Fréttablaðið - 03.03.2007, Page 92
Bandaríska stórsveitin
Incubus heldur risatónleika
í Laugardalshöllinni í kvöld.
Steinþór Helgi Arnsteins-
son bjallaði í gítarleikarann
hárprúða Mike Einzeiger
og ræddi við hann um nu-
metalinn, af hverju hann
fílar ekki hiphop og fleira.
Incubus á langa og farsæla sögu
að baki þrátt fyrir að hafa upplif-
að tímana tvenna. Sveitin var
stofnuð af Mike, Brandon Boyd og
Jose Pasillas þegar þeir félagar
voru aðeins fimmtán ára gamlir
en þeir eru allir enn í fullu fjöri
með sveitinni. Nýjasta plata
hljómsveitarinnar, Light Grenad-
es (þeirra sjötta í röðinni), fór rak-
leiðis í fyrsta sæti Billboard-list-
ans í lok síðasta árs og sveitin lauk
nýverið við tónleikaferð um
Bandaríkin og Kanada en miðar á
hana seldust upp á einum degi.
Mike var staddur á heimili sínu
í Malibu og hvíldi lúin bein fyrir
næsta verkefni eftir fyrrnefnda
tónleikaferð þegar Fréttablaðið
náði tali af honum. Næsta verk-
efni er einmittt Ísland sem Mike
hlakkar, venju samkvæmt, mikið
til. „Ég hef heyrt að þar séu mjög
fallegir jöklar, eldfjöll og konur...
og já, karlmenn líka. Ég hef líka
heyrt að það sé mjög virkt lista- og
tónlistarlíf í landinu, mikið að ger-
ast og virðist spennandi,“ útskýrir
Mike galvaskur.
Þegar sveitin var að stíga sín
fyrstu spor á stjörnuhimni banda-
rísku rokksenunnar var sveitin
iðulega flokkuð með nu-metal
sveitum á borð við Korn, Deftones
og jafnvel Limp Bizkit. Mike er
reyndar ekkert sérstaklega ósátt-
ur við flokkunina enda segir hann
að þetta hafi verið það vinsælasta
á sínum tíma og að allir tónlistar-
blaðamenn hafi verið sólgnir í
stefnuna. „Núna, hins vegar, láta
margar af þessum sveitum og
blaðamönnum eins og þetta hafi
aldrei átt sér stað, eins og þeim
hafi aldrei líkað við þessa tónlist á
þeim tíma.“
Þegar Mike er spurður hvort
honum hafi fundist hinar nu-metal
sveitirnar beinlínist vondar er
hann ekki alveg tilbúinn að sam-
þykkja það skilyrðislaust en bend-
ir samt á þá staðreynd að flestar
þeirra séu nú hættar og þá vænt-
anlega af ástæðu. „Ég held að
okkar tónlist hafi ekki átt svo
mikið sameiginlegt með þessum
sveitum, því annars hefðum við
ekki náð að lifa svona lengi. Mér
er samt illa við að segja vonda
hluti um aðrar hljómsveitir. Ég lít
Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele
Bundchen segist vera ósköp venju-
leg stelpa sem hafi gaman af
íþróttum og að eyða tíma með vin-
konum sínum og kærasta, ruðn-
ingshetjunni Tom Brady.
„Ég dýrka íþróttir. Ég hef haft
mikinn áhuga á þeim síðan ég var
lítil stelpa,“ sagði Gisele í viðtali
við Vanity Fair. „Ef maður spáir í
það þá er eini munurinn á mér og
öðru fólki sá að ég ferðast miklu
meira.“
Gisele segist hafa áhuga á að
eignast börn í framtíðinni en kær-
astinn Brady á von á barni með
fyrrverandi kærustu sinni, leik-
konunni Bridget Moynahan. „For-
eldrar mínir hafa verið giftir í 35
ár og eiga sex börn. Ég er samt
bara 26 ára, þannig að ég hef
nógan tíma.“ Gisele ætlar að ein-
beita sér að vinnunni á næstunni
enda er nóg að gera. „Ég hef yndi
af að dansa en þegar ég er að vinna
fer ég aldrei í partí eða á nætur-
klúbba.“
Hún segist enn hafa samband
við fyrrverandi kærasta sinn
Leonardo DiCaprio. „Við hittumst
ennþá af og til og mér þykir mjög
vænt um fjölskylduna hans. Eftir
svona langt samband er eðlilegt að
verða náinn fjölskyldu viðkom-
andi.“
Ósköp venjuleg stelpa
Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00
Tilboðsvörur í mars
Manhattan leðurtungusófi
Einnig fáanlegur í brúnu leðri
Stærð: 290x170
Verð áður: 198.000,-
Verð nú: 138.600,-
-30%
Sevilla leðursófasett
3+1+1
Verð áður: 228.000,-
Verð nú: 136.800,-
3+2
Verð áður: 212.000,-
Verð nú: 127.200,-
-40% -20%
Milano leðursófasett
3+1+1
Verð áður: 249.000,-
Verð nú: 199.200,-
3+2
Verð áður: 220.000,-
Verð nú: 176.000,-
Stækkanlegt borð
og 6 Mona stólar saman
Stærð: 160(248)x100
Tilboðsverð: 132.600,-
Borðstofuborð 200x100
Verð áður: 69.000,-
Verð nú: 51.750
Borðstofuborð og
6 Paris leðurstólar
Tilboðsverð nú: 146.250,-
E
r
ei
nn
ig
til
í hv
ítu
Stóll Iona
Verð áður: 13.500,-
Verð nú: 9.450,-
-30%
-30%
Stóll Mona
Verð áður: 12.500,-
Verð nú: 8.750,-
Focus leðursófasett
3+1+1
Verð áður 249.000,-
Verð nú 211.650,-
3+2
Verð áður 235.000,-
Verð nú 199.750,-
-15%
-25%
af borði