrsta sinn sem
henni er hleypt á
nýjan flöt kannar
hún umhverfi sitt og
skráir í minni hluti
sem hún þarf að forð-
ast. Hún veit því næst
hversu stórt svæðið er
sem þarf að þrífa,
hvar helstu fyrirstöð-
urnar eru og því um
líkt. Þá forðast hún
stiga og því engin hætta á að hún
hrapi niður og eyðileggist.
Hægt er að forrita ryksuguna
til að þrífa á ákveðnum tímum. Til
dæmis er mjög hentugur tími
meðan fólk er í vinnunni enda
hlýst þá minnst ónæði af henni.
Ryksugan er
knúin af endur-
hlaðanlegri raf-
hlöðu og nemur
sjálf þegar hún er að
verða ramagnslaus. Þá
heldur hún aftur í móður-
stöðina þar sem hún hleðst þangað
til hún getur aftur farið af stað til
að klára verkið sem henni var
ætlað.
Hægt er að nota ryksuguna
eins oft og maður vill, enda ekki
amalegt að koma heim á hverjum
degi í nýryksugað heimili.
Nánari upplýsingar um ryksug-
una Roomba frá iRobot má fá í
síma 848-7632
Ryksuga með
sjálfstæða hugsun
Heimilisiðnaðarfélag Íslands
kynnir íslenskan herrabúning
frá um 1800.
Á síðustu árum hefur áhugi aukist
á eldri gerðum íslensku þjóðbún-
inganna, faldbúningnum, skaut-
búningnum, kyrtlinum, 19. aldar
upphlutnum og nú íslenska herra-
búningnum. Í nokkur ár hefur
verið boðið upp á námskeiðaröð í
því að sauma þessa búninga og er
Heimilisiðnaðarfélag Íslands eini
aðilinn sem veitir þessa þjónustu.
Heimilisiðnaðarfélagið mun
kynna íslenskan herrabúning frá
um 1800, miðvikudaginn 24. janúar
klukkan 20.00 í húsnæði félagsins
við Laufásveg 2. Þar verður kynn-
ing á búningnum, veittar upplýs-
ingar um hvernig skal klæðast
honum og upplýsingar um nám-
skeið í að sauma íslenskan herra-
búning sem hefst í febrúar.
Búningurinn er dæmigerður
fyrir klæðnað íslenskra karla um
1800. Það sem einkennir búninginn
eru; treyja tvíhneppt og innanund-
ir tvíhneppt vesti. Buxur eru svo-
kallaðar lokubuxur hnésíðar eða
síðar.
Herrabúningurinn kynntur