Fréttablaðið - 03.03.2007, Síða 102
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Björgvin Ploder, trommari Sniglabandsins,
lýsir mótorhjólaþættinum Motogp sem hóf
göngu sína á Skjá einum um síðustu helgi.
Það eru hæg heimatökin hjá Björgvini því
hann starfar sem hljóðmaður á Skjá einum og
var hann meira en lítið æstur þegar hann frétti
af því að stöðin hefði fest kaup á uppáhalds-
þættinum sínum. „Ég er búinn að fylgjast með
þessu í tólf til fimmtán ár á Eurosport,“ segir
Björgvin. „Ég fór beint í mína yfirmenn og
sagðist ætla að lýsa þessu.“ Áttu yfirmennirnir
erfitt að standast þessa ákveðni Björgvins og
réðu hann á staðnum. „Þessi keppni er í sama
flokki og Formúlan er fyrir bílana. Þetta er
samt ekki keppni í því hver er fljótastur að
skipta um dekk eða setja bensín á, heldur
keppni í því hver er fljótastur að keyra. Þeir
stoppa ekkert og það er ofboðslega skemmti-
legt að fylgjast með þessu,“ segir hann og
bætir því við að hraðskreiðustu hjólin fari upp
í 300 km hraða. Björgvin er, eins og gefur að
skilja, forfallinn mótorhjólaáhugamaður og á
hvorki fleiri né færri en fjögur hjól. Eitt þeirra
er ́ 67 módel en hin þrjú eru ́ 80 módel. Átján ár
eru nú liðin síðan hann fór með félögum sínum
í Sniglabandinu í eftirminnilega mótorhjóla-
ferð til Sovétríkjanna þáverandi, þar sem þeir
feyktust um á fákum sínum og héldu tíu tón-
leika. „Við vorum í mánuð í Sovét og þvæld-
umst um öll Eystrasaltsríkin, fórum til Moskvu,
Hvíta Rússlands og síðan til Leníngrad, sem
núna heitir St. Pétursborg. Ég hef aldrei verið
jafnfrægur og þá en það vissi bara enginn af
því.“
Trommari lýsir mótórhjólakeppni
Óvenjuleg keppni fer fram á veit-
inga- og kúrekastaðnum Tony´s
County undir Ingólfsfjalli í kvöld
þegar bitist verður um sigur í
smjöráti. Hafa keppendur fimmtán
mínútur til að slafra í sig einu kílói
af smjöri og sá sem er fljótastur
fær að launum fimmtíu þúsund
krónur í verðlaun.
Að sögn Eymundar Gunnarsson-
ar, framkvæmdastjóra Tony´s
County, munu að minnsta kosti fjór-
ir taka þátt. „Ég veit ekki til þess að
þetta hafi verið gert nokkru sinni
áður,“ segir Eymundur, sem var að
borða harðfisk og vantaði smjör
þegar hann fékk hugmyndina.
Til að hafa vaðið fyrir neðan sig
ákvað Eymundur að fá hjúkrunar-
fræðing til að vera á staðnum ef
eitthvað kemur upp á. Einnig verða
fötur á gólfinu ef menn þurfa að
kasta upp. „Við höfðum samband
við lækni og hann segir að þetta sé
óþverri inn í æðarnar að fá þetta í
svona magni á svona stuttum tíma
en þetta er ekki hættulegt. Það er
helst að það verði mjúkar hægðir á
eftir,“ segir Eymundur, sem opnaði
staðinn rétt fyrir síðustu jól. Segir
hann viðtökurnar hafa verið fram-
ar vonum og fjölmargir hópar og
fyrirtæki hafi sótt Tony´s heim og
drukkið í sig amerísku kúreka-
menninguna.
Auk smjörátsins bjóða Eymund-
ur og félagar upp á ýmsar aðrar
uppákomur. Má þar nefna Coyoty
Ugly-kvöld sem var haldið í fyrsta
sinn í gærkvöldi þar sem létt-
klæddar barstúlkur stukku upp á
borð og helltu í gestina, líkt og í
samnefndri kvikmynd.
Kíló af smjöri á 15 mínútum
„Kínverjar hafa ekki kynnst
blúsnum að ráði en eru þó hrifnir
af honum, sérstaklega hér í Sjang-
hæ sem er hliðið að umheiminum í
þessum efnum,“ segir tónlistar-
maðurinn KK. Þeir Magnús Eiríks-
son hafa dvalið ásamt Óttari Felix
Haukssyni útgefanda í Sjanghæ í
Kína undanfarið við upptökur á
nýrri plötu, sem gefin verður út
þar í landi sem og á Íslandi í
sumar.
Í kvöld troða þeir upp á tónleik-
um undir yfirskriftinni Kveðja frá
Íslandi. KK og Magnús voru að
stilla saman strengi sína þegar
Fréttablaðið truflaði þá. „Ár svíns-
ins gekk í garð hér í landi fyrir
skemmstu og nýárshátíðin stendur
yfir fram á sunnudag,“ segir KK.
„Við vorum fengnir til að spila á
tónleikum í Borgarleikhúsinu í
Sjanghæ í tilefni af hátíðarhöldun-
um og ætlum að bjóða upp alls kyns
blús og tökum mikið af lögum eftir
okkur sjálfa. Bæði platan og tón-
leikarnir hafa átt sér langan
aðdraganda og það er gaman að
þetta er að verða að raunveru-
leika.“ KK er ekki alls ókunnugur
Kína, því þetta er í þriðja sinn sem
hann heimsækir landið. „Ég fór
fyrst til Peking árið 1999 og fyrir
hálfu öðru ári kom ég fram á lista-
hátíð hér í Sjanghæ. Það hafa engar
smá breytingar átt sér stað á þess-
um stutta tíma, þetta er orðin ein
öflugasta þjóð í heimi.“
Tónleikar KK og Magnúsar hafa
vakið athygli fjölmiðla í Sjanghæ,
fjórar sjónvarpsstöðvar og níu dag-
blöð hafa fjallað um þá, til dæmis
birtist viðtal við KK í dagblaðinu
Shanghai Daily, þar sem honum er
lýst sem „endurrreisnarmanni
blústónlistarinnar“. „Okkur hefur
verið tekið afskaplega vel,“ segir
blúsarinn. „Okkur var til dæmis
boðið í siglingu eftir fallegri á í
grennd við borgina. Um borð feng-
um við meðal annars ljúffengan
mat en vorum frekar lengi að borða
og frekar en að senda okkur í land
án þess að klára matinn var bátn-
um bara snúið við og tekinn auka-
hringur. Okkur líður eins og kónga-
fólki hér.“
Einar Sveinbjörnsson
MARKAÐURINN
á www.visir
alla daga