Fréttablaðið - 22.01.2007, Síða 17

Fréttablaðið - 22.01.2007, Síða 17
Í fjölmiðlum um helgina var fjallað um nýtt skipu- lag á Glaðheimalandinu í Kópavogi og vinnubrögð í tengslum við þá afgreiðslu. Breytt aðal- og svæð- isskipulag var afgreitt af hálfu Kópavogsbæjar í bæjarstjórn þann 14. nóvember. Fulltrúar Samfylking- arinnar vissu af athugasemdum sem höfðu borist frá Garðabæ í lok október og höfðu verið lagðar fram í skipulagsnefnd. Þar er vísað í greinargerð og álitsgerð sem bæjar- stjórn Garðabæjar hafði látið vinna. Þar er bent á ákveðna annmarka á svo miklu byggingarmagni og komu þá fram efa- semdir af hálfu Garð- bæinga varðandi umferð- arsköpun samfara þetta mikilli uppbyggingu. Samkvæmt upplýsingum sem fulltrúar Samfylk- ingarinnar fengu í skipulagsnefnd bárust athugasemdirnar of seint og voru byggðar á röngum forsendum. Fulltrúar Samfylkingarinnar ósk- uðu eftir álitsgerðinni sem Garð- bæingar byggðu athugasemdir sínar á en var tjáð að þau gögn væru ekki okkur aðgengileg enda plagg sem Garðabær hefði látið vinna fyrir sig. Ég tók málið upp í bæjarstjórn í desember og ítrek- aði þá ósk mína að fá að sjá umrædda álitsgerð enda eðlilegt, ef bæjaryfirvöld í Garðabæ gera alvarlegar athugasemdir við skipulagið í Glaðheimum byggða á tilteknum gögnum, að við fáum að sjá þau gögn. Fyrir viku barst mér svo þessi álitsgerð og hef ég nú fengið staðfest frá skipulagsstjóra Garðabæjar að álitsgerðin ásamt minnisblaði var send með athuga- semdunum þann 24. október. Athugasemdirnar skiluðu sér sem sagt til skipulagsnefndar en ekki fylgigögnin, þ.e. álitsgerðin ásamt minnisblaði. Hvers vegna fékk ég ekki umrædda álitsgerð eftir að hafa óskað ítrekað eftir henni? Það er auðvitað ámælisvert því athugasemdir Garðbæinga byggja á þessum gögnum. Það er einnig ámælisvert að bæjaryfirvöld í Kópavogi skyldu ekki hafa upplýst skipulagsstofn- un um athugasemdir Garðabæjar þegar þær augljóslega lágu fyrir. Auk þess liggur fyrir í nýlegum kaupsamningi á Glaðheimalandinu , að kaupendur hyggjast byggja þar allt að 180.000 fm í stað 150.000 fm eða um 20% meira byggingar- magn en hingað til hefur verið gert ráð fyrir í skipulagstillögum. Bæjarstjóri vænir mig um að draga taum Garðbæinga en það má öllum vera ljóst að skipulags- breytingar sveitarfélaga eru ekki þeirra einkamál og verða þau að vera samstíga hvað varðar fram- tíðarskipulag höfuðborgarsvæðis- ins. Í stóru samhengi má lýsa vinnu- brögðunum varðandi Glaðheima, bæði uppkaupin sl. vor, skipulag svæðisins ásamt þeim ruðningsá- hrifum sem það hefur á vatns- vernd, vatnsveitu og eignarnám á Vatnsenda, við hraðskák – þar sem leikirnir eru ekki hugsaðir fram í tíman vonandi að við lendum ekki í pattstöðu! Höfundur er oddviti Samfylk- ingarinnar í bæjarstjórn Kópa- vogs Hafa skal það sem sannara reynist um Glaðheima

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.