Fréttablaðið - 03.03.2007, Page 20
S
ala á
málverki
eftir Kjarval
á toppverði
til Gallerís
Foldar vakti mikla
athygli í vikunni.
Tryggvi Páll Friðriks-
son listmunasali varð
enn áberandi í
fjölmiðlum og vakti
athygli þegar hann
kvaðst aldrei myndu
greina frá fyrir hvern
Gallerí Fold hefði
keypt verkið.
Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem
Tryggvi Páll kemur
fram á opinberum
vettvangi í tilefni af
sölu myndlistar. Á
morgun stendur hann
fyrir uppboði á
íslenskri myndlist og
listmunum en Gallerí
Fold sem hann rekur
ásamt konu sinni
hefur um langt árabil
verið leiðandi í sölu
nýrra og eldri
listaverka í Reykja-
vík.
Í hópi þeirra sem
fylgjast vel með
yngri, og þó enn
frekar eldri myndlist,
er Tryggvi að góðu
kunnur. Bragi
Guðlaugsson er einn
þeirra Reykvíkinga
sem hafa fylgst með í
íslenskri myndlist í
þrjátíu ár og segir
Tryggva vera
traustan mann sínum
vinum og hann búi
yfir drjúgri þekkingu
á myndlist, sem
verslunarmaður sé
hann heiðarlegur og
ábyggilegur. Hann
stundi ekki eins og
ýmsir kjánar í sölu á
myndlist þá þokka-
legu iðju að kaupa
verk af þeim sem
ekki þekkja til og end-
urselja þau með
miklum hagnaði.
Traust er enda það
orð sem kemur fyrst
upp í huga þeirra sem
hafa þekkt Tryggva
frá því hann var
krakki og unglingur:
hann hafði það orð á
sér strax á þeim árum
þegar hann var að
alast upp á Högunum.
Elínbjört eiginkona
hans segir áhugann á
myndlist hafa komið
til af kynnum við
Halldór Jónsson
kaupmann og Selmu
Jónsdóttur, forstöðu-
konu Listasafns Íslands, en
móðir Tryggva var tengd því
fólki. Faðir hans var bróðir
Gunnars, föður Kjartans
Gunnarssonar, fyrrrum fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks-
ins.
Kynfylgja Tryggva er því
varkárni, rósemi og stilling,
dálítið búandleg en traust. Það
dugði honum enda til frama í
félagsstarfi strax frá unglingsár-
um. Tryggvi var áberandi á
götum miðborgar Reykjavíkur á
hátíðisdögum þar sem hann fór í
fararbroddi fánasveitar skáta í
Reykjavík, fullorðinslegri en
börnin sem fóru á eftir, fór hægt
yfir en örugglega og upphófst
hvergi ábyrgð sinni. Færri vissu
að bak við þetta fas fór meinhæð-
inn húmoristi.
Tryggvi fór að vinna við sölu á
myndavélum eftir skóla hjá Gew-
aphoto en réðist síðan til starfa í
kryddsölunni Skipholti hjá
föðurbróður sínum. Hann fór að
taka að sér verkefni fyrir
björgunarsveitirnar um 1988,
segja þeir sem voru samskipa
honum þar, og starfaði fyrir þær
allt til 1994 þegar hann fór
alfarið í rekstur á Gallerí Fold.
Þá var Galleríið komið upp á
Rauðarárstíg og síðan hefur það
opnað útibú í Kringlunni. Með
tilkomu þess breyttist bæði
frummarkaður og eftirmarkaður
með myndlist gríðarlega.
Margir hafa þó sýnt galleríinu
opinberan fjandskap: Guðmund-
ur Oddur prófessor við Listahá-
skólann sagði að þar væri ekki
seld myndlist heldur stofuskraut.
Myndlistarklíkan sem mest pláss
fær í meðförum Moggans og er í
nánustum tengslum
við gallerí i8 lítur
niður á verk sem
Tryggvi selur, jafnvel
þó þau séu eftir
Dieter Roth. Hefur
Tryggvi enda ekki
dregið úr gagnrýni
sinni á einstefnu
Moggans í umfjöllun
myndlistar. Segja
menn það til marks
um húmorískan sans
Tryggva að hann leiti
gjarna uppi verk eftir
Eddu Jónsdóttur, aðal-
eiganda i8, og bjóði til
sölu á uppboðum
sínum þar sem þau
seljist á fáeina
þúsundkalla.
Samferðamenn
Tryggva segja þó
starf hans í sölu
myndlistar blikna við
hlið þess tröllaukna
átaks sem hann hafi
hrundið í gang í
skátahreyfingunni:
fyrst með aðkomu
sinni að félagsstarfi
skátahreyfingarinnar,
síðan aðkomu að
rekstri Hjálparsveit-
ar skáta, fjáröflunar
þar og skipulagning-
ar: Björn Hermanns-
son, fyrrverandi
framkvæmdastjóri
Landsbjargar:
„Drifkrafturinn sem
hann kom með inn í
björgunarstarfið varð
til þess að rekstur
hjálparsveitanna á
Íslandi gerbreyttist.
Það leiddi til aukinnar
samkeppni svo
Slysavarnafélagið
efldist að kröftum.
Tryggvi á einn stóran
heiður af öllu því
mikla og kraftmikla
starfi sem björgunar-
sveitirnar sýna í dag.“
Enda stofnaði hann
flestar þeirra, bætir
annar við.
Freyr Einarsson,
dagskrárstjóri
Sirkuss, kynntist
honum sem unglingur
í tengslum við
Kaupstefnuna –
sýningafyrirtæki sem
Tryggvi rak ásamt
nokkrum félögum
sínum úr skátahreyf-
ingunni sem hobbí
um nokkurra ára bil:
„Hann er gífurlega
frjór og hugmynda-
ríkur. Hann er
gríðarlega skemmti-
legur maður, mein-
hæðinn og er í
rauninni villingur að
eðlisfari sem fáir kynnast.“
Á morgun mun Tryggvi stíga
á pall og bjóða upp glæsilegt
safn verka eftir íslenska
myndlistarmenn: Elínbjört kona
hans segir þau hafa farið að
stunda sýningar saman fyrir
1970 og það dylst engum sem les
Listapóstinn, sem er eina
reglulega veftímaritið sem út
kemur á Íslandi um myndlistar-
markaðinn, að Tryggvi er
ástríðufullur áhugamaður um
myndlist. Eru greinar hans þar
merkilegur vitnisburður um
myndlistarumræðu, ekki
kórréttar samkvæmt því
staðlaða skoðanamynstri sem
myndlistarheimurinn íslenski
vill láta ráða, en ef það er
eitthvað sem sagan kennir okkur
er það að gildandi skoðanir eru
býsna fljótar að fyrnast.
Má ekki vamm sitt vita
„Myndlist er tískuvara og tískuheimurinn er fallvaltur.
Sem stendur eru það frekar rómantísk verk sem eru
eftirsóttust og litir gjarnan ljósir. Nú „eiga“ myndir
að vera fallegar og frekar ljúfar. Fáguð vinnubrögð
eru tekin fram yfir þau hráu. Það er hins vegar ekki
sjálfgefið að þannig verði það eftir fáein ár.“
Sumir þola hann ekki og fara ekki þarna inn, en
hann er einn af fáum hér á landi sem hafa marktæka
þekkingu á myndlistarmarkaði.
V
in
ni
ng
ar
v
er
ða
a
fh
en
di
r
hj
á
BT
S
m
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t
er
tu
k
om
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
ti
ð.
Aukavinningar eru:
Sims 2 Seasons leikir · Aðrir Sims leikir
PS2 stýripinnar · PS2 minniskort · DVD myndir
Fullt af öðrum tölvuleikjum og margt fleira.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI