Fréttablaðið - 22.01.2007, Page 6
Risa
útsa
la
H
im
in
n
o
g
h
af
/S
ÍA
Opið mánud.–föstud. 8–18, laugard. 10–16 og sunnud. 12–16
Drekkur þú kaffi?
Hefurðu séð kynlífsmyndbandið
með Guðmundi í Byrginu?
Lögregla stöðvaði
fimmtán ára ökuþór á Kringlu-
mýrarbraut í Reykjavík um
klukkan sjö í gærmorgun. Honum
var skilað heim til sín við lítinn
fögnuð foreldra að sögn
varðstjóra. Drengurinn hafði
tekið fjölskyldubílinn í leyfisleysi.
Aðfaranótt laugardags var
nokkuð erilsöm hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu og nokkuð
um slagsmál í miðbænum. Þó leið
nóttin án þess að nokkur slasaðist
alvarlega.
Tók fjölskyldu-
bílinn án leyfis
Fjöldi Íslendinga sem
skráðir eru í þjóðkirkjuna hefur
haldist nokkuð jafn undanfarin
fimm ár, á sama tíma og lands-
mönnum hefur fjölgað verulega.
Í dag eru um 82 prósent Íslend-
inga skráð í þjóðkirkjuna, en
voru tæp 87 prósent árið 2002,
samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu Íslands.
Á sama tíma og þessi þróun á
sér stað hefur þeim sem skráðir
eru í Ásatrúarfélagið fjölgað tals-
vert.
Félagar voru í desember 2006
orðnir 1.039 talsins, samanborið
við 628 fimm árum áður.
Eru þeir nú um 0,34 prósent af
landsmönnum öllum, samanborið
við 0,22 prósent árið 2002.
Einnig er lítilleg aukning í Frí-
kirkjusöfnuðunum þremur, sem
telja nú samanlagt tæplega tuttug-
asta hvern landsmann.
Þeim sem standa utan trúfélaga
hefur fjölgað nokkuð, en eru svip-
að hlutfall af heildarfjölda Íslend-
inga. Í lok árs 2006 voru 2,6 pró-
sent utan trúfélaga, og hefur
hlutfallið þokast hægt upp á við
frá árinu 2002, þegar 2,33 prósent
voru utan trúfélaga.
Fjöldi þeirra sem skráðir eru í
önnur trúfélög hefur ýmist haldist
svipaður eða minnkað lítillega sem
hlutfall af fjölda Íslendinga.
Fjölgar mikið í Ásatrúarfélaginu
Bandaríkjamaðurinn
Joshua Hanson lifði á ótrúlegan
hátt af þegar hann féll út um
hótelglugga á 17. hæð að því er
kemur fram á heimasíðu BBC.
Hanson hafði verið að
skemmta sér við drykkju um
kvöldið og var á leið á hótelher-
bergið sitt. Eitthvað lá honum á í
draumalandið því þegar lyftan
stoppaði á 17. hæð tók hann á
harðasprett út ganginn þar sem
hann missti síðan jafnvægið með
þeim afleiðingum að hann féll út
um gluggann sem náði frá lofti til
gólfs.
Hanson fannst á stéttinni fyrir
framan hótelið vafinn inn í
skyggnið yfir anddyrinu sem
hafði dregið úr fallinu. Var hann
með innvortis meiðsl og mörg
beinbrot en búist var við því að
hann næði sér að fullu.
Lifði af að falla
niður 17 hæðir
Tíu ára Grindvíkingur, Guðlaug Erla
Björgvinsdóttir, er fyrsta barnið og ein af örfáum
einstaklingum í Bretlandi sem hefur fengið leyfi til
að fá tilraunalyfið Avastin inn í hægra auga til að
reyna að stöðva blæðingu í auganu.
Guðlaug Erla fæddist með æxli í báðum augum og
voru æxlin fjarlægð þegar hún var eins og hálfs árs
auk þess sem hægra augað var tekið. Hún gekkst
undir átta lyfjameðferðir, geislameðferð og þrýsti-
meðferð. Í fyrrahaust hófst blæðing við örið í vinstra
auga og var hún þá send aftur til Bretlands.
„Það sem er sérstakt í hennar sögu er að nú sjö
árum seinna fer sjónin í hennar eina auga að gefa sig.
Við vorum hræddust við að aftur hefði myndast æxli
og sendum hana þess vegna til augnkrabbameins-
læknis sem meðhöndlaði hana í Bretlandi. Hann taldi
að svo væri ekki,“ segir Haraldur Sigurðsson augn-
læknir.
Haraldur segir að æðagúll hafi myndast út frá
örinu í hægra auga. Æðar vaxi og leki inn í augað.
Guðlaug Erla sé því í geislameðferð til að brenna
burt þær æðar sem hafi myndast auk þess sem hún
fái lyf til að draga úr myndun æða. Þessa meðferð
þurfi hún að fá endurtekið en ekki sé vitað hversu oft
eða lengi.
Sigrún Gunnarsdóttir, móðir Guðlaugar Erlu,
segir að þegar Guðlaug Erla hafi verið lítil hafi hún
verið hætt að fara út og forðast birtu. Það hafi lagast.
Í haust hafi augasteinninn hins vegar verið orðinn
öðruvísi en venjulega og þess vegna hafi hún leitað
til læknis. Hún hafi verið send strax til Bretlands og
gengist undir aðgerð 21. desember.
Guðlaug Erla þurfti að fá sérstakt leyfi heilbrigð-
isyfirvalda í Bretlandi til að fá lyfið og fékkst það
hálftíma fyrir aðgerð. Ef það hefði ekki fengist hefðu
læknarnir aðeins beitt geislameðferð og þá hefði hún
misst sjónina innan hálfs árs. Guðlaug Erla fær lyf
og geislameðferð á sex vikna fresti næstu árin. Ekki
skýrist strax hvort meðferðin beri tilætlaðan árang-
ur.
„Hún kvartar ekkert og hefur ekki fundið fyrir
neinum neikvæðum áhrifum. Hún hefur bara sagt að
verði hún blind þá megi ég ekki finna föt fyrir hana.
Þá vill hún fá vinkonu sína í heimsókn áður en hún
fer í skólann,“ segir Sigrún.
Styrktarreikningur Guðlaugar Erlu er númer
1193-26-1996 og kennitalan er 051278-5509.
Tilraunalyf gæti forð-
að barni frá blindu
Íslensk stúlka er fyrsta barnið og ein örfárra einstaklinga sem hafa fengið lyfið
Avastin í Bretlandi. Bresk heilbrigðisyfirvöld gáfu leyfi fyrir því hálftíma fyrir
geislameðferð. Hefði leyfi ekki fengist hefði hún orðið blind innan hálfs árs.
Nefskattur verður
14.580 krónur á ári á hvern ein-
stakling taki frumvarp mennta-
málaráðherra um Ríkisútvarpið
ohf. gildi. Fimm manna fjölskylda
á aldrinum 16 til 70 ára gæti þurft
að borga nefskatt upp á rúmlega
tvöfalda þá upphæð sem hún borg-
ar nú í afnotagjöld.
„Svona gjaldtaka bitnar á
mannmörgum heimilum,“ segir
Kristján Möller, þingmaður Sam-
fylkingarinnar.
Nefskattur tengist ekki við-
tækjaeign eins og afnotagjaldið og
leggst því á alla einstaklinga yfir
16 ára aldri sem greiða tekjuskatt,
hafi þeir yfir 850.000 krónur í árs-
tekjur. Fyrirtæki munu aðeins
greiða eitt gjald óháð stærð þeirra,
að sögn Kristjáns.
Um 2200 einstaklingar á land-
inu greiddu aðeins fjármagns-
tekjuskatt á nýliðnu ári, en engan
tekjuskatt. Þeir þurfa ekki að
greiða nefskattinn.
„Á að setja fyrst einhver vit-
laus lög og laga þau seinna meir?“
spyr Kristján.
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir menntamálaráðherra segir fáar
fjölskyldur falla í þann flokk sem
Kristján ræðir um. „Þetta fer allt
eftir tekjunum og meginþorri
hinna dæmigerðu fjölskyldna mun
hafa léttari greiðslubyrði en áður.
Þeir sem ekki hafa yfir 850.000
krónur í árstekjur þurfa ekki að
borga nefskattinn,“ segir Þorgerð-
ur Katrín.
„Það þýðir ekki að fara að
breyta skattkerfinu í kringum
frumvarp um Ríkisútvarpið. Nef-
skattur miðast einungis við þá
sem borga tekjuskatt,“ segir Þor-
gerður.