Fréttablaðið - 21.02.2007, Síða 2
Þórarinn, ætlar þú að fá þér
Bubba Ipod?
Valgerður Sverrisdóttir
utanríkisráðherra hélt til Úganda í
gær. Ráðherrrann mun hitta
ráðamenn í landinu og kynna sér
starfsemi Þróunarsamvinnustofn-
unar Íslands. Auk þess mun
Valgerður heimsækja flótta-
mannabúðir í Paderhéraði í
Norður-Úganda, en íslensk
stjórnvöld styðja skólamáltíða-
verkefni þar á vegum Matvæla-
áætlunar Sameinuðu þjóðanna
(WFP).
Frá Úganda heldur utanríkis-
ráðherra til Jóhannesarborgar og
Höfðaborgar í Suður-Afríku þar
sem hún fer fyrir viðskiptasendi-
nefnd á vegum Útflutningsráðs.
Fundar með
ráðamönnum
Stjórn Samtaka
ferðaþjónustunnar leggst gegn
tillögum um að Norðurvegur
byggi heilsársveg yfir Kjöl.
Í tilkynningu frá samtökunum
segir að vegurinn verði lagður
yfir ósnortið land í stað þess að
nýta núverandi vegarstæði, að
hann skeri í sundur göngu- og
reiðleiðir norðan Hofsjökuls og
svipti hálendið sérkennum
sínum.
Samtökin vilja árétta sérstak-
lega að náið samráð verði haft
við þau þegar kemur að útfærslu
vega sem tengjast fjölsóttum
ferðamannastöðum.
Leggjast gegn
nýjum Kjalvegi
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
VOLKSWAGEN GOLF 1.6
Nýskr. 10.05 - Beinskiptur - Ekinn 22 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
1.690
.000.
-
Yfirstjórn Bandaríkjahers í Flórída hefur
gert áætlanir um hvernig staðið skuli að loftárásum á
Íran, yrði ákvörðun tekin um að ráðast á landið. Banda-
ríkjastjórn ítrekar þó að engin áform séu uppi að svo
stöddu um árásir á Íran.
Fréttastofa breska útvarpsins BBC skýrði frá þessu
í gær og vitnar þar til ónafngreindra embættismanna í
Bandaríkjunum.
Samkvæmt áætlunum yfirstjórnar hersins er mein-
ingin að loftárásir verði gerðar annars vegar á allar
helstu bækistöðvar íranska hersins og hins vegar kjarn-
orkuver og aðra staði sem tengjast kjarnorkuvinnslu.
Meðal annars gera áætlanirnar ráð fyrir því að not-
aðar verði neðanjarðarsprengjur, sem grafa sig niður í
jörðina áður en þær springa, til þess að eyðileggja
kjarnorkuverið í Natanz sem er á 25 metra dýpi.
Í gær rann út sá frestur, sem Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna veitti Írönum til þess að hætta að auðga úran.
Íranar urðu ekki við þeim kröfum og mega því búast
við hertum efnahagslegum refsiaðgerðum af hálfu
Öryggisráðsins.
Írönsk stjórnvöld hafa látið sér fátt finnast um hót-
anir Vesturlanda. Í vikunni efndu þau til hernaðaræf-
inga í Íran sem um 60 þúsund hermenn taka þátt í.
Skipuleggur árásir á Íran
Karlmaður um fer-
tugt sem nú situr í gæsluvarðhaldi
gerði tilraun til að smygla inn
mesta magni af kókaíni sem reynt
hefur verið að smygla til landsins
á einu bretti. Um var að ræða tæp
fjögur kíló af kókaíni og lítilræði
af amfetamíni falið í Mercedes
Benz Sprinter sendibíl sem fluttur
var inn frá Cuxhaven í Þýska-
landi.
Tollgæslan í Reykjavík fann
efnin 11. nóvember síðastliðinn
vandlega falin í bílnum sem hafði
verið fluttur til landsins með Sam-
skipum og stóð í Sundahöfn. Bíll-
inn var sóttur í byrjun febrúar og
maðurinn handtekinn 9. sama
mánaðar. Hann var skráður sem
viðtakandi bílsins. Daginn eftir
var maðurinn í Héraðsdómi
Reykjavíkur úrskurðaður í þriggja
vikna gæsluvarðhald. Hann áfrýj-
aði til Hæstaréttar, sem staðfesti
úrskurðinn. Samkvæmt upplýs-
ingum Fréttablaðsins hefur mað-
urinn áður setið í fangelsi erlendis
fyrir fíkniefnabrot.
Tveir aðrir hafa verið yfir-
heyrðir í málinu, sá síðari í gær,
en þeim var sleppt að lokinni yfir-
heyrslu. Greining á styrkleika
fíkniefnanna liggur enn ekki fyrir.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni-
efnadeildar lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, segir rannsókn
málsins halda áfram af fullum
krafti.
Rétt rúm vika er síðan tvær
miðaldra íslenskar konur voru
handteknar með tæp 700 grömm
af kókaíni falin innvortis og innan
klæða þegar þær komu saman
með flugi frá Amsterdam.
Samkvæmt samantekt SÁÁ á
götuverði kókaíns var verð á
grammi af kókaíni tæplega 14 þús-
und krónur og gæti andvirði kóka-
ínsins í sendibílnum numið 50
milljónum króna að minnsta kosti.
EF efnið er sterkt kann að vera
hægt að drýgja það tvö- eða þre-
falt og gæti því söluverðmætið
hæglega orðið allt að 150 milljónir
króna.
Mikil óánægja er á
meðal hóps kennara Iðnskólans í
Reykjavík vegna framgöngu Bald-
urs Gíslasonar skólameistara í
tengslum við fyrirhugaða samein-
ingu Iðnskólans og Fjöltækniskóla
Íslands. Andrúmsloftinu innan
skólans er lýst sem rafmögnuðu
vegna stöðugra deilna; kennarar
óttist um réttindi sín en þori ekki
að hafa sig í frammi vegna þess að
skólameistari missi ítrekað stjórn
á skapi sínu.
Baldur Gíslason skólameistari
segir það alrangt að mikill urgur
sé í skólanum og fjölmenn könnun
hafi leitt í ljós að 40 prósent kenn-
ara séu hlynntir sameiningu en 50
prósent á móti. „Allar aðrar kann-
anir bið ég fólk að taka ekki mark
á. Sérstaklega könnun sem gerð
var á fámennum aðalfundi kenn-
arafélags skólans og haldið hefur
verið á lofti.“ Hér vísar Baldur til
könnunar sem gerð var á aðal-
fundi kennarafélags skólans þar
sem áætlunum um sameiningu var
mótmælt og stór hluti fundar-
manna greiddu atkvæði á móti.
Kennarar innan skólans gagn-
rýna að hugmyndir um sameining-
una voru ekki kynntar í skóla-
nefnd, sem er æðsta stjórnvald
skólans, fyrr en þær voru á loka-
stigi. Baldur staðfestir að ekki
hafi verið haft samráð við skóla-
nefnd og það hafi verið ákvörðun
hans og Jóns Stefánssonar, skóla-
meistara Fjöltækniskólans, að
hafa þennan háttinn á. „Það er
ekki á valdsviði nefndarinnar að
taka ákvörðun um þetta og við
kynntum hugmyndirnar ekki held-
ur fyrir öðrum samstarfsmönn-
um.“ Baldur segir að vel megi
gagnrýna þessa ákvörðun en hann
og Jón hafi metið það svo að heilla-
drýgst væri að halda þessum
áformum leyndum á meðan þeir
mótuðu hugmyndirnar um sam-
eininguna.
Inntur eftir því að oft sjóði upp
úr í samskiptum hans og kennara
skólans, og hann eigi erfitt með að
hemja skap sitt, segist Baldur
kannast við. „Ég kannast alveg við
það að það fýkur í mig þegar mér
er misboðið. En ég geng ekki fram
af ósanngirni.“
Baldur segir að sameining skól-
anna sé mikið framfaraspor fyrir
iðn- og starfsmenntun í landinu en
kannast við ótta kennara um að
viss hluti nemenda muni síður
leita þar menntunar í nýrri
umgjörð. „Þó að rekstri skólans sé
breytt erum við bundnir af náms-
krá og þjónustusamningur okkar
við menntamálaráðuneytið skyld-
ar okkur til að halda áfram með
það nám sem skólinn hefur boðið
upp á til þessa.“
Skólameistari sætir
ákúrum kennara
Fyrirhuguð sameining Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskóla Íslands mætir
andstöðu innan Iðnskólans. Skólameistari er sagður ganga fram af offorsi og
vera erfiður í umgengni. Hann segir persónulega óvild í sinn garð lita málið.
Stjórn Skógræktar-
félags Reykjavíkur hefur
samþykkt drög að kæru á hendur
Kópavogsbæ og verktakafyrir-
tækinu Klæðningu fyrir jarðrask
og spjöll í Heiðmörk vegna
lagningar vatnsleiðslu. Að teknu
tilliti til ábendinga á fundi
félagsins var gengið frá kærunni
í gær og hún send lögreglu til
meðferðar.
Lögreglurannsókn, sem væntan-
lega hefst með tilkomu kærunnar,
mun líklega leiða í ljós hvað varð
af trjánum og hvort einhver
hagnaðist af hvarfi þeirra. Talið
er að 100 til 300 tré hafi verið
fjarlægð úr Heiðmörk þegar
verktakar á vegum Kópavogsbæj-
ar grófu þar fyrir og lögðu
vatnsleiðslu.
Kærir jarðrask-
ið í Heiðmörk
Hátíðahöld í tilefni
af sjötugsafmæli Haralds V
Noregskonungs hefjast í Ósló í
dag, en þau munu ná hámarki
með veislu um helgina. Í hana er
boðið meira en 50 konungum,
drottningum, öðru tiginbornu
fólki og kjörnum þjóðhöfðingj-
um. Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, verður á meðal
gesta.
Sjötugsafmæli konungs er í
dag, miðvikudag. Hann er þriðji
konungur Noregs frá því norska
konungdæmið var endurreist árið
1905 og tók við krúnunni af föður
sínum, Ólafi V, árið 1991.
Hátíðahöld í
marga daga