Fréttablaðið - 22.01.2007, Side 57

Fréttablaðið - 22.01.2007, Side 57
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Egilsstaðir: Miðvangur 1, sími: 471 2954 Opið virka daga: 10-18 og laugardaga: 11-16 ÚTSALA 50% ALLT AÐ AFSLÁTTUR HeilsuRúm Gjafavara Svefnsófar SófarStólar Dýnur „Ef ekkert óvænt kemur upp á í dag eða á morgun verð ég væntanlega orðinn leikmaður Burnley á morgun,“ sagði Jóhann- es Karl Guðjónsson þegar Frétta- blaðið náði tali af honum í gær. Þá var hann nýlentur í Manchester á leið til fundar við forráðamenn Burnley sem leikur í ensku 1. deildinni. Í sumar gekk hann til liðs við hollenska úrvalsdeildarliðið AZ Alkmaar frá Leicester City. Louis van Gaal, þjálfari liðsins, hafði þó greinilega lítil not fyrir Jóhannes Karl. Í kjölfarið sagði hann í sam- tali við Fréttablaðið í upphafi árs að hann vildi losna frá félaginu og komast aftur til Englands. Fljótlega kom Burnley í mynd- ina en Steve Cotterill, stjóri liðs- ins, hefur miklar mætur á Jóhann- esi Karli og lagði ríka áherslu á að fá hann til liðs við sig. Honum var þó sýndur áhugi af fjöldamörgum liðum, meðal annarra FC Kaup- mannahöfn. Um helgina náðu Burnley og AZ Alkmaar samkomulagi um kaupverð og útlit fyrir að hann semji við fyrrnefnda félagið til þriggja og hálfs árs. „Mér líst vel á þetta. Ég mun núna fara sjálfur í samningavið- ræður og á víst að fara í læknis- skoðun á morgun. Eftir hana verð- ur þetta allt saman orðið klappað og klárt.“ Hann segist ekki þekkja mikið til félagsins en hefur þó mætt því áður á heimavelli þess, Turf Moor. „Ég kannast við knattspyrnustjór- ann og þekki hann bara af góðu. Hann vildi fá mig og það er gott að vita að hann hefur trú á mér,“ sagði Jóhannes Karl en Burnley er rétt norðan við Manchester. Burnley er í 13. sæti deildar- innar með 38 stig, átta stigum á eftir Cardiff sem er í sjötta sæti. Liðið á hins vegar tvo leiki til góða á flest lið í deildinni. Jóhannes Karl semur við Burnley í dag Davíð Georgsson, handboltamaðurinn efnilegi úr ÍR, hefur gengist undir aðgerð vegna meiðsla á hné. Davíð er aðeins nítján ára en hefur leikið lykilhlutverk með ÍR í DHL- deildinni og skorað mikið. „Þessi meiðsli hafa verið að hrjá mig í allan vetur en hnéð gaf sig síðan bara á æfingu. Ég fór í segulóm- un og þar kom í ljós að liðþófinn var rifinn og ég þurfti í aðgerð,“ sagði Davíð eftir aðgerðina en hún heppnaðist vel. Leikmenn ÍR fóru í vikunni til Kanaríeyja en Davíð komst ekki með vegna meiðslanna. „Það voru vonbrigði að komast ekki út með strákunum en þetta var það eina í stöðunni. Ég verð frá í tvær til þrjár vikur og býst við að verða klár þegar mótið byrjar. Maður verður bara rólegur heima í sófanum og fylgist með HM,“ sagði Davíð Georgsson. Ligg bara í leti og horfi á HM Sænski sóknarmaðurinn Henrik Larsson hefur lýst því yfir að hann vilji klára tímabilið á Old Trafford. Lánssamningur hans við Manchester United rennur út 12. mars og þá á hann að snúa aftur til Helsingjaborgar. Sir Alex Ferguson vill halda Larsson eins lengi og mögulegt er en sænska félagið gaf það út í síðustu viku að lánssamningurinn yrði ekki lengdur. Vill klára tíma- bilið hjá United Nokkur félög í Evópu hafa áhuga á hinum sextán ára Kolbeini Sigþórssyni. Hann hefur verið til reynslu hjá norska úrvalsdeildarfélaginu Álasundi síðustu daga og spilaði á laugar- dag æfingaleik gegn Hødd. Hann varð þó að fara af velli vegna meiðsla snemma leiks. „Okkur lýst mjög vel á þennan leikmann. Hann er ótrúlega góður miðað við að vera þetta ungur,“ sagði Sturla Voll, aðstoðarþjálfari Álasunds, við Sunnmørsposten og greinilegt að Álasund vill semja við Kolbein. Samkvæmt blaðinu hafa hollenska liðið PSV Eindhoven og enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn einnig mikinn áhuga á Kolbeini. Hann er uppalinn hjá Víkingi en spilaði með HK síðasta sumar, samningur hans er nú runninn út. Stendur sig vel hjá Álasundi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.