Fréttablaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 4
Meirihluti svar- enda, eða 62,1 prósent, í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins segir að Ríkisútvarpið eigi ekki að keppa við einkarekin fyrir- tæki á auglýsingamarkaði. 37,9 prósent svara því til að Ríkis- útvarpið eigi að vera áfram á auglýsingamarkaði. Konur eru frekar á því en karl- ar að Ríkisútvarpið eigi ekki að keppa á auglýsingamarkaði við einkarekin fyrirtæki. 63,9 pró- sent kvenna segjast ekki vilja að Ríkisútvarpið sé í þessari sam- keppni, en 60,4 prósent karla. Lítill munur er á skoðunum fólks eftir búsetu, 62,5 prósent þeirra íbúa sem búa á höfuðborgar- svæðinu og tóku afstöðu til spurn- ingarinnar sögðust ekki vilja að Ríkisútvarpið væri í samkeppni við einkarekin fyrirtæki um aug- lýsingar, en 61,6 prósent íbúa utan höfuðborgarsvæðisins. Ef litið er til afstöðu fólks eftir því hvaða stjórnmálaflokk það segist myndu kjósa ef boðað væri til kosninga nú, er stuðningur framsóknarfólks mestur við að Ríkisútvarpið sé á auglýsinga- markaði. Meirihluti stuðnings- manna Framsóknarflokksins, eða 55,9 prósent, vill að Ríkisútvarp- ið sé á auglýsingamarkaði, en 44,1 prósent vill það ekki. Stuðningsfólk Frjálslynda flokksins skiptist í tvær jafnar fylkingar í afstöðu sinni til spurn- ingarinnar. 50,0 prósent þess segjast vilja að Ríkisútvarpið sé áfram í samkeppni á auglýsinga- markaði og 50,0 prósent eru því mótfallin. 61,6 prósent stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins vilja ekki að Ríkisútvarpið sé á auglýsinga- markaði, en 38,4 prósent segjast vilja að Ríkisútvarpið keppi við einkarekin fyrirtæki á auglýs- ingamarkaði. Tæplega tveir þriðju þeirra sem segjast myndu kjósa Vinstri græn vilja Ríkisútvarpið af aug- lýsingamarkaði eða 66,3 prósent. 33,7 prósent stuðningsfólks Vinstri grænna vilja að Ríkisút- varpið sé enn á auglýsingamark- aði. Minnstur er stuðningur meðal kjósenda Samfylkingar við að Ríkisútvarpið keppi við einka- rekin fyrirtæki á auglýsinga- markaði og segjast einungis 22,3 prósent þeirra að svo eigi að vera. 77,7 prósent stuðningsfólks Sam- fylkingar eru því hins vegar mót- fallin. Þeir sem segjast myndu kjósa eitthvað annað en þá stjórnmála- flokka sem nú eiga fulltrúa á Alþingi skiptust jafnt á milli þeirra sem vilja að Ríkisútvarpið keppi á auglýsingamarkaði og þeirra sem vilja það ekki. Hafa skal samt í huga að þessi hópur var mjög lítill. Af þeim sem ekki gáfu upp hvaða stjórnmálaflokk þeir myndu kjósa, segjast 39,5 pró- sent þeirra að Ríkisútvarpið eigi að keppa á auglýsingamarkaði, en 60,5 prósent eru því mótfall- in. Hringt var í 800 kjósendur laugardaginn 20. janúar og skipt- ust svarendur jafn milli kynja og hlutfallslega eftir kjördæmum. Spurt var; Á Ríkisútvarpið að keppa við einkarekin fyrirtæki á auglýsingamarkaði. 92,1 prósent svarenda tóku afstöðu til spurn- ingarinnar. Vilja auglýsingar burt af RÚV 62 prósent svarenda í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins segja að Ríkisútvarpið eigi ekki að keppa við einkarekin fyrirtæki á auglýsingamarkaði. Einungis meirihluti stuðningsfólks Framsóknarflokksins vill að Ríkisútvarpið sé á auglýsingamarkaði. Meirihluti þeirra sem segjast myndu kjósa annan flokk vill það ekki. Maður á þrítugs- aldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til tveggja vikna í tengslum við bruna sem kom upp í íbúðarhúsi í Þorlákshöfn aðfara- nótt laugardags. Maður og kona eru einnig í haldi lögreglu í tengslum við málið. Talið er að kveikt hafi verið í húsinu. Í húsinu kviknaði um klukkan fjögur aðfaranótt laugardags. Enginn var í íbúðinni sem kveikt var í, en hún brann til kaldra kola. Hinum megin í húsinu býr kona með tvö börn, og komust þau klakklaust út. Maðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi var handtekinn á laugardag þar sem hann reyndi að nota greiðslukort sem stolið var úr húsinu í verslun í Reykja- vík. Þýfi úr húsinu fannst við hús- leit á heimili unnustu hans. Hún er í haldi lögreglu og verður gerð krafa um gæsluvarðhald yfir henni. Þriðji maðurinn er einnig í haldi, grunaður um aðild. Sautján ára stúlku og tvítug- um karlmanni sem einnig voru handtekin vegna málsins, hefur verið sleppt. Rangar tölur birtust með súluriti um fylgi stjórnmálaflokkanna á forsíðu Fréttablaðsins í gær. Réttar tölur eru; B 7,4%, D 40,2%, F 10,0%, S 21,2%, V 19,4%. Aðrir mældust með 1,7% fylgi. Samanlagður þingmannafjöldi í grafi var 62 þingmenn en ekki 63. Skýring þess er að samkvæmt könnuninni ætti einn þingmaður að falla framboði aldraðra og/eða öryrkja í skaut, ef landið væri eitt kjördæmi. Miðað við dreifingu fylgisins á kjördæmin myndi það þó ekki duga til að koma manni að í neinu þeirra. Næsti þingmaður inn yrði þingmaður Vinstri grænna, en verulega lítill munur er á 13. þingmanni Vinstri grænna, 27. manni Sjálfstæðisflokks og fimmta manni Framsóknarflokks. Einn í gæsluvarð- haldi eftir íkveikju Vinstri grænn síðastur inn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.