Fréttablaðið - 21.02.2007, Page 48
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
NOTES ON A SCANDAL kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
PAN´S LABYRINTH kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
LITTLE CHILDREN kl. 8 og 10.30 B.I. 14 ÁRA
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
KÖLD SLÓÐ/COLD TRAIL kl. 5.45 ENGLISH SUBTITLES B.I. 12 ÁRA
GHOST RIDER kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.30
NOTES ON A SCANDAL kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 5.30, 8 og 10.30
ANNA AND THE MOODS ENSKT TAL kl. 4 og 4.45 STUTTMYND / ÓTEXTUÐ
ANNA & SKAPSVEIFLURNAR ÍSL. TAL kl. 4 og 4.45 STUTTMYND
ROCKY BALBOA kl. 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
VEFUR KARLOTTU ÍSL. TAL kl. 3.40
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5.40
KÖLD SLÓÐ kl. 5.45 B.I. 12 ÁRA
GHOST RIDER kl. 5.40, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA
THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 8 og 10.20
DREAMGIRLS kl. 5.40
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI
SVALASTA SPENNUMYND ÁRSINS
ÓSKARSVERÐLAUNA
TILNEFNING1
Rokkhljómsveitin Sign er farin í
tónleikaferð um landið til að hita
upp fyrir ferð sína til Bandaríkj-
anna í byrjun mars. Sveitin spilar
nú í fyrsta skipti með nýjum bassa-
leikara, Heimi Hjartarsyni, sem
var áður í hljómsveitinni Nevolu-
tion frá Akureyri sem hefur tekið
sér frí frá störfum.
Sign gerði nýverið útgáfusamn-
ing við þýska fyrirtækið Freibank
og er komin langt með að semja
efni á nýja plötu. Sveitinni hefur
einnig verið boðið að vera á safn-
plötu tímaritsins Kerrang! sem
verður gefin út í júní. Þar gera
hinar ýmsu hljómsveitir sínar
útgáfur af þekktum rokkslögurum.
Í Bandaríkjunum mun Sign spila
á tvennum tónleikum í New York
áður en hún spilar á CMW-tónlist-
arhátíðinni í Kanada. Í framhaldi
af vesturförinni fer Sign til Bret-
lands þar sem hún hitar upp á mán-
aðarlöngum túr hjá hljómsveitinni
Wildhearts. Í tilefni af því ætlar
Sign að gefa út nýja útgáfu af smá-
skífunni So Pretty í öllum helstu
vefverslunum og á niðurhali fyrir
farsíma. Í tengslum við þessa tón-
leikaferð mun Sign einnig setja
upp sína eigin vefbúð og selja staf-
rænar útgáfur af öllum plötum
sínum.
Sign í tónleikaferð
Ástralska popp-
stjarnan Kylie Min-
ogue hefur fengið
óvænta aðstoð af
netinu fyrir sína
næstu plötu. Kylie
kynntist skoska
lagahöfundinum
Calvin Harris í
gegnum Myspace-
síðuna og fékk hann
til að semja lög fyrir
væntanlega plötu
sína. „Hún hefur
unnið nokkur lög
með Calvin. Kylie
heyrði það sem hann
hafði gert og fannst
það flott. Samstarf
þeirra gengur vel,“
sagði talsmaður
Kylie.
Calvin Harris, sem er einnig
plötusnúður og upptökustjóri, sló í
gegn á netinu með fyrsta smá-
skífulagi sínu, Acceptable in the
80´s. Kemur
það út á vegum
Sony hinn 12.
mars. Auk þess
að starfa með
Kylie er Harris
á leiðinni í tón-
leikaferð um
Bretland þar
sem hann hitar
upp fyrir hljóm-
sveitina Faith-
less.
Kylie hefur
unnið með
ýmsum laga-
höfundum í
gegnum tíðina,
þar á meðal
Emilíönu Torr-
ini, sem samdi
fyrir hana lagið
Slow ásamt upptökustjóranum Mr.
Dan. Naut lagið mikilla vinsælda
og var tilnefnt til Grammy-verð-
launanna árið 2005.
Myspace til hjálpar
Drengirnir í Baggalúti
troða upp á Bessastöðum
í dag. Guðmundur Pálsson
segir þetta mikinn heiður,
enda séu þeir allir aðdáend-
ur forsetans og konu hans.
„Þetta er gamall draumur. Bagga-
lútur er nú loksins að komast til
æðstu metorða. Þetta er mikill
heiður en allir erum við miklir
aðdáendur forsetans og þá ekki
síður konu hans,“ segir Guðmund-
ur Pálsson, forsöngvari
Baggalúts.
Hljómsveitin mun troða
upp á Bessastöðum í dag í
tilefni afhendingar Eyrar-
rósarinnar þar í dag. Til-
nefnd til verðlauna eru
Safnasafnið, Sumartónleik-
ar í Skálholtskirkju og
Strandagaldur. Verndari
verðlaunanna, sem eru
fyrir afburða menningar-
starf, er einmitt Dorrit
Moussaieff forsetafrú.
Guðmundur segir
Baggalúta alla yfirlýsta
aðdáendur Vigdísar Finn-
bogadóttur. Segir hana
móður okkar allra, sam-
einingartákn og fjall-
konu. Herra Ólafur sé
meira svona öryggis-
ventill.
„Enginn maður í
sögunni hefur áður
verið notaður sem
öryggisventill. Og Dorrit, það
er smá Vigdís í henni. Hún er
meiri samkvæmisdama en
Vigdís og jafn hugguleg.
Það má ekki hverfa. Forset-
inn má ekki hafa einhverja
subbu sér við hlið eða vera
subba. Það er á hreinu. En
fyrst og fremst berum
við ótakmarkaða virðingu fyrir
embættinu sem slíku.“
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvað verður spilað fyrir forsetann
og þá sem verða viðstaddir hina
virðulegu viðhöfn en það verður
eitthvað hámenningarlegt. Og af
slíku efni þykjast Baggalútar eiga
nóg í fórum sínum.
„Þetta leggst mjög vel í okkur.
Við erum mjög spenntir. Og ætlum
allir að vera í sparifötum og nýrak-
aðir. Ekki havaii-skyrtur eða kobb-
oj-galli. Þetta er gala-gigg.“