Fréttablaðið - 03.03.2007, Side 97
Skapofsamaðurinn Craig
Bellamy hefur í fyrsta skipti tjáð
sig um það sem gekk á milli hans
og John Arne Riise en Bellamy
var sagður hafa lamið Riise í
fæturna með golfkylfu eftir gott
kvöld í Portúgal.
„Ég missti stjórn á skapi mínu
í nokkrar sekúndur. John hefur
tekið þessu ótrúlega vel. Við
æfðum saman strax um morgun-
inn og þá var allt í góðu,“ sagði
Bellamy sem var sektaður um 80
þúsund pund fyrir athæfið.
„Þetta byrjaði allt í karókí. Ég
söng eitt lag og það var „Red, Red
Wine“ því Jerzy Dudek var að
drekka rauðvín. Þannig var
ruglstemningin. Ég reyndi að fá
Riise upp til að syngja en hann
vildi það ekki og var ósáttur við
að ég setti pressu á hann og lét
mig vita af því. Það voru allir
orðnir rólegir þegar við fórum
upp á hótel en þá missti ég stjórn
á mér í nokkrar sekúndur. Ég fór
inn til Johns og sagði honum að
haga sér ekki aftur svona fyrir
framan félagana. Það var allt og
sumt. Ég vildi bara tala við hann í
einrúmi,“ sagði Bellamy.
Missti stjórn á
skapi mínu
Guðjón Baldvinsson mun
fara með Álasundi í vikuæfinga-
ferð til La Manga á Spáni í næstu
viku. Hann hefur verið að æfa
með liðinu undanfarna daga og
átti góða innkomu í tapleik liðsins
gegn Djurgården í fyrrakvöld.
„Guðjón átti jákvæða innkomu.
Hann gæti orðið góð viðbót við
okkar lið,“ sagði Per Joar Hansen,
þjálfari Álasunds, eftir leikinn.
Haraldur Freyr Guðmundsson
er á mála hjá félaginu.
Til La Manga
með Álasundi
Ensk knattspyrnuyfir-
völd rannsaka nú hvort ólöglega
hafi verið staðið að skráningu
Argentínumannanna Carlos Tevez
og Javier Mascherano þegar þeir
gengu til liðs við West Ham í
haust. Fyrirtækið MSI sá um
félagaskiptin en þeir eiga
samningsrétt leikmannanna. West
Ham er nú grunað um að hafa
ekki afhent öll gögn er þetta
varðar og er það brot á lögum
enska knattspyrnusambandsins.
Svo gæti farið að stig yrðu
dregin af West Ham vegna þessa
en það yrði nær örugglega til þess
að liðið félli úr ensku úrvalsdeild-
inni. Liðið er nú níu stigum á eftir
liðinu í 17. sæti deildarinnar.
Yrði dauðadóm-
ur fyrir félagið
Það er eins og Keflvík-
ingar þurfi að ganga í gegnum allt
hugsanlegt mótlæti í körfuboltan-
um í vetur og staða liðsins hefur
vissulega borið keim af því.
Liðið hefur verið óheppið með
erlenda leikmenn og skipt þrisvar
um Kana og einu sinni um Evrópu-
leikmann. Fyrirliði liðsins, Magn-
ús Þór Gunnarsson, lenti í því að
missa allt sitt í bruna og nú til að
bæta enn á hafa meiðsli hrannast
upp í síðustu leikjum. Bakvörður-
inn Arnar Freyr Jónsson meiddist
illa í sigurleik á Hamar/Selfoss á
sunnudaginn og á fimmtudags-
kvöldið missti liðið tvo lykilmenn,
Bandaríkjamanninn Tony Harris
og Jón Norðdal Hafsteinsson út af
,meidda í fyrri hálfleik.
„Það er hópferð hjá Keflavík-
urliðinu upp á sjúkrahús,“ sagði
Sigurður Ingimundarson, þjálfari
Keflavíkurliðsins, í léttum tón
þegar Fréttablaðið forvitnaðist
um meiðsli leikmanna liðsins.
„Ég held að þetta sé ekkerr
alvarlegt en það er leiðinlegt
svona rétt fyrir úrslitakeppni að
menn séu að detta í svona meiðsli,“
segir Sigurður sem lítur þó á
jákvæðu hliðarnar.
„Við verðum bara að taka á
þessu og vinna okkur í gegnum
þetta. Það fengu að spreyta sig
menn sem hafa lítið fengið að spila
í vetur og það var það jákvæða við
þetta því við eigum fullt af mönn-
um,“ sagði Sigurður en nafni hans
Sigurðsson skoraði 15 stig á 13
mínútum og hinn 17 ára gamli
Þröstur Leó Jóhannsson var með
10 stig, 4 stoðsendingar og 3 varin
skot á sínum 16 mínútum.
Nú meiðast menn í hverjum leik