Fréttablaðið - 03.03.2007, Page 96
Bestu liðin heima væru best í Belgíu
Iceland Expresss deild karla
Handboltalandslið kvenna
KR-ingar unnu mjög auðveldan
23 stiga sigur á Hamar/Selfoss í DHL-Höll-
inni í gær, liðinu sem hafði unnið þá tví-
vegis í vetur, þar á meðal slegið þá út úr
bikarnum. Nú átti KR-liðið hinsvegar öll
svör við sóknarleik Hamars/Selfoss sem
skoraði aðeins 52 stig nýtti aðeins 35%
skota sinna og tapaði 27 boltum.
„Það var eins og það væri eitthvað and-
leysi yfir Hamarsliðinu og að þeir tryðu
því aldrei að þær gætu unnið þennan leik,“
sagði Fannar Ólafsson, fyrirliði KR.
„Við ætlum að klára okkar leiki og von-
ast til þess að Skallagrímur tapi á móti
Snæfelli svo að við náum 2. sætinu. Við
erum annars að slípa hlutina hjá okkur og
ætlum að toppa í úrslitakeppninni,“ segir
Fannar sem var ánægður með svæðis-
pressuna sem riðlaði algjörlega sóknarleik
HS og átti mikinn þátt í öllum töpuðu bolt-
unum og lélegu skotunum sem liðið tók í
gær.
Það var ekki að sjá á þessum leik hvern-
ig HS vann KR tvívegis fyrr í vetur. „Skytt-
urnar þeirra fengu engan frið og við fórum
einmitt með það inn í þennan leik að gefa
þeim ekkert því Friðrik og Hallgrímur
hafa verið að klára okkur í síðustu leikj-
um,“ segir Fannar um lykilbreytinguna á
milli leikja en HS-liðið klikkaði á 12 af 13
þriggja stiga skotum sínum og þeir Hall-
grímur Brynjólfsson og Friðrik Hreinsson
skoruðu til samans aðeins 3 stig en höfðu
skoraði 54 stig í hinum tveimur leikjunum
Hamar/Selfoss er nú búið að tapa fjór-
um leikjum í röð og 7 af síðustu 8 og það er
ekki hægt að segja að liðið sé að koma á
góðu róli inn í úrslitakeppnina ef liðið
kemst þangað því framundan eru leikir við
lið sem berjast fyrir lífi sínu.
Auðvelt og afgerandi hjá KR-ingum
KR sigraði loks Hamar/Selfoss í DHL-höllinni í gær eftir að hafa tapaði tvívegis fyrir liðinu fyrr í vetur. KR
vann 23 stiga sigur, Hamar/Selfoss skoraði aðeins 52 stig og tapaði sínum fjórða leik í röð.