Fréttablaðið - 22.01.2007, Síða 12

Fréttablaðið - 22.01.2007, Síða 12
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Mikil fagnaðarlæti brutust út í Austur-Evrópu þegar tilkynnt var að samningar hefði náðst um úrslit í Eurovision næstu árin. Samningavið- ræður milli austantjaldsþjóðanna hafa staðið í nokkur ár og var aðalþrætuefnið hvaða land ætti að vinna fyrst. Loksins var ákveðið að draga og kom nafn Slóveníu fyrst upp úr hattinum. Því næst var varpað hlutkesti til að skera úr um hvort ætti að fara rang- eða réttsælis hringinn um Austur-Evrópu og varð réttsælis ofan á. Þau tíðindi glöddu Króata sem munu fagna sigri í Eurovision 2008 en Ungverjar sitja eftir með sárt ennið. Þeir munu ekki vinna fyrr en árið 2298, síðastir Austur-Evrópuþjóða. Vill aðstoð við að bera kennsl á fólk Óhugnanlegt og viðkvæmt mál Ísak Sigurgeirsson versl- unarmaður í Ásbyrgi er þekktur fyrir þjónustulund og hefur ekki vílað fyrir sér að opna verslunina fyrir sveitunga sína þegar vantað hefur nauðsynjar í búið. Verslunin Ásbyrgi í Keldu- hverfi verður lokuð í vetur alla daga nema föstudaga. Eigandinn Ísak ætlar í vetr- arfrí og stefnir á heimsókn til fjölskyldu konunnar í Asíu. „Ég auglýsti framan á hurðinni í október í fyrra að ég myndi loka versluninni yfir vetrartímann alla daga nema föstudaga,“ segir Ísak Sigurgeirsson, verslunarmaður í versluninni Ásbyrgi í Kelduhverfi, sem auglýst hefur nýjan opnunar- tíma á heimasíðunni kelduhverfi. is. Framvegis mun verða lokað í versluninni nema á föstudögum. Ísak og eiginkona hans eru á leiðinni í vetrarfrí til Asíu og Ísak hefur engar áhyggjur af að við- skiptavinirnir lagi sig ekki að breyttum aðstæðum. „Nú verða viðskiptavinirnir að koma einu sinni í viku til að sækja mjólkur- skammtinn sinn. Þetta kostar skipulag en það er betra að við- skiptavinirnir áætli magnið frek- ar en ég svo þeir sitji ekki uppi með of miklar birgðir,“ segir Ísak og bætir við að það sé lítið að gera í versluninni yfir vetrartímann enda íbúar Kelduhverfis ekki nema um hundrað talsins auk þess sem stutt sé í verslanir á Húsavík. Hins vegar sé nóg að gera yfir sumartímann enda Ásbyrgi einn af vinsælustu áfangastöðum landsins. „Sveiflurnar verða allt- af meiri og meiri á hverju ári og þótt það hafi verið metsala í sumar minnkar þetta með hverju árinu,“ segir Ísak og bætir við að 75 prósent gesta Ásbyrgis séu útlendingar. „Íslendingar fara meira eftir veðrinu og eins og heyrist í útvarpinu er ýmist hlýj- ast hjá okkur eða kaldast svo það eru sveiflur í því líka.“ Ísak er þekktur í sveitinni fyrir liðleika sinn og þjónustulund. Þrátt fyrir takmarkaðan opnunar- tíma hafa sveitungar getað stólað á hjálpsemi hans þegar nauðsynj- ar vanta í búið. „Ég kann best við þegar fólk hringir á undan sér. Það er ekki hægt að ganga að mér vísum því ég er ekki alltaf heima. En ef fólk vantar eitthvað finnst mér sjálfsagt að afgreiða. Ef ég kem að gagni er ég ánægður.“ Eins og áður sagði er Ísak á faraldsfæti og mun því ekki afgreiða viðskiptavini sína um tíma. „Ég á aðra fjölskyldu í Asíu og hef ekki heimsótt hana síðan árið 2003. Það mun einhver vakta verslunina fyrir mig en útköllum vegna sígarettupakka verður ekki lengur sinnt. Á heimasíðunni setti ég inn leiðbeiningar um bensín- sjálfsalann því hann á til að standa á sér vegna ísingar en ég veit að fólk mun bjarga sér,“ segir Ísak og bætir við að hann sé ávallt sátt- ur við lífið og tilveruna. „Ég er vanur að laga mig að breyttum aðstæðum og það eru engin sár- indi þótt tímarnir breytist. Það er samt ýmislegt sem mætti betur fara í pólitíkinni en ég vona að við ráðum við það.“ Ef ég kem að gagni er ég ánægður Úr takt við tímann? Með hjartað í réttri bók

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.