Tíminn - 21.08.1979, Side 5
Þriðjudagur 21. ágúst 1979.
5
il 84 I. !l !l '1 !L i
Borgin hefur ekki stigið nein
sáttaskref • Greinargerð frá fóstrum i Laufásborg
Eins og flestum er kunnugt,
hafa á slðustu vikum og
mánuðum orðið nokkrar
umræður um ráðningu forstööu-
konu, að dagheimilinu Laufás-
borg. Umræður þessar hafa bæði
oröiðf borgarstjórn Reykjavlkur,
nefndum borgarinnar, fjöimiðl-
um og manna á meðal og þá ekki
sist meðal þeirra starfshópa, sem
máiinu tengjast. Þegar mál eins
og þetta hefur orðið jafn mikill
blaöa- og umræðumatur, veröur
ekki hjá þvi komist, að hver hluti
þess komist til skila á þeim vett-
vangi. Þess vegna teljum við
undirritaðar nauðsynlegt að gera
hér nokkra grein fyrir næsta þætti
þessa máls, þ.e.a.s. brottför
okkar fóstranna frá dagheimilinu
Laufásborg.
Það er ekki með glöðu geöi,
sem slik mál eru á torg borin, en
með hliösjón af framansögðu
veröur ekki hjá þvi komist.
Upphaf þessa máls hefur þegar
komiö fram I blaðagrein, sem ein
okkar skrifaði og sendi öllum
dagblöðunum i Reykjavik til birt-
ingar. Erum við allar ásáttar við
þá frásögn aila, þó enn megi
knykkja á, aö það sem síðan hefur
gerst 1 máli þessu, hefur enn
aukiðá þann órétt og þá óbilgirni,
sem Dröfn ólafsdóttir hefur að
ósekju mátt þola af borgaryfir-
völdum I Reykjavik.
Þáttur okkar i málinu er sá, aö
viö sendum stjórnarnefnd dag-
vistunar, sem fer meö málefni
dag vistunarstofnana fyrir
borgarinnar hönd, I júni s.l. bréf,
þar sem viö greindum frá þvl, aö
yröi raunin sú, aö fram hjá Dröfn
yröi gengiö viö þessa ráöningu,
þá teldum viö okkur ekki fært aö
gegna störfum okkar áfram.
Þetta bréf okkar var lagt fram á
fundi dagvistunarnefndar og
bókaö 26. júni s.l.
Ástæöur fyrir þvi, aö viö tökum
svo haröa og ótviræða afstööu að
láta fremur af störfum, en una
þvi, aö fram hjá Dröfn Olafs-
dóttur sé gengið, eru margar.
Sumar þeirra hafa þegar veriö ti-
undaöar i þeim blaöagreinum,
sem aö framan er á minnst og
birst hafa af okkar hálfu. Þvi má
viö bæta, að viö teljum aö svo hafi
verið gengiö á hlut Drafnar, aö
viö sams tarf sma nnesk ju r
hennar, hljótum aö sýna henni þá
samstöðu, aö halda ekki áfram
störfum okkar viö slikar
kringumstæöur.
Viö þaö má svo enn bæta aö stór
þáttur I ákvöröun okkar, er auö-
vitaö sú staöreynd aö á Laufás-
borg hafði tekist aö byggja upp
starfsanda og vinnubrögö, sem
fyrirsjáanlegt er aö ekki veröur
viö haldið eftir þaö sem á undan
er gengiö. Þeir, sem meö málinu
hafa fylgst frá öndveröu, skilja
mjög vel, aö ekkert hefur gerst
sem gat oröið til þess, aö viö
breyttum þeirri niöurstöðu okkar
aö segja störfum okkar lausum,
en aftur á móti margt i þá áttina
aöstyrkja okkur i þeim ásetningi.
Nú hafa málin skýrst svo, frá
þvi aö fyrrnefndar blaöagreinar
voru birtar, aö nú er oröiö full-
ljóst, aö Dröfn ólafsdóttir haföi
þegar fengið full forstööukonu-
starf á Laufásborg og var i raun
algerlega að ósekju, þrátt fyrir aö
hún heföi bestu meðmæli allra
sinna yfirmanna, vikiö úr starfi
fyrirvaralaust, þannig aö öörum
starfsmanni mætti I stööuna
koma. Slikt lúalag ætti jafn stór
og ábyrgur vinnuveitandi og sjálf
höfuðborg landsins ekki aö geta
leyft sér.
Viö stóðum i þeirri trú, eins og
Dröfn sjálf.aöhún kæmi til starfa
þann 1. september n.k. og þá
myndi enn veröa haldiö áfram á
þeirri starfsbraut, sem mörkuö
hefur verið og notiö hefur vin-
sælda. Til þess aö firra misskiln-
ingi, þá viljum viö taka þaö fram
og itreka, aö Reykjavikurborg
hefur haft mun meiri umþótt-
unartima varðandi okkar upp-
sagnir, en rikasta nauösyn bar til,
þó ekki sé minnst á þær aðstæður,
sem allir nú þekkja og leyft heföu
annaö. Hins vegar vildum viö
gæta þess aö gera sem minnstan
skaöa meö okkar uppsögn, þó
ekki væri hjá henni komist. Þess
vegna var uppsagnarfrestur
haföur jafn langur og raun hefur
oröið á.
Viö bundum lengi viö þaö vonir,
þegar viö uröum þess varar, aö i
raun var ekki ágreiningur um þaö
I borgarstjórn, aö mál þetta heföi
klaufalega rakist, umsækjendum
aö ósekju, þá myndu borgaryfir-
völd beita sér fyrir lausn á þvi,
sem allir aöilar gætu sætt sig viö.
Sllk starfsaöferö, aö bæta úr þvi
sem brotnað hefur, heföi veriö
borginni til sóma. Þvi miður
viröist borgin ekki hafa stigið
nein raunhæf sáttaskref I málinu.
Þess vegna endaði þaö i þeim
hnút, sem það er nú komiö i.
Þessi greinargerö er ekki sist
til þess gerö aö fullljóst megi
veröa, aö uppsögn okkar, sem
áöur er drepiö á, var ekki innan-
tóm hótun, heldur gerö i fullri ein-
lægni og af fullri ábyrgöartilfinn-
ingu. Auövitaö var uppsögn þessi
gerö i þeirri von, aö mál myndu
skipastmeð eins skaplegum hætti
og vonir okkar stóöu til. Af sliku
hefur enn ekki orðiö.
Þess vegna itrekum viö aö upp-
sögn okkar stendur óbreytt og
verður ekki breytt viö núverandi
aðstæður. Sú hin fyrsta okkar lét
af störfum þegar 1. ágúst. Tvær
þær næstu munu aö óbreyttu láta
af störfum þann 1. september n.k.
og að lokum munu tvær okkar,
einnig aö óbreyttu, hætta þann 1.
nóvember n.k.
Vera má aö borgaryfirvöld láti
brottför okkar sér i léttu rúmi
liggja og meti litils þaö starf, sem
reynt var aö byggja upp á Lauf-
ásborg og við teljum aö ali vel
hafi til tekist. Viö trúum vart
ööru, en að markmiö borgarinnar
meö rekstri dagheimila sinna
hljóti fyrst og fremst aö vera þaö,
aö þar fari fram markvisst starf,
sem þjóni foreldrum og börnum I
þessari borg.
Eða er er eitthvaö annaö oröið
mikilvægara?
Fóstrur Laufásborgar.
21. óg. 1968 — 21. ág. 1979
Tékkóslóvakía hernumin
Baráttuaðgerðirnar 21. ág. n.k. hefjast
við: Tékkneska sendiráðið, Smáragötu,
kl. 17.00.
Stutt ávarp-
Söngur
Kl. 17.30 verður gengið að sovéska sendi-
ráðinu.
Mótmælafundur
við sovéska sendiróðið
Kl. 18.15 hefst útifundur við sovéska sendi-
ráðið. Þar verða flutt tvö stutt ávörp, lesin
ljóð, sönghópur flytur baráttusöngva.
Ávörp flytja:
í lok fundarins afhendir fulltrúi mið-
nefndar sovéska sendiherranum mót-
mælaályktun fundarins.
Kjörorð baráttuaðgerðanna eru:
— Heri Sovétrikjanna burt frá Tékkó-
slóvakiu.
— ísland úr NATO — herinn burt.
—Styðjum baráttu Tékka og Slóvaka fyrir
lýðréttindum — Styðjum Charta '77.
Mætum öll i baráttuaðgerðirnar 21. ágúst
Samtök herstöðvaandstæðinga.
Flensborgarskóli
verður settur mánudaginn3. sept. kl. 13.30
Stundatöflur nemenda á framhaldsskóla-
stigi verða afhentar að skólasetningu lok-
inni og nemendagjöld innheimt.
Nemendur i 9. bekk komi i skólann mið-
vikudaginn 5. sept. kl. 15.
Kennarafundur verður i skólanum mánu-
daginn 3. sept. kl. 10 árdegis.
Skólameistari.
LÖGTÖK
Eftir kröfu tollstjórans i Reykjavik og að
undangengnum úrskurði verða lögtök lát-
in fram fara án frekari fyrirvara, á
kostnað gjaldenda en ábyrgð rikissjóðs,
að átta dögum liðnum frá birtingu þess-
arar auglýsingar, fyrir eftirtöidum
gjöldum:
Áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti
og miðagjaldi, svo og söluskatti af
skemmtunum, vörugjaldi af innlendri
framleiðslu, vörugjaldi, skipulagsgjaldi
af nýbyggingum, söluskatti fyrir april,
mai, og júni 1979, svo og nýálögðum við-
bótum við söluskatt, lesta- vita- og skoð-
unargjöldum af skipum fyrir árið 1979,
skoðunargjaldi og vátryggingaiðgjaldi
ökumanna • fyrir árið 1979, gjaldföllnum
þungaskatti af disilbifreiðum og skatti
samkvæmt ökumælum, almennum og sér-
stökum útflutningsgjöldum, aflatrygg-
ingasjóðsgjöldum, svo og tryggingaið-
gjöldum af skipshöfnum ásamt skrán-
ingargjöldum.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
16. ág. 1979.
Verksmiðjuvinna
Viljum ráða nokkra menn til starfa i verk-
smiðju vorri nú þegar. Mötuneyti á staðn-
um. ódýrt fæði. Talið við Halldór. Fyrir-
spurnum ekki svarað i sima.
Kassagerð Reykjavikur
Kleppsvegi 33.
RS-2750
Með hagstæðum sarnningum við
verksmiðjurnar getum við boðið
þetta tæki fyrst um sinn ó mjög
hagstæðu verði: 127.000,-
, 29800
BÚÐIN Skiphotti19
Toppurinn í
Stereo
útvarp
og
segulband
Roadstar
ræður við
íslenskar
aðstæður