Fréttablaðið - 03.03.2007, Page 2
Samkeppniseftirlitið
telur að fyrirtæki í ferðaþjónustu
hafi með sér víðtækt samráð. Eft-
irlitið gerði í gær húsleit hjá
tveimur ferðaskrifstofum og
Samtökum ferðaþjónustunnar
(SAF) og hafði með sér gögn í
kassavís.
Eftirlitið telur samráðið ná til
gististaða, bílaleiga og veitinga-
húsa og ná til „ákvörðun verðs,
álagningar, skiptingu markaða og
samræmingu viðskiptamála,“ eins
og segir í gögnum sem eftirlitið
lagði fyrir Héraðsdóm Reykjavík-
ur þegar heimildar til húsleitar
var óskað.
Samkeppniseftirlitið telur sig
hafa rökstuddan grun um að Sam-
tök ferðaþjónustunnar og félög
innan þeirra hafi með alvarlegum
hætti brotið samkeppnislög. Í
beiðninni um húsleitarheimild er
meðal annars byggt á fundargerð-
um samtakanna. Gögn sýni að for-
svarsmenn fyrirtækja innan SAF
hafi ítrekað rætt saman um verð-
lagningu og álagningu fyrir þjón-
ustu sína um árabil.
Vitnað er til fundargerðar frá
7. september 2004. „Rætt var um
hótelverð eins og þau birtast á
netinu sem virðast hærri en í
nágrannalöndunum. Miklar
umræður urðu um blokkbókanir
og ljóst að víða eru þær sívaxandi
vandamál. JKÓ [Jón Karl Ólafs-
son, formaður SAF] sagði að nauð-
synlegt væri að halda fund innan
SAF og ræða þessa þróun og
hvernig fyrirtækin gætu brugðist
við henni. Ákveðið var að ræða
þetta á næsta stjórnarfundi við
formenn fagnefndanna. EH [Erna
Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
SAF] sagði að ferðaskrifstofu-
nefnd og gististaðanefnd ætluðu
að halda fljótlega sameiginlegan
fund til að ræða samskipti ekki
síst vegna blokkbókana og siða-
reglna almennt.“
Samkeppniseftirlitið telur
ofantalið skýra vísbendingu um
ólögmætt samráð. Ennfremur
segir í beiðni um húsleitarheim-
ild. „JKÓ sagðist hafa áhyggjur af
sumrinu vegna gengisþróunar og
hægara innstreymis bókana.
Hann velti fyrir sér næsta ári og
sagði ákveðna hættu á kollsteypu
og ræddi hvort ekki þyrfti að
senda félagsmönnum einhver
skilaboð vegna verðlagningar
2006. Tóku stjórnarmenn undir
það. Var ákveðið að senda hug-
leiðingu í fréttabréfi.“
Í beiðninni er svo reifað hvern-
ig á vormánuðum 2006 hafi flest-
ar ferðaskrifstofur hækkað verð
sín á utanlandsferðum um allt að
12 prósent í kjölfar gengislækk-
unar.
[Hann] ræddi hvort ekki
þyrfti að senda félags-
mönnum einhver skilaboð vegna
verðlagningar 2006.
Sigurður, eru dónalegar limrur
bannaðar í þingveislunni á
Hótel Sögu?
Magnús Stefánsson
félagsmálaráðherra segir að
ákvörðunin um að lækka lánshlut-
fall og hámarkslán hjá Íbúðalána-
sjóði síðasta sumar hafi verið
tímabundin ráðstöfun sem alltaf
hafi staðið til að endurskoða
þegar fært þætti. „Ég taldi ein-
faldlega að það væri tímabært að
gera þetta núna,“ segir hann.
Magnús segir að framsóknar-
menn vilji almennt standa við
kosningaloforð sín.
Þegar ákvörðunin um lækkun-
ina hafi verið tekin þá hafi fram-
kvæmdum meðal annars verið
frestað. Þær hafi verið settar af
stað aftur á haustmánuðum.
Íbúðalánin hafi beðið þar til
núna.
„Ég hef ekki trú á því að þetta geti
stofnað þeim efnahagsávinningi
sem hefur verið í hættu. Þó láns-
hlutfall sé hækkað þá miðast lánin
við brunabótamat, ekki kaupverð,
og hámarksfjárhæðin er 18 millj-
ónir, var 17, þannig að það eru
miklar skorður í þessu. Það er
ekki þannig að þetta hlaupi villt og
galið út um allt.“
Sjálfstæðismenn hafa gagn-
rýnt ákvörðunina harkalega. „Við
vorum í sambandi við forsætis-
ráðherra en þetta var ekkert rætt
sérstaklega í ríkisstjórn, ekki
frekar en ýmislegt annað sem
menn gera af þessu tagi,“ segir
hann og telur ákvörðunina ekki
þungan bita fyrir ríkisstjórnar-
samstarfið.
Tímabært að hækka núna
Móðir sextán ára
pilts, sem látið hafði ófriðlega á
skólaballi á fimmtudagskvöld,
ákvað að skilja son sinn eftir í
fangelsi frekar en að taka hann
með sér heim.
Lögreglan hafði fært drenginn í
fangelsi ásamt öðrum sextán ára
dreng. Þeir höfðu verið í áflogum á
skólaballi hjá einum framhalds-
skólanna. Foreldrar drengjanna
komu í fangelsið til að sækja þá.
Móðir yngri drengsins ákvað að
láta hann sofa úr sér í fangaklefa
því það væri honum fyrir bestu.
Móðirin fór heim til sín en
drengurinn gisti fangageymslur og
var sleppt á föstudagsmorgun.
Lét soninn sofa
úr sér á stöðinni
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
MERCEDES BENZ E240
Nýskr. 12.98 - Sjálfskiptur - Ekinn 115 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
1.550
.000.
-
Séra Pétur
Þórarinsson,
sóknarprestur
í Laufási, lést
á Landspítal-
anum fimmtu-
daginn 1.
mars, 55 ára
að aldri. Hann
fæddist á
Akureyri 23.
júní 1951, varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri
1971 og vígðist prestur 3.
október 1976. Hann var meðal
annars sóknarprestur í
Hálsprestakalli, Möðruvalla-
prestakalli og Laufáspresta-
kalli.
Árið 1996 kom út bókin Lífs-
kraftur, baráttusaga Séra
Péturs og Ingu í Laufási. Þar
var farið yfir lífssögu Péturs,
sem barðist nær alla ævi við
skæða sykursýki. Hann lætur
eftir sig eiginkonu og þrjú
börn.
Séra Pétur
Þórarinsson
látinn
Kínverskur karlmaður var dæmdur í
fjórtán mánaða fangelsi í Héraðsdómi Austurlands í
gær fyrir að stinga ítalskan vinnufélaga sinn
tvívegis með hnífi.
Verknaðurinn átti sér stað síðustu nýársnótt í ára-
mótagleði sem haldin var í vinnubúðum Kárahnjúka-
virkjunar, en báðir mennirnir störfuðu við fram-
kvæmdirnar. Fórnarlambið sagðist hafa verið að
hjálpa kínverskri stúlku á fætur þegar árásarmaður-
inn hefði ráðist að honum. Hann hefði ekki séð hann
nálgast heldur einungis fundið þegar hann var
stunginn. Vitni bar fyrir dómi að árásarmaðurinn
hefði staðið upp úr sófa, sveigt framhjá fólki til að
nálgast fórnarlambið sitt og síðan lagt til hans.
Árásarmaðurinn játaði frá upphafi að hafa
stungið fórnarlamb sitt. Hann hélt því hins vegar
fram að hann hefði gripið til hnífsins til að beita
honum í átökum gegn hópi manna þar sem hallaði
töluvert á hann. Sagðist hann ekki hafa greint á milli
þeirra manna sem hann hefði þurft að eigast við
heldur stungið þann sem næst honum stóð.
Við dómsuppkvaðninguna var tekið tillit til þess
að áverkar fórnarlambsins voru ekki lífshættulegir
og ekki þótti þörf á að flytja hann á sjúkrahús eftir
árásina. Á hinn bóginn var litið til þess að hann hefði
beitt fyrir sér hættulegu eggvopni og hending ein
ráðið því hvaða áverkar hlutust af stungunni.
Ræddu um verðlag
og gengisþróunina
Samkeppniseftirlitið telur sig hafa rökstuddan grun um víðtækt samráð fyrir-
tækja í ferðaþjónustu. Húsleit var gerð hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, Ferða-
skrifstofu Íslands og Heimsferðum í gær að fengnum úrskurði héraðsdóms.
Tap fjölmiðla- og afþrey-
ingarfélagsins 365 hf. nam 6.943
milljónum króna á síðasta ári.
Mikil umskipti urðu á fyrir-
tækinu undir lok ársins og voru
rekstrareiningarnar NFS, DV og
tímaritaútgáfan lagðar niður.
Sé aðeins horft til reksturs
þeirra eininga sem fyrirtækið
starfrækir í dag nam tap síðasta
árs rúmum 1,2 milljörðum.
Stjórnendur 365 meta rekstr-
arhorfur ársins 2007 nokkuð
góðar enda aðgerðir á borð við
lokun NFS og salan á DV og
tímaritum til þess fallnar að ná
fram hagræðingu.
Megin rekstrareiningar
félagsins eru 365 miðlar, Sena, D3
og Sagafilm. 365 er útgefandi
Fréttablaðsins.
Tapaði tæpum
sjö milljörðum
Harður árekstur varð á
gatnamótum Njarðargötu og
Hringbrautar í gærkvöldi. Tvær
fólksbifreiðar skullu saman af
miklu afli.
Að sögn lögreglu komu
bifreiðarnar úr gagnstæðum
áttum þegar önnur beygði
skyndilega fyrir hina með
fyrrgreindum afleiðingum.
Gatnamótum Hringbrautar og
Njarðargötu var lokað um tíma á
meðan hreinsað var til á slysstað
og hlúð að ökumönnum bifreið-
anna. Meiðsli þeirra reyndust þó
ekki vera stórvægileg.
Loka þurfti
gatnamótum