Fréttablaðið - 21.02.2007, Side 11

Fréttablaðið - 21.02.2007, Side 11
‘07 70ÁR Á FLUGI HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ W W W. I C E L A N DA I R . I S MADRID MINNEAPOLIS – ST. PAUL ORLANDO BOSTON HALIFAX GLASGOW LONDON STOKKHÓLMUR HELSINKI KAUPMANNAHÖFN OSLÓ BERLÍN FRANKFURT MÜNCHEN MÍLANÓ AMSTERDAM BARCELONA MANCHESTER PARÍS NEW YORK BALTIMORE – WASHINGTON REYKJAVÍK AKUREYRI BERGEN GAUTABORG FLUG OG GISTING Í 4 NÆTUR FRÁ 65.900* KR. PRIVATEERS WHARF „Allir sem heimsækja Halifax fá sér gönguferð um hafnarbakkann og bryggjurnar suðvestanmegin við einstakt hafnarlægið í Halifax. Þarna má eiga ógleymanlegir stundir á góðum degi og fallegum kvöldum. Ég mæli sérstaklega með því að rölta um Privateers Wharf eða Sjóræningjabakkann.“ JÓHANN JÓNSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI + Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is *Á mann í tvíbýli á Delta Barrington eða Delta Halifax **** í Halifax 24.–28. maí og 13.–17. sept. Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting. Ferðaávísun gildir BORGMÍN HALIFAX ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 3 61 31 0 2 /0 7 NÝR ÁFANGASTAÐUR Tveir menn sem lög- reglan á Indlandi grunar um að hafa staðið fyrir sprengjutilræð- inu í lest á leið til Pakistan á sunnu- daginn fengu að stökkva frá borði tuttugu mínútum áður en spreng- ingin varð. Lögregla sendi fjöl- miðlum í gær myndir af hinum grunuðu. Mennirnir fóru um borð í lest- ina þegar hún lagði af stað frá Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, og fóru fljótlega að rífast við miða- vörðinn vegna þess að þeir væru í rangri lest. Var þeim leyft að stökkva úr lestinni þegar hún hægði á sér að sögn Sharad Kumar, yfirmanns í lögreglunni. Finnst mörgum það, að mönnun- um hafi verið leyft að stökkva frá borði, vera til marks um það hve öryggi í lestum sé ábótavant. Í ofan- álag greindi Kumar fjölmiðlum frá því að þrettán lestarfarþegar hefðu komist yfir til Pakistan án vega- bréfa. Ráðherra lestarsamgangna á Indlandi, Lalu Prasad, viðurkenndi fyrir fjölmiðlum eftir sprenging- una að þó málmleitartæki væru til staðar þá skorti búnað til að skoða hvað væri í farangrinum. Að sögn indverska stjórnvalda var sprengingunni ætlað að spilla hægt batnandi samskiptum þjóð- anna sem lengi hafa eldað grátt silfur. Sprengingin banaði 68 manns sem voru flestir frá Pakistan. Í kjölfar sprengingarinnar lýstu leið- togar ríkjanna yfir að friðarvið- ræðum yrði fram haldið. Öryggi ábótavant í lestum Foreldrar sem búa í ríkjum Evrópusambandsins (ESB) munu geta hringt í eitt símanúmer sem er fyrir allt svæðið til að tilkynna um týnd börn sín, gangi áform um þetta eftir. Ókeypis verður að hringja í símanúmerið 116000 og mun þessi þjónusta líklega hefjast í sumar, að því er kemur fram á fréttavef BBC. Vitað er um að minnsta kosti 120 þúsund börn sem eru án eftirlits utan heimalands síns innan ESB að því er evrópsk barnasamtök halda fram. Samtök umboðsmanna barna í Evrópu (ENOC) segja þessa tölu aðeins ná yfir börn sem yfirvöld vita um. Eitt símanúmer fyrir foreldra Valgerður Sverrisdótt- ir utanríkisráðherra fundaði með Mahmoud Ali Youssouf, utanrík- isráðherra Djíbútí, á mánudag- inn. Þau ræddu meðal annars ástand mála í Sómalíu og Erítreu og mannréttindamál, þá sérstak- lega stöðu kvenna og barna í Djíúbútí og aðgerðir ríkisstjórn- arinnar í landinu til að útrýma fátækt. Auk þess ræddu þau framboð Íslands til öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna, orkumál og möguleika landsins til að nýta jarðvarma til orkuframleiðslu í samvinnu við íslenska aðila. Framboð til ör- yggisráðs rætt

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.